Nú myndi ég klappa, væri ég ekki brotinn.

Viðtöl Brodda Broddasonar við veðurfræðing og fleiri í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins ættu að vera skyldunámsefni fyrir alla þá sem eru að læra fjölmiðlun.

Í stað landlægrar kranablaðamennsku leiddi styrk hönd afburða fréttamanns viðtölin, byggð á þekkingu, yfirsýn og hæfni, alla í gegnum viðfangsefnið, svo að unun var á að hlýða.

Að ekki sé nú talað um óbrigðult málskyn og málnotkun Brodda, rammíslenskt alþýðumál eins og það gerist best. Fátítt er að heyra slikt nú á dögum.

Þarna heyrðist til dæmis orðið "hábölvað" sem varla hefur heyrst í fjölmiðli árum saman. Rétt orð í réttu samhengi.

Heyra má þær raddir, að RUV sé nátttröll sem eigi ekki rétt á sér við nútíma aðstæður.

75% þjóðarinnar eigi heima á Suðvesturlandi og allt sé að færast yfir á netið.

Raunar heldur RUV uppi öflugri þjónustu á netinu, en þessa gagrýnendur varðar ekki um það. 

Ef slíkar röksemdir eiga að ráða má allt eins leggja mestalla íslenska fjölmiðlun og íslenska tungu niður í ljósi þess að aðeins rúmlega 1% Norðurlandabúa eða 0,05% Evrópubúa eigi heima á Íslandi. 

Þeir, sem miða alla sína sýn á Ísland á slík rök undir yfirskini víðsýni, ættu að íhuga hvort sjónarhóll þeirra sjálfra þar sem sem allt er innan sjóndeildarhringinn utan um tölvuna þeirra, beri ekki vott um þröngsýni.

Um afgreiðslu RUV á óveðrinu, sem ekki rúmaðist innan þessa sjóndeildarhrings, segi ég bara: Nú skyldi ég klappa, væri ég ekki axlarbrotinn!  

 


mbl.is Veðrið hefur náð hámarki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Broddi kallinn Broddason,
bölvið setti á oddinn,
á Austurlandi enn er von,
Ómar fékk á broddinn.

Þorsteinn Briem, 30.12.2015 kl. 15:04

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir að benda á þetta, verð að heyra þetta við tækifæri.  Góð vísa er aldrei of oft kveðin. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.12.2015 kl. 16:54

3 identicon

Og ekki má gleyma því að viðmælandinn er sömuleiðis afburðamaður að þekkingu og viti á sínu viðfangsefni. Þetta tvennt verður vitaskuld að fara saman.

Þorvaldur S (IP-tala skráð) 30.12.2015 kl. 18:36

4 identicon

Broddi Broddason er einstaklega ljúfur útvarpsfréttamaður. Vandaður og ómþýður.

Það er samt svolítið athyglisvert að nefna þurfi sérstaklega og klappa þegar RÚV tekst vel upp.

Hvar eru t.d. kvöldfréttir RÚV þessa dagana? Hjá þorra landsmanna hefur þessi vika verið venjuleg vinnuvika. 

Sigrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 30.12.2015 kl. 20:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband