18.11.2009 | 13:43
"...að vita´að ekki hvort þær séu í.....
Um hinn nýja c-streng í nærbuxum kvenna sem ekki á að sjást í gegnum þröngar síðbuxur vil ég aðeins segja þetta:
Sífellt leita dömur að brögðum sem drengina blekki /
og dragi þá að sér með sjónhverfingum sem kalla má hrekki. /
Í þröngum síðbuxum vona þær heitt að þá veki og trekki /
að vita´að ekki hvort að þær séu í nærbuxum - eða ekki.
Því eins og segir í þekktri vísu:
Fegurð hrífur hugann meira /
ef hjúpuð er /
svo andann gruni ennþá fleira /
en augað sér.
Tekur c-strengur við af g-streng? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Frábært - Takk fyrir
Rúnar Þór Þórarinsson, 18.11.2009 kl. 13:58
Þetta er glæsilegt !
baldvin berndsen (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 14:11
Nù verdur bara slegid à lètta strengi og allar konur fjadrandi um jòlin.
Stefàn Niclas Stefànsson (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 16:03
Djöfull held ég að þetta sé óþægilegt, að vera með einhverja spöng í klofinu.....ég tala nú ekki um fyrir mig sem ferðast um á hjóli. Þetta er örugglega uppfinning karlmanna sem ætla enn einu sinni að græða á nýjungagirni kvenna þegar kemur að "klæðnaði" og koma sér upp þægilegri leið að því allra heilagasta hjá konum!!!!!! Svei attan!!!
kona (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 16:15
Þetta er alveg frábær græja. Nú verður miklu miklu auðveldara að komast í helgidóminn, svo lengi sem konurnar fást til að klæðast græjunni!!! Praise the lord!!!!!!!!!!
Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 16:40
Er ekki "bætt aðgengi" tískuorð um þessar mundir?
Ómar Ragnarsson, 18.11.2009 kl. 18:33
Nú þegar pjötlurnar taka að rjátlast utan af framámönnum úr þjóðlífinu, má ekki líka segja það í takt við tíðarandann að fela allt bak við ekkert?
Rúnar Þór Þórarinsson, 18.11.2009 kl. 18:51
Sérstaka kátínu vekur seinni vísan sem ofar er birt, enda listasmíð.
Hver smeið?
Steindór (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 19:35
Smiðurinn hét því þekkta nafni Hannes Hafstein.
Árni Gunnarsson, 18.11.2009 kl. 23:42
Svei mér ég ekkert sé,
er Sirrý kemur hér P.,
í smáum streng hún C,
sem Sigurgeir Jóns lét í té.
Þorsteinn Briem, 19.11.2009 kl. 05:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.