19.5.2009 | 15:02
Rétt val.
Það kann að vera að heimsklassafótbolti dragi að fleiri áhorfendur og auglýsingar en Smáþjóðaleikarnir. Á móti kemur að fjölmargt íslenskt íþróttafólk keppir á smáþjóðleikunum.
Ein þjóðanna er Malta sem gaf Jóhönnu Guðrúnu tólf stig.
Fyrir íslenska sjónvarpsneytendur er mikilvægt að stöðvarnar hafi þjóðina í heild í huga þegar efni er valið og dagsrkáin sett upp.
Á Smáþjóðaleikunum eigast við þjóðir sem eru að mestu jafningjar hvað snertir mannfjölda og það er uppörvandi fyrir okkur í kreppunni að sinna slíkum viðburði.
Rúv valdi Smáþjóðaleikana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Heyr, heyr
Anna Guðný , 19.5.2009 kl. 15:13
Álfumótið í knattspyrnu... hvað er það ??
En smáþjóðaleikarnir eru svosem ok :)
Óskar Þorkelsson, 19.5.2009 kl. 17:52
Álfamótið í knattspyrnu og Dvergaleikarnir á þetta að vera, Skari minn.
Þorsteinn Briem, 19.5.2009 kl. 19:13
Ég er sammála þessari ákvörðun RÚV.
Ég vil líka segja, til hamingju með Láru og bókina hennar, ég finn ekki blogg hjá henni svo ég sendi ykkur feðginum kveðju hér, ég vissi ekki að hún væri að koma með bók, en einmitt Lára Ómarsdóttir átti að skrifa svona bók - ég kaupi þessa bók.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 19.5.2009 kl. 23:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.