Mörg fordæmi.

9. apríl 1940 hernámu Þjóðverjar Danmörku og 10.maí hernámu Bretar Ísland. Í hönd fóru ár þar sem Íslendingar tóku sjálfir völdin með sérstakan íslenskan ríkisstjóra sem æðsta innlendan valdsmann og 1942 voru tvennar kosningar og skipuð var sérstök minnihlutastjórn Ólafs Thors. 

Þegar ekki tókst að mynda meirihlutastjórn brá Sveinn Bjðrnsson á það ráð að skipa utanþingsstjórn sem sat mestallt árið 1944 við völd.   

1949 til 1950 sat minnihlutastjórn Ólafs Thors um hríð, en stjórnarkreppa í kjölfar vantrauststillögu leystist með tveimur meirihlutastjórnum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks 1950 til 1956.   

Frá árslokum 1958 til 1959 sat minnihlutastjórn Alþýðuflokksins  með tveimur Alþingiskosningum og aftur haustið 1979 til janúar 1980 án stjórnarskrárbreytinga.    


mbl.is Rýfur þing og boðar til kosninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"...engin samstaða er í ríksisstjórninni um lausnir..."

Ofangreind orð mælti Hermann Jónasson þáverandi forsætisráðherra eftir árangurslausa heimsókn sína á ASí þing síðla árs 1958.

Ríkisstjórn Hermanns var þriggja flokka stjórn og ónýt kjördæmaskipan og efnahagsmál virtust óleysanlegar hindranir.  

Ásgeir Ásgeirsson forseti Íslands hafði að baki þrjátíu ára feril sem ráðherra, þingmaður og bankastjóri og notaði þá reynslu til að finna farsællega lausn fyfir minnihlutastjórn Alþýðuflokksin sem leiddi af sér nýja kjördæmaskipan og umbyltingu í efnahagsmálum, sem fékk heitið Viðreisn og þrettán ára valdasetu Viðreisnarstjórnarinnar. 

1979 var annað afbrigði af þessari lausn reynt og sat út kjðrtímabilið.  


Margar vendingar flugvallarmálsins í áttatíu ár.

Nokkra snúningana hefur svonefnt Hvassahraunsmál tekið síðan Agnara Koefoed-Hansen orðaði þá framtíðarsýn sína i blaðaviðtali 1956, að með tiltölulega einfaldri aðgerð væri hægt að lengja austur-vestur braut vallarina til vesturs út í Skerjafjörð. 

Kostir þessa hefðu orðið margir. 

stórminnkuð umferð um norður-suðurbrautina. 

Stórauknir notkunarmöguleikar fyrir flugvöllinn. 

Í kringum 1960 hófst mikil umræða um þann möguleika að byggja nýjan flugvöll á Álftanesi sem mveðurfarslega er langbesti flugvallarkostur landsins. 

fyrir troðfullu Sjálfstæðishúsinu steindrap Geir Hallgrímsson, þáverandi bæjarstjóri Reykjavíkur þessa hugmynd með snilldarlegri ræðu. 

Málið lenti í óvissu þar til Hannibal Valdimarsson varð samgönguráðherra 1971 og jarðaði hugmyndina endanlega.

Í skoðanakönnun um aldamótin var mjög mjótt á munum, en fyrirfram var gert að skilyrði um lágmarksþátttöku, sem könnunin OG samkvæmt því var könnunin ekki bindandi. 

 

Nokkrum árum síðar var enn ein nefndin skipuð um málið og nefndir nokkrir möguleikar:

löngusker. 

Bessastaðanes. 

Hólmsheiði. 

Hvassahraun. 

Í byrjun hlaut Hólmsheiði einna mesta athygli, sem sýndi vel fíflaganginn, sem ríkt hefur í þessu máli. 

 

  

 

 

 


Skiptir nálægðin við 600 metra háa Lönguhlíðina engu máli?

Langalgengasta og hvassasta vindáttin á fyrirhuguðu flugvallarstæði fyrir suðvaestan Kapelluhraun er austsuðaustanátt, einkum þegar dýpstu lægðirnar koma af landinu. 

Versti ókostur þessarar vindáttar er ekki tíðnin heldur ókyrrðin af norðurhlíð Lönguhlíðar, sem rís í meira en 600 metra hæð yfir sjávarmáli í aðeins 15 km fjarlægð frá vellinum og veldur hættulegri ókyrrð.      

Þetta atriði er eitt af fjðlmðrgum atriðum sem virðist hafa verið strokað út í vinnu nefndarinnar, sem hefur verið starfandi síðusutu árin til að safna upplýsingum um vallarstæðið. 


mbl.is Flugvöllur í Vatnsmýri næstu áratugina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barátta við fordóma, vanþekkingu og dugleysi.

Fyrstu þyrlurnar, sem teknar voru í notkun fyrir Landhelgsgæsluna báru þess vitni, hve fjárvana þessi bráðnauðsynlegu flygildi voru.

Þrátt fyrir það stórhuga framtak íslensks áhugamanns að fá lánaða fullkomna franska þyrlu af Super Puma gerð til reynslu, og að hún reyndist vel í leiðangri urðu fordómar, vanþekking og skortur á dug og framsýni hjá fjárveitingavaldinu að valda margra ára töf á því sjálfsagða máli, að eyþjóðin Íslendingar fengi jafn nauðsynlegt öryggistæki til nota og þyrluæknin býður upp á.     


mbl.is Vildu hætta rekstri björgunarþyrlu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið úrval ágreiningsefna framundan.

Ef rétt er munað, var það nefnt í umræðunni um það hve tæpt stjórnarsamstarfið stóð fyrir um viku að 176 mál lægju þá fyrir í endurnýjanlegu stjórnarsamstarfi. Deilumálið um ellefu ára sjúklinginn virtist vera aðeins brot af ágreiningnum, sem enn liggur fyrir í útlendingamálunum.

Nýtt ágreiningsmál, hvort kjósa eigi næsta vor eða næsta haust, er komið á lista, og það er augljóst, að ríkisstjórnin situr á stórri púðurtunnu af ótal eldfimum málum, sem hvert um sig getur sett allt í bál og brand á svipstundu, nótt sem dag.


mbl.is Guðrún ósammála Svandísi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt margra alda eldgosatímabil í vændum á Reykjanesskaga?

Framundan kann að vera nýtt margra alda langt eldgosatímabil á Reykjanesskaga sem það brýnt að nýt af alefli þá þekkingu og reynslu auk aukinnar afkastagetu við gerð varnargarða, sem þegar hefur fengist. 

Ef afl jarðeldanna verður miklu meira en hingað til, þarf að búa til sveigjanlegri og öflugri varnir en hingað til hafa verið gerðar og hindra eins og hægt er að mannvirkjagerðin komi of seint.


mbl.is Verðum að vera viðbúin stærra eldgosi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskir þjálfarar halda sókn sinni áfram, bæði hér heima og alþjóðlega.

Sífellt fleiri íþróttagreinar eru nú að verða vettvangur sóknar íslenskskra þjálfara, þar sem þeir hampa æ fleiri og stærri verðlaunum.  

Þarf ekki annað en að nefna Þóri Hergeirsson og norska landsliðið í kvennahandbolta.  

Það er mikils virði að þessi sókn á íþróttasviðinu veki athygli og nýtist sem víðast á bæði heima á Íslandi og víðast um lönd.


mbl.is Arnar er einn besti þjálfari Íslandssögunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1980 munaði litlu að mál fransks liðhlaup sprengdi ríkisstjórn Íslands.

Rétt eins og mál Yozamss Taminis er er "á alla kanta sérstakt" er til dæmi frá árinu 1980 um málefni erlends hælisleitanda, sem olli þvíílíku uppnámi, að einn stjórnarþingmaður í eins manns meirilhta þáverandi noðri deildar Alþíngis hótaði að hætta að styðja ríkisstjórnina ef Frakkinn fengi ekki hæli hér á landi, en maðurinn, Patricc Gervasoni, hafði leitað eftir hæli hérlendis og neitað að gegna herþjónustu í heimalandi sínu.  

Málið kom á borð hjá yfirvöldum hér á landi, í Frakklandi og í Danmðrku þegar leitað var leiða til að leysa það. 

Lausn fannst á endanum með aðstoð Dana og íslenska ríkisstjórnin þurfti ekki að segja af sér.  


mbl.is „Finnst málið á alla kanta sérstakt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðferð Trumps virðist svínvirka.

Svo er að sjá sem sú aðferð að efna til tilhæfulaustrar ófrægingarherferðar á hendur innflytjendum á borð við þá, sem búa í bandarísku borginni Springfield, hafi fyrir bragðið orðið heimsþekkt. 

Trump hefur áður beitt svipuðum aðferðum og svona árangur gæti orðið til þess að kosningabaráttan nú geti orðið jafn svæsin og jafnvel svæsnari en sú síðasta. Vonandi fer þetta þó ekki þannig


mbl.is Sprengjuhótanir í skólum vegna falskra ummæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband