Hvað þarf að aðvara mikið og oft?

Veðurstofan hefur gefið út stanslausar aðvaranir vegna hvassviðris í dag og gerir enn.

Ökumenn hafa getað séð á skiltum beggja vegna misvindasamra kafla undir Hafnarfjalli, Esju og Ingólfsfjalli hve hvasst er og hvað stærstu hviðurnar eru sterkar.

Ekki vantar heldur aðvaranir varðandi vegi undir fjöllum á Snæfellsnesi og annars staðar þar sem vindur stendur af fjöllum.

Samt fjúka aftanívagnar, kerrur og hjólhýsi útaf veginum og í frásögnum er ævinlega talað um "óhöpp." Þetta eru engin óhöpp. Þetta eru hrein sjálfskaparvíti á ábyrgð ökumanna.

Hvað þarf að aðvara mikið til þess að þetta fari að breytast eitthvað ?


mbl.is Hestakerra valt við Kjalarnes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

algerlega sammála þessu !!

Óskar Þorkelsson, 24.8.2009 kl. 21:30

2 identicon

Sammála nema um Ingólfsfjall. Hvar eru þessar viðvaranir við Ingólfsfjall?

Sverrir (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 21:37

3 Smámynd: Pétur Kristinsson

Þær voru á útvarpsstöðvunum í dag m.a. Svo er hægt að kíkja á vegagerdin.is og vedur.is. Síðan er alltaf hægt að nota common sense .

Pétur Kristinsson, 24.8.2009 kl. 21:45

4 identicon

Heyrði það Pétur. Það eru hinsvegar engin skilti við Ingólfsfjall. Vindmælingar Vegagerðarinnar sem sjá má á textavarpi gefa því miður ekki rétta mynd af vindhviðum undir Ingólfsfjalli.

Sverrir (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 22:02

5 Smámynd: Pétur Kristinsson

Rétt er það með skiltin. En Ingólfsfjall er fjall og er vegurinn þar undir þekktur fyrir snarpar vindhviður í ákveðnum vindáttum. Veit ekki hversu oft ég hef komið að hestakerrum, fellihýsum og annars konar aftanídrætti utan vega.

Inn á vef vegagerðarinnar má finna þennan link á kortinu þeirra.

http://www.vegagerdin.is/umferd-og-faerd/faerd-og-astand/faerd-og-vedur/faerd-um-allt-land/linurit/st063.html 

Þannig að það er fjallað um Ingólfsfjall þarna.

Pétur Kristinsson, 24.8.2009 kl. 22:14

6 identicon

Íslendingar eru sannlega snillingar, eins og sannast hefur á síðustu og verstu tímum. Við höfum góða verðurþjónustu, sem er öllum aðgengileg. Samt kvartar þessi Óskar um það að viðvaranir vanti við Ingólfsfjall. Halló, eins og að Ingólfsfjall sé frá því í gær. Af hverju nenna menn ekki að ná tökum á veðurfari og veðurspám? Fólk, sem er að þvælast upp um fjöll og fyrnindi á öllum árstímum? Ég sem flugmaður lærði þetta. Fyrir mig voru hættur númmer 1, 2 og 3, veðrið.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 22:46

7 identicon

Áríðandi tilkynning! Loksins finnst Íslendingur með bein í nefinu. 

Hér fyrir neðan má lesa frumvarp að lögum sem að mínu viti er eitt sterkasta útspil sem komið hefur fram eftir bankahrun. Nú þarf að skerpa samstöðuna hver í sínum flokki og setja þrýsting á að þetta frumvarp sofni ekki í allsherjarnefnd heldur verði að lögum. Þetta er þakkarvert framtak þessara þingmanna og gaman til að vita þegar lög um persónukjör fyrir næstu alþingiskosningar getur maður raðað þessum nöfnum ,þessum þingmönnum beint inn á atkvæðalistann.

Með bestu kveðju,

Baldvin Nielsen Reykjanesbæ

Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.

137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 39 — 39. mál.

Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um samningsveð, nr. 75/1997.

Flm.: Lilja Mósesdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Björn Valur Gíslason,

Þór Saari, Birgitta Jónsdóttir, Eygló Harðardóttir.

1. gr.
Við 19. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Lánveitanda sem veitir lántaka lán gegn veði í fasteign sem er ætluð til búsetu samkvæmt ákvörðun skipulags- og byggingaryfirvalda er ekki heimilt að leita fullnustu fyrir kröfu sinni í öðrum verðmætum lántaka en veðinu nema krafa hafi orðið til vegna saknæmra athafna eða meintra brota lántaka á lánareglum. Krafa lánveitanda á lántaka skal falla niður ef andvirði veðsins sem fæst við nauðungarsölu nægir ekki til greiðslu hennar. Með lántaka er átt við einstakling. Með lánveitanda er átt við einstakling, lögaðila eða aðra aðila sem veita fasteignaveðlán í atvinnuskyni.

2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Lögin taka til fasteignaveðlána sem stofnað hefur verið til fyrir og eftir gildistöku laga þessara.

Greinargerð.

Frumvarp þetta er samið í samræmi við samþykkt síðasta landsfundar Vinstri hreyfingarinnar ? græns framboðs. Er lagt til að fasteignaveðlán geti ekki orðið grundvöllur aðfarar í öðrum eignum lántaka en þeim sem veðréttindin taka til en í því felst frávik frá þeirri meginreglu íslensks kröfuréttar að skuldari ábyrgist efndir fjárkröfu með öllum sínum eignum. Jafnframt á lántaki að vera laus undan persónulegri ábyrgð á greiðslu lánsins ef veðið hrekkur ekki til greiðslu þess. Ekki skiptir máli hvort veðsali er lántaki eða þriðji maður.

Lánveitendur geta verið viðskiptabankar, sparisjóðir, Íbúðalánasjóður, lífeyrissjóðir og aðrir aðilar sem veita fasteignalán í atvinnuskyni, þ.m.t. byggingaraðilar. Með fasteignaveðláni er átt við veðlán sem veitt er með veði í fasteign sem ætluð er til búsetu samkvæmt ákvörðun skipulags- og byggingaryfirvalda. Það skilyrði er sett að lántaki sé einstaklingur.

Staða margra íslenskra heimila hefur versnað til muna í kjölfar bankahrunsins sem haft hefur í för með sér hækkun skulda, rýrnun eigna, minni tekjur og skertan lánsfjáraðgang. Fasteignaveðlán vega almennt þyngst í skuldum heimilanna. Við núverandi aðstæður er hætta á að kröfuhafar sækist eftir auknum tryggingum eða geri fjárnám í óveðsettum eignum sem ekki getur talist sanngjarnt þar sem mörg heimili hefðu efnt skuldbindingar sínar undir eðlilegri kringumstæðum. Minna má á að ýmis úrræði hafa verið lögfest sem veita skuldurum færi á að leysa úr greiðsluvanda sínum án þess að til gjaldþrotaskipta þurfi að koma.

Frumvarpinu er ætlað að gilda um fasteignaveðlánasamninga sem þegar hafa verið gerðir og óháð því hvort lánastofnun lýtur eignarhaldi hins opinbera eða einkaaðila.

Með hliðsjón af lögum nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., er ekki gert ráð fyrir að frumvarpið sé í andstöðu við eignarréttarákvæði stjórnarskrár þar sem stærstu lánastofnanirnar eru nú í eigu ríkisins auk þess sem lögin heimila Íbúðalánasjóði að yfirtaka skuldabréf fjármálafyrirtækja sem tryggð eru með veði í íbúðarhúsnæði.

Í lánaframkvæmd Íbúðalánasjóðs er ekki aðhafst frekar við innheimtu kröfu sem glatað hefur veðtryggingu nema sjóðurinn telji að krafa hafi orðið til vegna saknæmra athafna eða meintra brota á lánareglu, sbr. 3. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 119/2003, um meðferð krafna Íbúðalánasjóðs sem glatað hafa veðtryggingu. Skuldarar fá þó ekki fyrirgreiðslu á nýju láni frá sjóðnum fyrr en kröfur sjóðsins á hendur þeim hafa verið greiddar eða þær afskrifaðar, sbr. 4. gr. Frumvarpið gerir eins og áður segir ráð fyrir að krafa lánveitanda sem glatað hefur veðtryggingunni við nauðungarsölu falli niður.

Til lengri tíma litið á frumvarpið að stuðla að vandaðri lánastarfsemi og hvetja til þess að lánveitingar taki mið af greiðslugetu lántaka.

B.N. (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 23:00

8 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég var ónákvæmur um Ingólfsfjall, rétt er það. Hins vegar segja hviður á skiltum fyrir Hellisheiði heilmikla sögu og það er búið að tönnlast stanslaust á aðvörunum varðandi Ingólfsfjall.

Síðan er ein aðferð til að nota farsímann til að átta sig á vindinum: Hringja í 9020600, bíða í tvær mínútur og velja síðan 5, sem er flugveðurlýsing.

Í henni er strax tilgreint um vindinn í 1500 metra hæð, en hann segir heilmikið um vind við fjöll, á heiðum og hálendi.

Líka má velja 2 og síðan einstök landsvæð, 3 ef menn vilja Suðurland.

Svo er líka hægt að hringja í sjálfvirka símsvara Vegagerðarinnar.

Á dögum farsímans og netsins, auk útvarps og skilta við þjóðvegi, getur enginn afsakað sig með því að hann hafi ekki getað fengið sér upplýsingar.

Ómar Ragnarsson, 24.8.2009 kl. 23:14

9 identicon

Á farsímavef Veðurstofunnar http://m.vedur.is má skoða veðurathuganir í farsímum. Athuganir fyrir Ingólfsfjall eru á slóðinni http://m.vedur.is/m/athuganir/stadir?w=1&s=31399.

Vindurinn A 7 þýðir að vindurinn er austanstæður, að meðaltali 7 m/s síðustu 10 mín. Einnig eru birtar tvær tölur fyrir mesta vind, annarsvegar mesta 10 mín. vind og mestu vindhviðu.

Fyrir flugmenn er vert að geta þess að til stendur að bæta flugveðurupplýsingum á þennan farsímavef.

Helgi Borg (IP-tala skráð) 25.8.2009 kl. 10:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband