19.8.2009 | 23:50
Kveðja til gamals skólafélaga.
Þó að um þig standi styrr /
styrk þér veiti Drottinn. /
Haltu áfram eins og fyrr /
ekki af baki dottinn.
Ólafur Ragnar slasaðist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.8.2009 | 23:50
Þó að um þig standi styrr /
styrk þér veiti Drottinn. /
Haltu áfram eins og fyrr /
ekki af baki dottinn.
Ólafur Ragnar slasaðist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Góður, maðurinn ætti bara að halda sig við rugguhest !
Haukur (IP-tala skráð) 20.8.2009 kl. 01:38
Flott hjá þér að biðja EKKERT um að veita honum styrk... þú veist, það sama og Geir Haarde bað að blessa Ísland ;)
DoctorE (IP-tala skráð) 20.8.2009 kl. 09:29
þetta kennir honum vonandi að leika sér ekki að matnum
Brjánn Guðjónsson, 20.8.2009 kl. 09:36
Heyrðu Ómar, átti síðasta línan í vísunni ekki örugglega að vera,
- enn af baki dottinn. -
Jón P. Líndal. (IP-tala skráð) 20.8.2009 kl. 13:05
Síðasta línan hefði svo sem getað orðið í hálfkæringi - "enn af baki dottinn" - en hugsun mín er nú sú að forsetinn leggi ekki árar í bát heldur stefni ótrauður að því að jafna sig af meiðslum sínum og njóta aftur kosta íslenska hestsins.
Þessi bylta tilheyrir fortíðinni og framundan er að lifa lífinu án uppgjafar, og njóta þess að vera "ekki af baki dottinn" meðan það framtíðarástand varir.
Ómar Ragnarsson, 20.8.2009 kl. 18:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.