ÓHÁÐA RANNSÓKN Á ALLT FERLIÐ !

Grímseyjarferjuhneykslið er ekki það fyrsta í íslenskri samgöngusögu og þetta er ekki í fyrsta skipti sem er ákveðin lykt af slæmum áhrifum pólitískra afskipta af málinu, - ekki bara um að kenna ráðgjöf eins manns. Þetta minnir á það þegar ákveðið var á sínum tíma að smíða flóabátinn Baldur hér heima til að efla innlenda skipasmíði í kjördæminu og útkoman varð of dýrt, of þungt, of hægfara, eyðslufrekt og djúprist skip sem kallaði á dýrari hafnarframkvæmdir við Brjánslæk en reiknað hafði verið með.

En menn eiga greinilega erfitt með að læra af mistökum fortíðarinnar og hafa því búið til margfalt verra mál.

Í fljótu bragði virðist sem Grímseyjarferjumálið angi af ýmis konar afskiptum sem stönguðust á og undu upp á sig í einu stærsta vandaræðamáli síðari ára á þessum vettvangi.

Þetta mál kallar á umfjöllun óháðra utanaðkomandi aðila sem fara ekki aðeins yfir þátt Vegagerðarinnar og ráðgjafa hennar í málinu, heldur þann þátt sem stjórnmálamenn í héraði og á landsvísu áttu í því að búa til þann óskapnað sem hér er á ferð. 

Gott ef þarf ekki að leita út fyrir landsteinana að þeim sem geti tekið þetta mál almennilega fyrir, - í hinu litla samfélagi hér heima þar sem allir tengjast öllum er líklega illgerlegt að hreinsa hér almennilega til svo að hægt sé að læra af því fyrir framtíðina.


mbl.is Segir samgönguráðherra gera sig að blóraböggli í málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Því miður er svo komið að margir hljóta að velta því fyrir sér hvort nokkur óháður aðili sé finnanlegur hér á landi til að fara yfir þetta mál.

Allar fréttir af þessu ferjuslysi eru nánast vísbending um að einhver eða einhverjir hafi hagnast á kostnað ríkisins og þar með skattborgurum þessa lands.- Og hagnast vel.

Óburðugur ryðkláfur, varla haffær og dæmigert fljótandi brotajárn sem reka varð tappa í botninn á svo héldist á floti!!!!!

Aðeins eitt er ljóst í þessu máli: Enginn embættismaður mun segja af sér. Þetta er nefnilega íslenskt fjármálahneyksli.

Árni Gunnarsson, 14.8.2007 kl. 22:35

2 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Ómar það virðist ekki breyta miklu hverjir eru við völd hverju sinni því ég man ekki betur en að Steingrímur J hafi verið samgönguráðherra þegar var ákveðið með smíði Herjólfs og hann stytti skipið um tíu metra svo slippstöðin á Akureyri gæti gert tilboð í smíðina og hvað svo jú Herjólfur varð of lítill strax og er enn. Hanna Birna þú hittir naglann á höfuðið og það margoft.

Helgi Þór Gunnarsson, 14.8.2007 kl. 22:42

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Heiðarleg framganga vegamálastjóra í Kastljósi í gærkvöldi ýtir á það að ekki verði látið við það sitja að hann einn og hans aðstoðarmenn og ráðgjafi axli einir ábyrgð af þessu klúðri.

Ómar Ragnarsson, 15.8.2007 kl. 12:32

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Vegamálastjóri ber einn ábyrgð í þesu máli og ef hann hefur orðið fyrir pólitískum þrýstingi þá er hann greinilega ekki maður til að höndla það.

Gunnar Th. Gunnarsson, 17.8.2007 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband