Íslenska malarvegakerfið veldur milljarða króna tjóni á hverju ári.

MR 60 argangurinn hefur haldið hópinn í gegnum tíðina. Bekkjarráðið frá 1960 havfði æviráðningu og sér til dæmis um það að farnar eru tvær hópferðir árlega frá Reykjavík, jafnvvel allt vestur á firði. Sönghópurinn MR60 var stofnaður fyrir 30 árum og ellefu úr hópnum söng stúdentasönginn "Svalt að vera stúdentar" inn á disk á 60 ára stúdentsafmælinu 2020 sem skólinn fékk til eignar.

Í hópferð í stórri og glæsilegri rútu af fullkominni gerð um Suðurland í fyrradag kom hins vegar glöggt í ljós ótrúleg plága sem felst í hinu hræðilega vegakerfi landsins. 

Nýjustu rúturnar eru margar með afar fullkominn fjöðrunarbúnað sem virkar alveg yndislega á alla lund, en það breytist á hinn versta veg þegar aka þarf malarvegina. 

Þá snarfellur hraðinn, sem rúturnar þola, niður í það að verða allt niður í gönguhhraða. 

Ástæðan er í meginatriðum sú að malarvegir með holum sínum og þvottabrettum hafa svo ónothæf þolmörk fyrir sveiflutíðni vegarvins, að rútan hristist, skelfur og glamrar svo að ekki er neinum bjóðandi. 

Á tugum kílómetra verður að lötra á gönguhraða ef komast á hjá því að hrista bílinn í sundur. 

ÞETTA ER ÓÞOLANDI ÁSTAND, SEM KOSTAR ÞJÓÐINA MILLJARÐA KRÓNA VEGNA TAFA OG TJÓNS, AUK TJÓNSINS, SEM ILLRÆMt ORÐSPOR VELDUR. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef ekið í gegnum Albaníu, sem er annað tveggja fátækustu ríkja Evrópu. Á 3 dögum fann ég ekki einn einasta malarveg.

Það er galið að leggja ekki bundið slitlag á alla þjóðvegi. Það þarf ekki að endurbyggja þá alla frá grunni eftir ströngustu stöðlum.

Stefán (IP-tala skráð) 27.6.2024 kl. 08:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband