Vindur undir Hafnarfjalli í nótt: 0 m/sek.

Þegar þau Lára, Haukur og fjölskylda óku suður í nótt sáu þau tölu á skiltinu norðan Hafnarfjalls, sem þau höfðu aldrei séð áður: Vindur: 0 m/sek.

Og í hönd fór einstakur dagur hér á Suðvesturlandi með logni, heiðríkju og 20 stiga hita.

Ekki amalegt að koma saman í afmælisveislu eins og þeirri sem sjá má mynd af á facebook og njóta einstakra aðstæðna, sem sjaldgæf eru hér á Klakanum.

Þær bjóða upp á það að víkja öllu öðru frá sér og njóta Guðsgjafanna í botn.

Þess vegna hafa bloggsíðan mín og facebooksíðan ekki hreyfst í dag fyrr en fyrst nú.  


mbl.is Landsmenn njóti sólarinnar í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband