Lausnarmiðað og vant fólk ætti að geta leyst þetta mál.

Mál Svandísar Svavarsdóttur sýnist mörgum snúið, en nú, þegar öll atriðði þess koma betur fram, ætti fjarvera ráðherra á samskipta- og fjarskiptaöld ekki að verða að afsökun fyrir því fyrir lausanamiðaða og sjóaða stjórnmálamenn að sigla því í höfn eins og gert hefur verið áður. 

Kristján Loftsson var búinn að draga lappirnar lengi og nánast stefna í þær ógöngur sem gerði ráðherra illmögulegt að komast hjá því að gera upphaflegu ákvörðun sína fyrirsjáanlega.

Afleiðingin varð einstaklega klaufalegt mál, sem vefst fyrir aðilum þess.  


mbl.is Guðlaugur Þór staðgengill í fjarveru Katrínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hvað er eiginlega "SNÚIÐ" við þetta mál?  Hún BRAUT LÖG með aðgerðum sínum og meira að segja STJÓRNARSKRÁNA og svo er verið "klína" hlutunum á Kristján Loftsson og þannig að gera brot Svandísar eitthvað minni...... 

Jóhann Elíasson, 10.1.2024 kl. 09:43

2 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Ég sé marga skrifa, hún braut lög, hún braut lög. Ég sé ekki betur en að enginn dómur hafi fallið, aðeins fullyrðingar. 

Svo virðist sem ekki hafi náðst að drepa dýrin nema að dauðastríðið hafi staðið lengur en lög segja til um.  

Auðvitað fær fyrirtækið skaðabætur eins og réttlátt getur verið. 

Þjóðirnar eru að færa sig frá þeirri heimsku að nota 30 manna mata daga af korni til að fá einn manna mata dag af nautakjöti. 

Nú á fyrirtækið að snúa sér á fulla ferð í að rækta þörunga og þá að finna aðferðir til þess. 

Einnig í að láta runna bera fiskibollur og kjötbollur svona 12 sinnum á ári. 

Skapararnir leita lausna og finna. 

Ég hef skrifað að garðyrkju skólarnir ættu að vinna við að búa til nytja jurtir með aðstoð háskólana. 

Allir geri góðar hugmyndir að veruleika. 

Einhvern tíma nefndi ég að það ætti búa til plast rollur, hreindýr og laxa til að einhverjir geti sprett sig við að elta. 

Núverandi fárbændur fái greitt fyrir að vera varðveislu menn jarðana. 

Takið eftir að engin fjölmiðill talar um að núna einu sinni en eru fjármáls fyrirtækin að hirða íbúðirnar til handa svokölluðum eigendum bankana. 

Auðvitað vitum við að þetta upphlaup gagnvart Ráðfrúnni er til að við gleymum að fjármálakerfið er að færa til sín eignirnar, í búðir fólksins. 

Bankinn á ekkert í húsinu og á enga vextu að fá, hann lánar ekki neitt. 

Þú manst, bankinn skrifar aðeins tölurnar í bókhaldið hjá sér.

Egilsstaðir, 10.01.2024   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 10.1.2024 kl. 15:47

3 identicon

Ríkisstjórnin í heild ber ábyrgð á þessu máli og hún hlýtur að leysa úr

því  án afskifta annara. 

magnús marísson (IP-tala skráð) 10.1.2024 kl. 16:45

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þetta er eins einfalt mál og það getur verið: hún braut lög, gerði það viljandi, og olli þar með miklu tjóni fyrir marga.

Það á að reka hana.  Helst úr landi.  Mér skilst að það sé hlýtt á Gaza núna.

Ásgrímur Hartmannsson, 10.1.2024 kl. 18:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband