25.12.2021 | 22:45
Heilmikið mál að "kópa við" "trendin", sem "trenda" 2022 á "háum leveli."
Dæmi um "trendin" sem nú komast á æ hærri "level" í íslenskri málnotkun má sjá í viðtengdri frétt á mbl.is um "heitustu eldhústrendin fyrir 2022" eins og það er kallað.
Þessi svonefndu "trend" í sókn enskunnar inn í íslenskt mál lauma sér víða inn, og hafa áður verið nefnd dæmi úr máli íþróttafréttamanna á borð við hina mjög svo misháu "levela" út um allar koppagrundir í íþróttunum, hina nýju sögn "að kópa við" og sögnin "að ranka" um það hve hátt afreksfólkar "rankar".
Úr því mætti finna út eftirfarandi setningu, sem lýsi stöðu áskoranda nr. e9tt í þungavigt:
"Nú er spurningin "hvernig hann trendar á nýju ári og kópar við andstæðinga
á svona "háum leveli" sem "ranka" svona hátt þar sem heitustu boxtrendin eru."
Heitustu eldhústrendin fyrir 2022 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.