HVEITIBRAUÐSDAGAR Í BIRTU OG YL.

Heyrði álengdar að nýja ríkisstjórnin nyti fylgis 83ja prósenta aðspurðra í Capacent Gallup könnun og fylgdi með að þetta væri met. Metið miðast að vísu við tímabilið frá 1992 en ríkisstjórnirnar 1992-2007 höfðu samanlagt hvergi nærri jafn mikið fylgi í kosningum og núverandi ríkisstjórn. Það er þekkt fyrirbæri eftir myndun ríkisstjórna að þær njóta góðs byrs í fyrstu líkt og brúðhjón á hveitibrauðsdögum.

Í stjórnarsáttmálanum eru ýmis fögur fyrirheit sem að vísu eru langflest eins og óútfyllt víxileyðublöð en undirskriftirnar líta ágætlega út á pappírnum.

Á þessum árstíma eru flestir komnir í "ég fer í fríið"-sumarskap og allt er í góðu, - að vísu vofir yfir erfið ákvörðun um þorskkvótann en ekkert hefur gerst ákveðið enn.

Það er birta og ylur yfir landinu, - fólk er ekki í skapi til að argast út í parið sem fór heim af kosningaballinu og hefur látið pússa sig saman.  

Það verður ekki fyrr en í haust sem hið raunverulega ástand fer að skýrast.

Maður hefur á tilfinningunni að Samfylkingin hafi lagt upp með það að þrátt fyrir að stóriðjufréttirnar dynji yfir nánast daglega verði hægt að fresta lokaákvörðunum um virkjanir fram í hálft kjörtímabilið og setja kíkinn fyrir blinda augað á meðan.

Eftir tvö ár: "Den tid, den sorg."

Við sjáum hvað setur. Þrátt fyrir loforðin fögru er enn ekkert fast í hendi um það að stóriðjuhraðlestin hafi hægt neitt á sér.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Lestin brunar enn hraðar nú en áður. Forstjóri Alcan gengur um og lýsir yfir hvað hann ætli sér svona hér og þar. Og ríkisstjórnin þegir. Fagra Ísland hefur aldrei verið annað en rammfölsk dula. Við skulum vera óþreytandi í baráttunni gegn stóriðjustefnunni. Við fáum ekki betri vexti af nokkurri fjárfestingu annari en að bíða með virkjunarframkvæmdir. Orkuverð í heiminum mun hækka ört á næstu árum. Gott fyrir þjóðina að eiga menn eins og þig Ómar.

Sigurður Sveinsson, 1.7.2007 kl. 03:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband