Stefnir hún í að springa sjálf ?

Jarðvísindamenn hafa klórað sér í höfðinu yfir atburðarásinni á óróasvæðinu, sem kennt er við Bárðarbungu. 

Haraldur Sigurðsson og fleiri velta vöngum yfir því hvort sigið í Bárðarbungu, skjálftarnir þar og gosið sjálft muni smám saman fjara út seinna í vetur eftir því sem hraun vellur norður úr berggangingum undir Holuhrauni.

Talað er um að komin sé upp ný mynd af þessu eldstöðvakerfi, sem nái svona langt norður eftir.

Ekkert lát er hins vegar enn að sjá á Bárðarbungu og sumir tala um að útstreymið í gegnum gosið í Holuhrauni sé of lítið til þess að það geti tappað nógu af hinu ógnarmikla kvikustreymi sem er á ferli á svæðinu.  

Þar að auki hef ég heyrt haft eftir einum af eldfjallafræðingunum að hann telji allt eins líklegt Holuhraunseldarnir og umbrotin í Bárðarbungu séu ekki eins beintengd og sýnist, heldur sé Bárðarbunga að hamast ein og sér og muni allt eins getað endað á því að springa sjálf.

Og það jafnvel, þótt hraunið í Holuhrauni sé frá henni komið.  

Og það getur orðið hvellur hjá sjálfri yfireldstöð Íslands.  

 

P. S. Hún reis dulúðug í dag í móðu og mistri yfir flugleið okkar Jóns Karls Snorrasonar á tveimur flugvélum yfir Holuhraunseldana. Sjá myndir og stöðu á facebook síðu minni.  


mbl.is Aukinn fjöldi skjálfta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vindurinn að byrja að hreinsa. Afar lúmsk hætta.

Í gærkvöldi sást fyrst til gosstöðvanna í Holuhrauni úr vefmyndavél milu á Vaðöldu. Þetta eru góðar fréttir því að áttleysan undanfarna daga hefur skapað afar varasamt ástand á stóru svæði í þarna í kring vegna gasmengunar.

Gasið hefur safnast saman yfir landinu í stað þess að fjúka í burtu, en nú er að koma austanátt sem er að byrja að létta ástandið.

Þessi gasmengun getur verið alvarlegra mál en virðist í fljótu bragði og er í raun alveg nýtt fyrirbrigði hér á landi í meira en heila öld, jafnvell allt frá Móðuharðindunum.

Þótt gasið muni nú fara að breiðast til vesturs verður þó hreyfing á því í stað þess að það safnist saman yfir landinu eins og verið hefur undanfarna daga og vindurinn færir það rólega vestur af landinu.

Síðustu daga hefur gas farið yfir heilsuverndarmörk á mun stærra svæði en fyrr og orðið allt að fjórum sinnum yfir mörkum á stöðum, sem áður voru alveg lausir við mengun.

Svona gaseitrun getur verið afar lúmsk, því að gasið er ósýnilegt og sjúkdómseinkenni koma fram fyrr en eftir viku.

Gasið fer í lungun og við það að komast í snertingu við raka í lungunum, myndar það blöðrur í þeim. Það er ekkert grín.

Ég hef enn ekki lokað Sauðárflugvelli fyrir veturinn og hann hefur verið og er mikilvæg bækistöð fyrir mig.

Þegar ég var þar síðast yfir nótt fyrir skemmstu, ók ég í norður frá vellinum upp á hæð til að losna örugglega við megin gasstrauminn og forðast að vera á flatlendi þar sem hið ósýnlega gas getur safnast saman af því að það er þyngra en andrúmsloftið og sígur niður í lægðir.

Allur er varinn góður þegar svona lúmskur óþverri er annars vegar.   

Að lokum má minna á hvimleiða viðleitni okkar tíma til að flækja mál með óþarfa málalengingum í eins konar nútíma kansellístíl.  "Útlit fyrir lítil loftgæði" er yfirskrift tengdrar fréttar á mbl.is

Í minni sveit í gamla daga hefði verið sagt: "Útlit fyrir óloft".  "Óloft" er tvö atkvæði, en "lítil loftgæði" fimm atkvæði. 

 


mbl.is Útlit fyrir lítil loftgæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. október 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband