Fleiri dæmi um ofríki Bílastæðisjóðs. Hægt að fjarlægja þúsundir bíla!

Bílastæðasjóður á að vera þjónn borgaranna en ekki andstæðingur sem teldi það höfuðhlutverk sitt að beita valdi sínu sem freklegast. Eða það hefði maður haldið. 

Síðuhafi hefur tvívegis lent í svipuðum aðstæðum og greint er frá í viðtengdri frétt á mbl.is. 

Í fyrra skiptið hafði miðinn í glugganum fokið til á mælaborðinu vegna hvassviðris þannig að erfitt var að lesa á hann utan frá, en þegar að var komið var kominn stöðumælavörður, sem var byrjaður á skrifa á sektarmiða, þótt miðinn inn sýndi, að ennþá voru meira en 20 mínútur eftir af borgaða tímanum. 

Vörðurinn harðneitaði að taka þessi óræku sönnunargögn til greina og málið endaði á þeirri ofríkislúkningu að engu varð um þokað.RAF stæði v. Austurvöll. 

Hitt málið tengdist setningu nýrrar lagaumgjðrðar vegna skyldu fjölbýlishúsaeigenda til að sjá um uppsetningu sem tryggði aðgengi íbúa að rafmagni fyrir rafknúna bíla.  

Þótt fáum sé það kunnugt er hægt að kaupa rafbíla sem eru aðeins tveggja sæta og aðeins með möguleika á að nýta heimilisrafmagn með minna en tíu ampera straumi. Smæð þessara bíla og einfaldleiki er grunnurinn að lágu verði þeirra og ódýrum rekstri. 

Í ljós kom við athugun að ótrúlega einfalt og ódýrt var að skapa aðgengi fyrir litla rafbílinn inni á litlum stalli sem var innan við gangstéttina meðfram blokkinni á eignarlóð blokkarinnar. Fyrir hreina tilviljun var passaði stallurinn nákvæmlega fyrir bílinn. 

Þegar bíllinn stóð þar, losaði hann um bílastæði við húsið þar sem hægt var að hafa annan bíl í staðinn. 

Nú hefði maður haldið að það hefði verið almannahagur að leysa þetta mál á ótrúlega hagkvæman hátt. Stjórn húseigendanna tók þessu vel og lausnin virtist blasa við. 

En það var nú öðru nær. 

Fyrr en varði var kominn ellefu þúsund króna sekt á bilinn. 

Ný umferðalög voru öll túlkuð á ótrúlegan hátt sem gaf Bílastæðasjóði algert sjálfdæmi í málinu að sðgn talsmanna hans. 

Skyldi ég hafa mig hægan, því að samkvæmt nýju umferðarlðgunum, hefði Bílastæðasjóður heimild til að láta fjarlægja bílinn með lögregluvaldi á nóttu sem degi og gera hann upptækan! 

Talsmenn sjóðsins upplýstu glaðhlakkalegir að nýju lögin heimiluðu að alla bíla, sem stæðu utan við bílskúra mæetti meðhöndla á þennan hátt hvenær sem væri! 


mbl.is Bílastæðasjóður gaf út sektir á einkalóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Fáranleikinn tekur á sig ýmsar myndir. Eins og þá að sekta fyrir að leggja of nálægt gatnamótum sem voru lokuð vegna viðhaldsframkvæmda. Bílnum lagt handan við steinblokk með háu skilti sem afmarkaði framkvæmdasvæðið og skyggði örugglega meira á útsýni að lokuðu gatnamótunum en bíllinn. Eigandi skiltisins var ekki sektaður fyrir þann sama verknað.

Guðmundur Ásgeirsson, 1.12.2023 kl. 19:06

2 Smámynd: Rafn Haraldur Sigurðsson

Svo geta rafskúturnar legið hingað og þangað um allar koppagrundir, fyrir hunda og katta fótum án nokkurra sekta. 

Rafn Haraldur Sigurðsson, 2.12.2023 kl. 08:30

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ómar hvað ég sakna þín úr fjölmiðlum. Gott innlegg. Auðvitað á bíllinn ekki að vera besti vinur okkar, en heldur ekki óvinur. Auðvitað þarf að bæta almenningssamgögnur t.d. strætó, en það þarf ekki að gerast þannig að ekkert ungt fólk geti eignast íbúð, nema að eiga ríka foreldra. 

Sigurður Þorsteinsson, 2.12.2023 kl. 10:40

4 identicon

Það er þvæla að bílastæðasjóður sekti fyrir bíla sem standa á einkalóð enda er engin heimild til þess. Bílastæðasjóður sektar eingöngu vegna gjaldskyldra stæða og engin gjaldskyld stæði eru á einkalóð. Hins vegar gæti lögregla beitt sektum ef talið er að bílum á einkaeign er lagt með þeim hætti að af þeim gæti stafað hætta.

Bjarni (IP-tala skráð) 2.12.2023 kl. 16:38

5 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Víst er Bílastæðasjóður búinn að sekta Pálma Gestsson fyir bíl hans, sem stóð á einkalóð, og sekta bíl minn, sem stóð á einkalóð, og lét mig vita það með að hann hefði reglugerðarheimild til að láta fjarlægja og gera eftir geðþótta sínum þúsundir bíla, sem stæðu við bílskúrsdyr í borginni. 

Ómar Ragnarsson, 2.12.2023 kl. 17:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband