Undirrótin svipuð og á Ólympíuleikunum 1972 en umfangið margfalt.

Palestínumenn hafa orðið að lifa við það að vera hernumin þjóð í 56 ár, og þegar fimm árum síðar var óþol þeirra orðið slíkt að þeir komu allri heimsbyggðinn óþyrmilega á óvart á Ólympíuleikunum í Munchen með að ráðast inn í búðir Ísraelsmanna á leikunum og taka þar gísla. 

Vestur-Þjóðverjar hðfðu lagt sig í líma við að ljá leikunum sem friðsamlegast yfirbragð í góðri trú, reyndust fyrir bragðið herfilega illa undir þetta búnir, svo að mannfallið varð miklu meira en ella. 

Eftir ellefu sinnum lengra hernám eru Palestínumenn orðnir enn hatursfyllri en nokkru sinni fyrr við það að horfa upp á stóraukin vðld harðtrúarmanna, aukna sókn í að auka svokallaðar "landnemabyggðir" og sækja í að minnka lýðræði í átt til harðstjórnar. 

Þar á ofan hafa þeir orðið að horfa á Ísraelsmenn komast upp með það að brjóta sáttmála og ályktanir Sameinuðu þjóðanna. með hernámi Vesturbakkans.  

Aðgerðir Palestínumanna núna eru margfaldar að mannfalli og eyðileggingu miðað við atburðina 1972, og þær koma enn meira á óvart að umfangi og hörku sem yfirgengur allt það sem á undan hefur gengið. 


mbl.is „Þetta á eftir að stigmagnast“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú hafa nokkrir þungir álitsgjafar tjáð sig um þetta. 

Þeir kippa sér lítið upp við nauðganir, barnsrán og morð hinir oföldu Sveinn Hamaslæknir, Stefán VgNatoneijá og Egill Helga(rpóstshlunkur).

ollibolli (IP-tala skráð) 9.10.2023 kl. 17:19

2 identicon

Og svo er það Pol Pot Heiðdal sem stendur nú með fjöldamorðum á saklausu fólki.  Svo sem ekkert nýtt hjá honum.  Hann var líka svag fyrir Maó.  Hefði sjálfsagt staðið með þeim báðum, Hitler og Stalín hefði hann verið fæddur nógu snemma.  Þvílíkur blóðlosti.

ollibolli (IP-tala skráð) 9.10.2023 kl. 17:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband