POPPLAG Í D-DÚR, ENGIN LEIÐ AÐ HÆTTA.

Stuðmenn sungu um það að engin leið væri að hætta í popplagi í G-dúr. Nú syngja stuðmenn íslenskra stjórnmála popplag í D-dúr og það er engin leið að hætta að ráða trekk í trekk "innvígða og innmúraða" í helstu embætti íslenska dómskerfisins. Með þessu er ekki sagt að það sé einhlítt að umsagnaraðilar hafi ávallt rétt fyrir sér um mismikla hæfni umsækjenda og þess vegna kann vel að vera að Þorsteinn Davíðsson muni reynast jafn vel í embætti og til dæmis hinn umdeildi og óreyndi Pálmi Hannesson eftir að hann var ráðinn rektor Menntaskólans í Reykjavík og í ljós kom í áranna rás að hann gegndi starfinu af mikilli reisn og virðingu. 

Þegar það er hins vegar farið að nálgast reglu að þegar hinir innvígðu sækja um séu þeir teknir fram yfir aðra, sem umsagnaraðilar telja hæfasta, er hverjum þeirra sem um sig, sem ráðnir eru, enginn greiði gerður með svona háttalagi, nú síðast Þorsteini Davíðssyni.

Hér á árum áður voru nánast allir sýslumenn landsins og dómarar úr helmingaskiptaflokkunum Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki. Ævinlega var hægt að benda á að hver þeirra væri hæfur til starfans en það var vafalaust líka hægt að gera í Sovétríkjunum þar sem aðeins voru ráðnir menn sem voru "innvígðir" félagar í kommúnistaflokknum.

Að því leyti til var íslenska kerfið verra en það sovéska að þar í landi var ekkert verið að fela það að aðeins félagar í kommúnistaflokknum gátu fengið embætti. Það var bundið í lög í landinu þar sem allir áttu að vera jafnir en í ljós kom að sumir voru svo miklu jafnari en aðrir að á endanum molnaði þetta kerfi innan frá.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sómafólk, allt það fólk.

Steini Briem (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 22:04

2 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

já annað hvort á að sleppa matsnefndum eða taka þær alvarlega...þetta gengur ekki!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.12.2007 kl. 22:13

3 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Nú er það bara gleðileg jól ágæti bloggvinur

Valgerður Halldórsdóttir, 21.12.2007 kl. 22:31

4 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

já......GLEÐILEG JÓL og takk fyrir frábæra pistla á árinu!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.12.2007 kl. 22:36

5 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Bjarni...segjum að Dómnefndin hafi rett fyrir sér....hefdur þú að Árni "hetja" víki???

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.12.2007 kl. 23:13

6 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Bjarni , ég er þér alveg sammála.  ER handviss um að ÞorsteinnDavíðsson er besti drengur, en ég veit af minni reynslu sem dóttir innflytjenda að ég hefði ALDREI verið ráðin af fjármála-dómsmálaráðherra ...sem 4-5 hæfasti umsækjandi! 

Þetta er bjarnargreiði góðum dreng!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 22.12.2007 kl. 00:11

7 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

HALLÓ! ... við búum á Íslandi :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 22.12.2007 kl. 00:28

8 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

vil líka taka fram að Þorsteinn Davíðsson á ekki, aldrei að GJALDA ÞESS að vera sonur föður síns...frekar en ég að vera dóttir föður míns

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 22.12.2007 kl. 00:47

9 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þetta er rétt hjá þér, Anna, að fólk á HVORKI að gjalda þess né njóta hverra manna það er, heldur að vera metið af eigin verðleikum. Ég er í pistli mínum eingöngu að gagnrýna það heildardæmi að í öll þau skipti sem einhver innvígður sækir um er stöðuveitingin þeim hinum sama í vil.

Þú orðar það svo að þetta sé bjarnargreiði góðum dreng og ekki efa ég það að Þorsteinn er drengur góður eins og hann á svo sannarlega kyn til. Hann geldur þess nú hvernig stöðuveitingarnar hafa verið til þessa en málið hefði horft öðruvísi við ef í bara eitt skipti af þessum fyrri skiptum hefði ekki verið valinn sá innvígði.

Ómar Ragnarsson, 22.12.2007 kl. 01:04

10 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

já svona sé ég það og er alin upp við Ómar! Þetta er góðum dreng bjarnargreiði?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 22.12.2007 kl. 01:10

11 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Gleðileg jól og takk fyrir skemmtilegt bloggár :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 22.12.2007 kl. 01:22

12 identicon

Málið snýst ekkert um innræti Þorsteins Davíðssonar. Hér er  blasir einfaldlega við SPILLING.

Rómverji (IP-tala skráð) 24.12.2007 kl. 01:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband