18.9.2007 | 11:38
VIÐ ELSKUM ÞIG, KRISTJÁN!
Það eru góðar fréttir að undirtektir hafi verið afar góðar á tónleikum Kristjáns Jóhannssonar á Akureyri þar sem forsetafrúin var ófeimin við að sýna hrifningu sína. Hallgrímskirkjumálið frá því fyrir tveimur árum er þá vonandi grafið og gleymt enda var þar um að ræða klaufaskap í yfirlýsingum sem getur komið fyrir alla menn. Í því máli hafði Kristján talsvert til síns máls og þess þarf að minnast.
Það sem mestu skiptir er hjartalag Kristjáns sem ævinlega er bundið æskustöðvum hans, landi og þjóð. Kristján er hreinskinari en flestir menn og kemur til dyranna eins og hann er klæddur, stór í sniðum þótt ekki sé hann hávaxinn. Sami gamli góði litríki og fjörmikli Konnarinn skín í heiði þótt það komi fyrir að einstaka skúradropar detti.
Undir gustmiklu yfirborði býr afar hlýr persónuleiki sem yndislegt er að hafa fengið að kynnast.
Stundum er sagt um suma menn að menn annaðhvort elski þá eða hati þá. Þetta á oft við um mikla listamenn og þá sem eru stórir í sniðum. Ég held að þeir sem hata segi meira um sjálfa sig en þá sem þeir hata. Kristján Jóhannsson hefur lífgað upp íslenskt menningarlíf og þjóðfélag í aldarfjórðung á einstakan hátt.
Lítið þjóðfélag eins og Ísland þarf á slíkum mönnum að halda og Kristján á að mínum dómi ekkert annað skilið en að vera elskaður, þótt hann sé ekki gallalaus fremur en aðrir menn. Ég vona að sem flestir geti tekið undir með mér þegar ég segi við þennan stórbrotna listamann: Við elskum þig, Kristján!
Frábærar undirtektir á tónleikum Kristjáns: "Ég elska þig, mamma" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála þér Ómar.
Þorleifur Ágústsson, 18.9.2007 kl. 16:22
Gott hjá þér Ómar að minna okkur á hverju skal gleyma.
Ég skal muna það.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 18.9.2007 kl. 19:49
Tek heilshugar undir :)
Steini Thorst, 18.9.2007 kl. 23:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.