"HÚN VAR GÓÐ, SKATAN!"

Faðir minn heitinn var í sveit í Hrafnadal í Strandasýslu. Þetta er eyðidalur sem gengur upp í heiðina fyrir vestan norðanverðan Hrútaförð. Þá var dalurinn afskekktur og frumstætt lífið þar, menn átu sterk reykt og saltað árið um kring. Sigurður bóndi varð slæmur í maga fyrir bragðið og þurfti að fara til Reykjavíkur í fyrsta sinn á ævinni til að láta lækna líta á sig. Þetta var á byrjunarstigi og karlinn tók fljótt við sér og varð hinn hressasti.

Pabbi bauð honum í flugtúr yfir borgina í lítilli fjögurra sæta vatnaflugvél af gerðinni Seebee og þetta varð jafnframt minn fyrsti flugtúr, en ég var átta ára. Þegar heim kom buðu foreldrar mínir upp á skötu. Karlinn hafði aldrei etið skötu fyrr og var tregur til, fannst lyktin ekki aðlaðandi. Á endanum lét hann til leiðast og smakkaði á. Er skemmst frá því að segja að honum líkaði stórvel. "Hún ER góð, skatan!," hvein í honum og hann endurtók þetta aftur og aftur en breytti því í "hún VAR góð, skatan" næstu daga á eftir. 

Hann þurfti tvívegis síðar að koma til Reykjavíkur til lækninga og fór með okkur í leikhús í fyrsta sinn. Hann heilsaði foreldrum mínum með orðunum: "Hún VAR góð, skatan!" Hann gat ekki gleymt henni, - flugtúr og leikhúsferð gátu ekki toppað skötuna.

Þegar magakrabbinn sótti á að lokum og hann lagðist banaleguna á Landakotsspítala fór ég einu sinni með pabba að heimsækja hann. Hann átti skammt eftir, það var hörmung að sjá hann þar sem hann lá í móki. Hann leit þó upp þegar pabbi heilsaði honum.  

Þegar hann sá okkur feðgana færðist bros yfir andlitið þegar hann stundi lágt: "Hún VAR góð, skatan."

Á hverri Þorláksmessu minnist ég hins ógleymanlega bónda úr afdalnum og segi við sjálfan mig: "Hún VAR góð, skatan!  Og hún ER ennþá góð, hvað sem hver segir af því að Sigurður heitnum í Hrafnadal fannst hún góð.  

Gleðilega Þorláksmessu.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Karl Tómasson

Já hún er góð skatan og þessi saga hjá þér einnig.

Þá veit maður hvaðan þú fékkst flugdelluna og hvað þú varst gamall þegar ekki var aftur snúið.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó. 

Karl Tómasson, 23.12.2007 kl. 12:34

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Góð saga Ómar og ég óska þér gleðilegra jóla og  farsæls komandi bloggárs. Takk fyrir bloggárið sem senn er liðið

Kveðja frá Reyðarfirði

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.12.2007 kl. 17:49

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ps. Bið að heilsa Skara og Ninnu, mínum gömlu vinum, langt síðan ég hef séð þau.

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.12.2007 kl. 17:53

4 identicon

Já gott fólk, skatan ER góð og gott er líka að minnast þess að mannlífið hér á landi var ekki síður skrautlegt og gott til sveita í denn þó dalirnir leggist í eyði einn af öðrum. Heill sé þér Ómar og takk fyrir söguna.

Hjörleifur.

Hjörleifur Stefánsson (IP-tala skráð) 23.12.2007 kl. 20:36

5 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Fór alltaf í skötu til pabba heitins, en hef ekki etið slíkt hin síðari ár. Fannst hún, lítið kæst, ágæt sem 10% stöppuð við saltfisk. Alltént varð saltarinn betri við að vera soðinn með skötunni.

Fékk ekki Sigurður bóndi bara magakrabbann af skötuátinu?

Brjánn Guðjónsson, 24.12.2007 kl. 04:00

6 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Gleðileg jól Ómar!  þakka pistlana. kv. B

Baldur Kristjánsson, 24.12.2007 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband