Hve mörg megavött framleiðir Björk?

Björk framleiðir ekkert megavatt fyrir Ísland. Ekki heldur Gullfoss eða Dettifoss.

Bítlarnir framleiddu heldur ekkert megavatt fyrir Breta og þaðan af síður Presley fyrir Bandaríkjamenn.

Ekki komu mörg tonn út úr Halldóri Laxness og ekki skapa handritin krónu í útflutningi.

Gullfoss skapar heldur ekki neinn gjaldeyri. Ferðamenn mega horfa á hann án þess að borga neitt fyrir það.

Samkvæmt landlægum skilningi Íslendinga er allt ofangreint einskis virði vegna þess að það er ekki hægt að vigta eða mæla beint ávinninginn af tilvist þeirra.

Samt kom Eva Joly til Íslands meðal annars af því að Björk var Íslendingur. Tilvist ofangreindra fyrirbrigða hefur nefnilega mikla þýðingu fyrir komu ferðamanna hingað og fyrir ímynd og viðskiptavild lands og þjóðar. 

Á 18. öld þurfti Árni Magnússon á stundum að rífa skinnpjötlur af klæðalitlu fólki, af því að þær voru hluti af handritum sem voru ekki til neins nýt að mati hins aðþrengda fólks nema til að nota þær í hlífðarfatnað.

Sagt var jafnvel að glorsoltið fólk legði sér handritin til munns. Á erfiðustu öldum íslensku þjóðarinnar barðist hún fyrir lífi sínu og þá var sagt að "bókvitið yrði ekki í askana látið."

Ef gaf til fiskjar var farið á sjó umsvifalaust og ef það þornaði, varð að heyja strax og það hratt.

Þjóðin komst af við illan leik með því að temja sér þennan hugsunarhátt. Hún neyddist til að höggva hrís og beita land, sem ekki þoldi beit, af því að hún gat ekki horft fram á við.

"Neyttu á meðan á nefinu stendur" var það sem gilti.

Þrátt fyrir kreppu er ekki með nokkru móti hægt að jafna ástandinu núna við þá tíma þegar þjóðin hrundi niður úr hungri og drepsóttum og tamdi sér hugsunarhátt sem ameríkanar lýsa með setningunni "take the money and run!" 

Það er sá hugsunarháttur, sem margir vilja nú að öllu ráði á Íslandi.

Hann getur orðið skaðlegur þegar fram í sækir og gengið er á hlut milljóna Íslendinga sem eiga eftir að lífa í þessu landi.

Á Þjóðfundi sem ég er að fara á núna, verður vonandi rætt um endurmat á þeim gildum, sem þessi þjjóð þarf að hafa í bráð og lengd. 


mbl.is Vonaðist til að hitta Björk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sjóveikur

þetta er nú sú raunsannasta og besta grein sem þú hefur skrifað karl, vertu þú sjálfur, alla leið

Byltingin étur nefnilega börnin sín, fyrr eða síðar !

kveðja sjóveikur

Sjóveikur, 14.11.2009 kl. 11:36

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

flott grein Ómar.

Óskar Þorkelsson, 14.11.2009 kl. 12:40

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sigmundur Einarsson jarðfræðingur hefur skrifað nýja grein í Smuguna og svarar nú þeim sem gert hafa lítið úr röksemdum hans um að mikið vanti á að tryggð sé raforka til álverksmiðju í Helguvík.

Þorsteinn Briem, 14.11.2009 kl. 13:52

4 Smámynd: Andrés Kristjánsson

Svo sannarlega Ómar. Einnig er hægt að hafa það bakvið eyrað að listin getur verið útfluttningsvara. Sem dæmi þá flytja Danir heilu skipsförmin út af húsgögnum sem þeir hafa hannað. Svíar fluttu út á árinu 2007 tónlist fyrir 100 milljarða eða 800 milljónir dala. Það er með hreinum ólíkindum.

Andrés Kristjánsson, 15.11.2009 kl. 11:56

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þessi upptalning hjá þér Ómar, er tómt bull. Hver hefur haldið því fram að þetta sé einskis virði?

Gunnar Th. Gunnarsson, 15.11.2009 kl. 15:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband