1954 varð hljóðnuð mýrin eftirminnilegust.

Sumarið 1954 var síðuhafi fimm sumur í sveit og vitni að myrkva, sem þá varð á sólu. 

Sjálfur myrkvinn á sólinni varð þó ekki eftirminnilegastur, heldur það hvernig fjðlbreytt fuglalífið hljóðnaði, þagði og vaknaði aftur í takt við myrkrið. 

Um síðustbu aldamót var aftur á gamlar slóðir til að ná mynd af myrkvanum, sem þá varð og ná bæði mynd og hljóði á myndavélina.

Ferðin stóð lungann úr degi og varð gersamlega gagnslaus.

Síðan 1954 hafði mýrin verið ræst fram og enginn fugl þar lengur.  

Skipti þó eitt og sér ekki máli, því 1954 var ökuhraði´bílana á þvengmjóum dekkjunum aðeins innan við 60 km / klst, - 

- en margra mörgum sinnum stærri og þyngri bíla 60 árum síðar á miklu stærri og grófari dekkjum  yfir 100 km / klst. 

Ærandi hávaðinn fyllti dalinn og ferðin ónýt.  

 


mbl.is Deildarmyrkvinn sjáanlegur á Suðvesturlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

bílanna eignarfall tvö NN

Árni Blandon Einarsson (IP-tala skráð) 9.4.2024 kl. 04:13

2 identicon

Varstu í alvöru fimm sumur í sveit árið 1954?

Þorvaldur S (IP-tala skráð) 9.4.2024 kl. 06:08

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Já, sumrin 1950, 51, 52, 53 og 54. Síðustu tvö sumrin alveg fram í október.

Ómar Ragnarsson, 9.4.2024 kl. 23:13

4 identicon

En, þú sagðir efnislega að árið 1954 hafi haft fimm sumur, á því eina ári hafi sumrað fimm sinnum. Getur það verið?

Þorvaldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 10.4.2024 kl. 16:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband