Það sem gerir fótboltann einstakan: Hið óútreiknanlega og stórbrotna drama.

Stutt yfirlit yfir leik Englands og Slóvakíu í dag. Slóvakar miklu betri og samfélagsmiðlarnir loga af skömmum og hneykslan yfir ömurlegri frammistöðu Tjallanna, einkum þó Benningham og Benningham og Harry Kane.  

Slóvakar skora fljótlega og það stefnir í beiskan ósigur Englendinga. Síðuskrifari stórsér eftir því að hafa látið plata sig til að eyða tímanum í svona hörmung. 

En þá, þegar komið er að lokamínútunni og svekkelsið í botni, berst boltinn eitt örskots augnablik öfugu megin að Benningham ræflinum, sem snýr baki í markið, en kestar sér snarpt aftur á bak og framkvæmir það sem verður sennilega kallað mark þessa EM móts!

Allt í einu er staðan jöfn í leiknum og framlenging leiksins byrjar með því að Harry Kane kemur svífandi utan úr teignum og skorar snilldar sigurmark!

Allt hefur snúist á hvolf. Benningham og Kane eru hetjur og 95 mínútna svekkelsi hefur breyst einhverja bestu skemmtann sem hugsanleg er.   


mbl.is Englendingar áfram eftir ótrúlegan leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rafn Haraldur Sigurðsson

Ertu ekki að meina  Bellingham?

Rafn Haraldur Sigurðsson, 30.6.2024 kl. 21:42

2 identicon

Aldrei skilið af hverju svo margir íslendingar halda með englandi.  Eru ekki 4 eða 5 þorskastrið ekki næg ástæða til að halda ekki með þessu þrælahöldurum.  Bætum við hryðjuverkalögunum.  Ef það dugar ekki til má nefna að ekkert lið spilar jafn leiðinlegan fótbolta og england.

 Svo lengi em ég man hef ég haldið með andstæðingum englands, og hefur ekki skipt máli hverjir þeir eru.

Bjarni (IP-tala skráð) 30.6.2024 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og fimm?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband