15.6.2023 | 13:52
Sauðárflugvöllur bættist við í 24 stiga hita í morgun.
Hér er framhald af myndskreyttum bloggpistli í morgun um hitabylgjuna á hálendinu og alþjóðlega umferð á BISA Sauðarflugvelli international airport sem hófst í morgun með lendingu tveggja hreyfla Twin Otter flugvélar með þrettán manns innanborðs, sem er í Íslandsferð, komin frá Stokkhólmi með viðkomu á Höfn í Hornafirði og Mývatni.
Yfir Sauðárflugvelli stukku tólf fallhlífarstökkvarar út og tóku myndir, sem settar verða hér inn, meðal annars af stökki eins þeirra í ferðinni.
Flugvélin er í eigu Íslendinga erlendis, aðallega í Stokkhólmi, og kom þaðan. Í tólf ára sögu Sauðárflugvllar international airport með alþjóðlega einkennistákninu BISA er þetta stærsta flugvélin, sem hefur lent þar, að áður hafa Fokker 50 og Boeing 757 gert aðflug að vellinum án þess að lenda.
Neysla ferðamanna jókst um 80% á milli ára | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.