2.2.2022 | 18:16
Kústurinn, lang hentugasta en samt gleymdasta tækið á bílastæðunum.
Nú eru komin nokkur ár síðan hér á síðunni var bent á það, hve miklu afkastameiri og hentugari venjulegur strákústur er við mokstur á snjó af bílum og samgöngumannvirkjun en öll önnur tæki, svo sem sköfur og jafnvel skóflur.
Væri raunar furðulegt hve sjaldgæft er að sjá kústa nálæga þar sem þeir myndu gera mikið gagn.
Samt er ekki að sjá að fólk hafi almennt áttað sig á þessu, og alger viðburður er að sjá þurrkur settar upp í loftið á bílum á veturna eins og almennt er gert á Norðurlöndunum.
Alls kyns mótbárur eru færðar fram gegn kústunum, meðal annars þær, að hann komist ekki fyrir inni í bílum.
Þetta er alger firra eins og sést á því að alla jafna er kústur síðuhafa hafður tiltækur inni í minnsta bíl, sem er í umferð á Íslandi og passar þetta líka ljómandi vel skorðaður langsum í bílnum, þótt hann hafi aðeins rými fyrir tvo í sæti, og lóðrétt afturrúða sé alveg við hnakkapúða sætanna.
Kústurinn er svo handhægur, að mótbárur varðandi það að það sé of mikill snjór við bílana reynast vera hrein fjarstæða, eins og sést á því, að til þess að fá ekki snjó ofan í skóna, er langfljótlegast að sópa snjónum bara í burtu á þeim svæðum þar sem þarf að labba.
Í dag var fyrr en varði búið að búa til auðar gönguleiðir í kringum bílana þrjá.
Ein mótbáran er að það sé óþægilegt að nota kústinn við að sópa ofan af þökum og vélarhlífum, en eins og sést af mynd af kústinum uppi á þaki Suzuki Alto, er skaftið nógu langt til þess að hægt er að ýta snjó af þakinu þvert yfir það og láta hann detta ofan af bílnum hinum megin við hann.
Ætla að skutla nokkrum ljósmyndum frá mokstri við þrjá bíla í dag, sem tók enga stund, en hefði verið margfalt seinlegra með íssköfum einum.
Að sjálfsögðu er ísskafa af stærri gerðinni höfð við hendina ásamt kústinum, en oftast er hægt að skafa hrím af gluggum með því að snúa kústhausnum á hvolf.
Auðvitað hafa kústarnir sínar takmarkanir gagnvart mismunandi aðstæður, svo sem þegar moka þarf þungan snjó.
Einn af kostum kústa er sá að þeir fara betur með bök bakveikra en skóflur.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.