9.4.2024 | 00:14
1954 varð hljóðnuð mýrin eftirminnilegust.
Sumarið 1954 var síðuhafi fimm sumur í sveit og vitni að myrkva, sem þá varð á sólu.
Sjálfur myrkvinn á sólinni varð þó ekki eftirminnilegastur, heldur það hvernig fjðlbreytt fuglalífið hljóðnaði, þagði og vaknaði aftur í takt við myrkrið.
Um síðustbu aldamót var aftur á gamlar slóðir til að ná mynd af myrkvanum, sem þá varð og ná bæði mynd og hljóði á myndavélina.
Ferðin stóð lungann úr degi og varð gersamlega gagnslaus.
Síðan 1954 hafði mýrin verið ræst fram og enginn fugl þar lengur.
Skipti þó eitt og sér ekki máli, því 1954 var ökuhraði´bílana á þvengmjóum dekkjunum aðeins innan við 60 km / klst, -
- en margra mörgum sinnum stærri og þyngri bíla 60 árum síðar á miklu stærri og grófari dekkjum yfir 100 km / klst.
Ærandi hávaðinn fyllti dalinn og ferðin ónýt.
Deildarmyrkvinn sjáanlegur á Suðvesturlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.4.2024 | 06:59
Veldishlaðinn ágreiningur.
Æegar tveir flokkar standa að ríkisstjórn og grípa þarf til skyndilausna er oft um fleiri ágreiningsefni að ræða en virðist við fyrstu sýn.
Ef flokkarnir eru þrír getur of hlaupið eins konar veldisvöxtur í deiluefnin og ekki dugar að afgreiða ásteytingarsteinana með setningunni "það er stjórnarsáttmáli í gildi."
Hrókeringarnar með stöður og ráðuneyti geta einfaldlega orðið stjórnarliðinu, sem kemur úr þreemur ólíkum áttum, ofviðal
Getur snúist í höndum forsætisráðherrans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2024 | 09:24
Þriggja áratuga sleifarlag.
Eftir fern mannskæð snjóflóð á árunum 1994 til 1995 mátti ljóst vera að um algert gjaldþrot í þessum málum var að ræða. Var þá loksins stofnaður Ofanflóðasjóður til að koma málum í lag.
Núna, þremur áratugum síðar, hefur þessi sjóður misst af stórum hluta framlaganna, sem honum voru upphaflega ætluð, ofanflóð féllu að nýju á Flateyri, Seyðisfirði og í Neskaupstað, og enn þarf að beita rýmingum til varnar í óviðunandi aðstæðum.
Og í Grindavík hefur sleifarlegið við úrlausn mála staðið í fimm mánuði, íbúunum til mikils ama.
Rýming líklega í gildi fram á mánudag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2024 | 13:13
Samkvæmisleikur, sem allir geta tekið þátt í.
Þegar Katrín Jakobsdóttir tilkynnti um það í gær að hún væri hætt í pólitík og bættist í metfjölda frambjóðenda til embættis forseta Íslands hafa staðið yfir fjölmennar umræður og spádómar í samkvæmisleiknum um þetta mál þar sem jafn stuðningmenn og andstæðingar ríkisstjórnarinnar hafa skipst á fjölbreytilegum skoðunum.
Eru þær allar með yfirbragði samkvæmisleiks þar sem gaman verður að sjá, hver fer næst í ágiskununum um lok málsins.
Telur að Bjarni Jónsson verði ráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.4.2024 | 14:32
Fyrirbæri, sem er þekkt erlendis.
Viðtengd frétt á mbl.is um að Íslendingar nenni ekki lengur að vinna erfið störf er önnur hliðin á peningi í kjaramálum.
Hin hliðin er afleiðingin, sem er sú, að innflutningur á tugum þúsunda erlends verkafólks.
Hlálegt er, að þetta knýr áfram óánægju Íslendinga með útlenda vinnuaflið sem heldur við grunni íslensks atvinnulífs. Við virðumst ekki skilja eða vilja skilja, að það er ekki bara hægt eiga og éta hana samtímis.
Ein af ástæðunum fyrir hinum mikla gróða sem skapast hefur á rekstri útlendinga á fyrirtækjum sínum hér á landi er, að verkafólkið gefur mestu möguleikana á því að hlunnfara hinn erlenda hluta láglaunafólks.
Þetta er alþjóðlegt fyrirbæri, sem hefur lengi haft framleiðslu helstu stórþjóða Evrópu gangandi.
Trump fékk fylgi 2016 út á óánægju innanlands með streymi erlends vinnuafls inn í landið og hann fékk líka fylgi frá þeim sem vildu loka fyrir þetta streymi, þótt þeir sjálfir héldu því gangandi með eftirspurn eftir því innanlands.
Hann boðaði forna frægð og veldi Bandaríkjanna frá fyrri tíð ("make America great again!") meðal annars með því að banna sölu nýrra erlendra bíla, en rak sig þá meðal annars á það, að meiriparturinn af þeim voru framleiddir verksmiðjum Benz, BMW og Toyota í Bandaríkjunum!
Íslendingar vilja ekki þiggja störfin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Síðuhafa er enn í fersku minni frá umræðunni og deilunni um komu varnarliðsins 1951 hve mjög Bjarni Benediktsson heitinn hamraði á því, að hugsanlegur óvinur NATO myndi helst ráðast á garðinn þar sem hann væri lægstur en ekki þar sem hann væri hæstur.
30. mars 1949 hafði það verið sérbókun Íslendinga varðandi aðild, að Íslendingar væru herlaus þjóð og að hér yrði aldrei her á friðartímum.
Ísland má ekki vera veikasti hlekkurinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ef metfjöldi frambjóðenda verður í forsetakosninunum vaxa líkur á því a meðmæli verði úrskurðuð ógild. Reynslan hefur verið sú að þá eykst hættan á því að mmeðmæli verði ógild hjá þeim sem hafa mælt með fleirum en einum frambjóðanda.
Ætlunin með meðmælum snúa aðeins að því að meðmælandi mælir með því að frambjóðandi fái að bjóða sig fram og telst því ekki yfirlýsing um stuðning við að öðru leyti, enda er gildi kjörseðilsins leynilegt.
Þessi fimm hafa náð lágmarkinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2024 | 18:03
Oppenheimer, MAD and GAGA. Uppkast að allri frumgerðinni.
Í kvöld, Paskadag, verður Óskarsverðlaunamyndin Oppenheimer, sýnd í íslensku sjónvarpi, sama dag og greint er frá því í fréttum, að þingmaður á Bandaríkjaþingi hafi lagt til að land hans bindi enda á deiluna í Gasa með tveimur bandarískum kjarnorkusprengjum eða jafnoka þeirra.
Í alvöru? Já.
Undanfarnar vikur hefur mallað hér á síðunni uppkast að lagi með heitinu MAD and GAGA. Annars vegar á ensku og íslensku, en hins vegar á íslensku. Hér verður nú birtur til bráðabirgða enski textinn, en hinn íslenski síðar.
Hefst á stuttum lesnum formála, en inn á milli í erindunum spyrja hjáróma raddir: Really? og fá svarið: Yes.
MAD and GAGA.
Since 1945 the foremost sientists and leaders of the world have developed a doctrine of mutual deterrent, huge nuclear arsenal of the super powers that can guarantee peace forever.
Really?
Yes.
MAD in English, GAGA in Icelandic,
mad and gaga so sweetly with ease
is mutual assured destruction in full
so we can be calm and rest in peace.
Really?
Yes.
A doctrine of security and peace of mind,
being ready to kill and leave noone behind;
kill every enemy, many times each,
and be sure that everyone is within reach.
Really?
Yes.
MAD, MAD, MUTUAL Assured destruction.
The ultimate solution, war to end all war?
Deterrent balance of nuclear horror?
The doctrine of assured destruction,
almost divine function.
MAD in English, GAGA in Icelandic;
á MAD og GAGA trúum hér.
Gagnkvæm altryggð gereyðing allra
með tortímingu, sem örugg er.
P.S. Hér er ljóðið hálfnað, en síðari hlutinn bíður birtingar til morgunS, sem nú er runninn upp með seinni hlutann.
MAD in English, GAGA in Icelandic,
utmost deterrent is here to stay
so noone reluctantly
hesitates to go all the way.
So, if and when we have to to it
with the last blast and breath
comes the utmost holy trinity:
serenety, silence, death.
Sacred dreum since 1914:
War to end all war
in mutual assured destruction,
the war with the highes score.
Paradoxical all the way;
Murphys law looming aside
every minute night and day
in its secret place to bite.
The final solution: MAD, MAD, MAD,
Mutual dead sure destruction.
Holy trinity of last blast and breath:
serenety, silence, death.
Verdict:
MAD must prewail, please,
so we can all rest in peace.
Really?
Yes.
Bloggar | Breytt 2.4.2024 kl. 00:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2024 | 23:53
Getur verið stórmál, en afar vandmeðfarið.
Stórbrotin umfjðllun fjölmmiðla heimsins um eldgosin í Eyjafjallajökli 2010 og Grímsvötnum 2011 reyndist á sínum tíma stórkostleg lyftistöng undir mesta efnahagsuppgang íslenskrar sðgu, jafnvel jafnfætis stríðgróðanum fyrir áttatíu árum.
Nú er byrjað að dreifa stórbrotnum myndum í fjðlmiðlum heimsins og spurning hvaða áhrif það muni hafa. 2010 og 2011 höfðu eldgosin meiri áhrif á flug um allan heim en áður hefur gerst, en núna virðist ekkert slíkt í gangi.
En þetta er engu að síður þegar orðið stórmál í fréttaefni heimsins hvað snertir umfjöllun um það, sem er afar vandmeðfarin og það er áríðandi að rétt sé farið með.
BBC deilir stórbrotnu myndbandi af eldgosinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2024 | 22:56
Lengri og bjartari dagar farnir að hafa áhrif.
Í gær ku hafa skinið sól í Reykjavík í meira en tólf klukkustundir og verið jafnvel sett landsmet í sólskini í mars.
Svona löng sólskinslota hefur drjúg áhrif á dædursveifluna, sem getur farið að gera sig líklega til að nálgast tveggja stafa tölu, ekki síst þegar áhrif Esjunnar á vindinn hjálpaar til.
Heildarsveiflan á landinu verður jafnvel enn meiri og Siglfirðingar í skíðaham urðu fyrir barðinu á því.
12 gráða frost og tæplega 7 gráða hiti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)