Einu sinni voru hús Framsóknarforkólfanna flottust.

Það er mér í barnsminni þegar nokkur hundruð metra löng gönguferð nægði til að fara á milli andstæðra póla í íslensku þjóðfélagi um miðja síðustu öld.

Ég var oft hjá ömmu Ólöfu og afa Finni á Ásvallagötu 51, sem bjuggu þar í tæplega 50 fermetra íbúð í Verkamannabústöðunum.

Hann var múrari en þau fluttust ekki til Reykjavíkur frá Öræfum og Síðu í Skaftafellssýslu fyrr en á þrítugsaldri.

Þau voru því alþýðufólk og verkalýðssinnar og lifðu spart.

Við Áavallagötu var lítið fjárbú þar sem hafnarverkamaðurinn Þórarinn á Melnum drýgði lágar og stopular tekjur með því að hafa nokkrar kindur og hæsn.

Það hefur verið erfitt líf á kreppuárunum.

Á morgnana fór hann niður að höfn og beið í biðröð verkamanna eftir því að fá vinnu þann daginn.

14 ára fékk ég að upplifa það, hvað það var fyrir hann og aðra verkamenn að bíða þar og vera kannski hafnað í nokkra daga en komast síðan að í óákveðinn tíma. 

Að vera kannski rekinn og ráðinn á víxl.

Ég fékk vinnu eftir nokkra daga fyrir jólin þegar fleiri verkamenn þurfti og líka  vegna þess að afi þekkti verkstjórann svo vel.

Kunningjasamfélagið var þarna yfirsterkara hugsjónum sósíalismans og ég hef oft síðan verið hugsi yfir því að hafa kannski tekið af lífsbjörg einhvers sem ekki komst að.

Það þurfti aðeins að ganga 200 metra frá verkamannabústöðunum til þess að detta inn í eitt mesta fátækrahverfi bæjarins, braggahverfið Kamp Knox.

Og síðan var aðeins 200 metra spölur upp eftir Hofsvallagötunni að tveimur af flottustu íbúðarhúsum Reykjavíkur.

Annað þeirra var hús Jónasar frá Hriflu ráðherra 1927-31 og formanns Framsóknarflokksinns til 1944, við hornið á Hávallagötu og Hofsvallagötu, - en efst við Hofsvallagötu var ennþá flottara, dýrara og íburðarmeira hús Vilhjálms Þórs, forstjóra SÍS og ráðherra 1942-44.

Á villum þeirra var ekki að sjá að þeir væru málsvarar fátækra bænda, vinnuhjúa og verkafólks.

Vestar við´Ásvallagötu var síðan miklu yfirlætislausara hús Eysteins Jónssonar alþingismanns og ráðherra Framsæoknarflokksins 1927-31, 1934-42, 1947-1949 og 1950-51.

Eysteinn barst lítt á, var skíðamaður og náttúruunnandi, og umtalað var, að hann hyglaði aldrei sjálfum sér þótt hann stundaði fyrirgreiðslupólitík að hætti stjórnmálamanna.


mbl.is 130 milljóna höll á Sólvallagötu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að þetta gerðist svona snemma?

Já, það kann að virðast mótsagnarkennt, en úr því að það þurfti að gerast sem felst í Borgunarmálinu og vekur upp slæmar minningar um sölu ríkiseigna um og uppúr siðustu aldamótum, var kannski gott að að það gerðist svona snemma.

Borgunarmálið hringir mörgum bjöllum, enda vita menn meira en áður eftir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og kannanir á Hruninu.

Það hefur verið bent á það hér og annars staðar að of margt væri núna að gerast í þjóðfélagi okkar sem benti til ásóknar í það sama og sóst var eftir í græðgis- og einkavæðingunni, og einn angi af því er að víkja frá allri ábyrgð og tala Hrunið niður með því að kalla það "hið svokallað hrun" og reyna að endurskrifa söguna.  

Sem sagt: Að það sé að koma annað 2007, og hugsanlega sömu kjörorðin, "traust efnahagsstjórn" og "árangur áfram, ekkert stopp!"

Því að enginn skyldi gera lítið úr undirliggjandi hugsunarhætti og aldarfari þegar kafað er ofan í hvers vegna svona hlutir eru byrjaðir að gerast á ný.

 


mbl.is Þolum ekki sömu mistökin aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árangur ISIS í smáu og stóru.

Frankensteininn, sem magnaður var upp í svonefndu "Arabísku vori", þar sem Bandaríkjamenn dældu vopnum og stuðningi til "mótmælenda og frelsissveita" í Sýrlandi, sækir enn í sig veðrið og nær árangri í smáu og stóru, eins og fréttin um stafsetningarvillu 10 ára drengs í breskum skóla og afleiðingar hennar ber með sér.

Ótti, skelfing og tortryggni eru að hertaka alla hugsun og umræðu og eyðileggja þann frið, öryggi og rósemi hugans sem á að vera aðall lýðræðislegrar vestrænnar mennningar.

Nákvæmlega það sem ISIS-menn stefna að.

Því hatrammari, stanslausari og sjúklegri sem umræðan um múslima verður, því ánægðari geta ISIS menn orðið, enda drepa þeir nær eingöngu múslima, sem ekki þýðast ofbeldis- og öfgafullan boðskap þeirra.  


mbl.is Yfirheyrður vegna stafsetningarvillu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Áhrifamikill" stuðningur"?

Það er margra mál að mestu mistök John McCaine í kosningabaráttunni 2008 hafi verið að velja Söru Palin sem varaforsetaefni.

Svo vildi til að ég var staddur í Bandaríkjunum þegar hún hafði rétt nýlega verið valin og gat fylgst með henni í sjónvarpi á þeim tíma og ýmsu bulli sem vall upp úr henni þá.

Hún fór hinar mestu hrakfarir í viðtölum og kappræðum, svo mjög, að henni var líkt við Dan Quayle varaforseta George eldri Bush hvað snerti grunnhyggni og þekkingarleysi og endalausar vandræða uppákomur.

Nú segir Donald Trump að stuðningur Söru Palin sé áhrifamikill stuðningur.

Þessi "áhrif" sem Palin hafði 2008, urðu ekki þau jákvæðu áhrif sem McCain hafði vonast til heldur þveröfug áhrif.

En McCain er langan veg frá því að vera jafningi Trump í endemis málflutningi og kannski á eftir að koma í ljós varðandi Palin og Trump að sækjast sér um líkir og að kjaftur hæfi skel.   


mbl.is Palin lýsir yfir stuðningi við Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eru tvö lið inni á vellinum.

Eins og hálfs árs vinna við að byggja upp íslenska handboltalandsliðið fór í vaskinn á 15 mínútum í kvöld, og sömuleiðis fuku út um gluggann tvö stórmót á stundarfjórðungi.

Menn leita að ástæðum og eitt atriðið er ekki nefnt en er það einfaldasta í íþróttum: Það eru tvö lið inni á vellinum og ekkert lið er betra en mótherjinn leyfir.

Ef mótherjinn lærir á þig og honum gengur vel í því, verður þú að breyta um taktik og koma með mótleiki.

Aðlögunarhæfni er einhver mikilvægasti eiginleiki íþróttamanna.  

Afar athyglisvert var að sjá hve óskaplega oft íslensku leikmennirnir "töpuðu boltanum" á þann hátt að reyna níðþröngar sendingar inn á menn á línununni þar sem boltinn fór í gólfið og lenti í mótherjunum í stað þess að rata upp í hendurnar á ætluðum viðtakanda.

Hvers vegna svona oft í þessum leik?

Líklegasta skýringin er sú að þjálfari Króata hafi verið búinn að skoða vel myndir af fyrri leikjum Íslendinga og allar fyrri sendingar Íslendinganna af þessu tagi og fundið við því mótbragð.

Það vakti athygli að á þessum örlagaríka kafla leiksins eyddi liðið okkar furðu miklum tíma í það að kasta boltanum rólega á milli sín áður en sóknin var sett í gang, vitandi það að hver sókn má aðeins taka takmarkaðan tíma.

Þegar sóknin fór í gang virtist koma óþol í leikmenn sem gerði það að verkum að ekki var þolinmæði til að bíða eftir opnu færi heldur reyndar gólfsendingar í þrengslum sem króatíska liðið sá nær undantekningarlaust við.

Íslendingarnir virtust ekki luma á annarri aðferð, sem Króatar hefðu ekki kynnst áður.

Króatarnir voru búnir að kortleggja íslenska liðið, finna ráð við sóknarkerfi þess og ráð til að splundra vörn þess.

Það var helst á kafla í síðari hálfleik sem íslenska liðinu fór að ganga ögn betur við það að skipt var nýjum mönnum inn á sem breyttu leik og svip liðsins.

Kannski var leikurinn í kvöld upphafið að kynslóðaskiptum í íslenska handboltanum sem taka nokkur ár, - en skapa að lokum lið, sem ekki er eins brothætt og liðið hefur verið.

 


mbl.is Íslendingar á heimleið frá EM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjöllurnar hringja enn og aftur, - og hafa hringt í mörg ár.

Nú liggur mikið á að selja hlut ríkisins í Landsbankanum og "losa um fjármagn, sem fæst við sölu hans og koma því í hendur ríkisins" eins og það er orðað.

Er því þá alveg sleppt þótt arðurinn af hlut ríkisins sé það góður að smám saman getur hann samtals numið söluverði bankans og dreifst þægilega yfir næstu ár.  

Og bjöllur hringja, bæði frá fyrri tíð og til þessa dags þegar valdaöflin sækjast eftir því að einkavæða hvaðeina.

Ef þetta verður gert verður það í annað skipti sem allir stærstu bankar landsins eru í einkaeign.

Hitt var á árunum 2002-2008 með afleiðingum, sem allir þekkja.

Það er ekki skynsamlegt að setja nær öll eggin að nýju í sömu körfu.

Bjöllurnar hringja líka varðandi það hvernig þjónustu heilbrigðiskerfisins er færð svo mjög yfir til einkageirans að þúsundir fólks eru á ógnarlöngum biðlistum og aðeins hinir ríku geta keypt sig fram hjá biðlistunum.

Og sparnaðurinn í heild verður enginn heldur oft tilfinnanlegt tap, bæði peningalega í sjálfu heilbrigðiskerfinu og í óbætanum legum skaða örkumla og dauða, þjáninga jafnt sem tekjumissis eins og biðlistinn vegna hjarta/gáttaflökts sýnir grimmilega og bent hefur verið áður áð á þessari bloggsíðu.

 

 


mbl.is Liggur ekkert á að selja bankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tengiltvinnbílar eru afar áhugaverð lausn.

Helsta vandamálið við rafknúin farartæki er orkuáfyllingin. Venjulegir tvinnbílar hafa þann ókost að bensínvélin ein og uppsöfnuð orka niður brekkur eða þegar bíllinn hægir á sér geta endurnýjað driforkuna.

Rafbílar sem aðeins eru knúnir rafmagni og það tekur tíma, líka í hraðhleðslu, að hlaða rafgeymana.

Þess vegna er millistigið, tengiltvinnbílar, áhugaverð lausn, því að hún gerir mögulegt að halda áfram ferð sinni á afli bensín/dísilvélarinnar einnar þótt bíllinn verði rafmagnslaus.

Og tæknilega er mögulegt að aka eingöngu á rafaflinu dögum og vikum saman, til dæmis í borgarumferð, með því að hlaða bílinn með jöfnu millibili.  

 


mbl.is Tengiltvinnbílar flæða yfir Noreg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Iðrun, fyrirgefning og sátt.

Iðrun, fyrirgefning og sátt eru mikilvægur þáttur í kristinni trú. Ef mál Atla Helgasonar er skoðað, vaknar spurning um hvort vanti upp á að forsendum þessa fyrirbrigðis hafi verið náð í því máli.

Þegar 86 manns voru árið 2009 beðin að fjalla um þær í stuttu máli í bókina Fyrirgefning og sátt, varð til eftirfarandi texti með sínu lagi:

 

FYRIRGEFNING OG SÁTT.

 

Án fyrirgefningar friðlaus verður hver maður, -

fær ekki lifað lífinu sæll og glaður.

Batnandi manni er best að lifa og deyja,

bæta fyrir sín afbrot, sig auðmjúkur beygja.

 

Breyskleikinn leikur mann illa á ýmsa vegu,

ágirnd og sjálfselska, systurnar hættulegu; -

syndirnar lúmsku, losti, græðgi og hroki,

líf okkar eitra, - oft verða að þrúgandi oki.

 

Misgjörðir ýmsar og mistök á vegum hálum

meinvörp og sár geta skapað í viðkvæmum sálum.

Allir menn  eiga einhverjum skuld að gjalda.

Öll þurfum við á fyrirgefningu´að halda.

 

Vont er að vera fullur af hefndarhuga.

Heiftúð og gremja oft skynsemi´og hugarró buga.

Enginn er bættari náungannn auri að ata,

því oftast fer hatrið verst með þá, sem að hata.

 

Þú, sem ég braut gegn, þér á ég skuld að gjalda.

Þungbær er sökin og erfitt er henni að valda.

Ef framvegis gegn syndinni verð ég á verði

viltu fyrirgefa mér það sem ég gerði.

 

Fyrirgefning og iðrun mér frið munu veita. 

Fyrirgefningar Drottins ég verð að leita,

en víkja ekki frá verknaðinum hálfum,

ég verð að geta fyrirgefið mér sjálfum.

 

Er endirinn nálgast áfram ég trúi og vona

og ósk mín til þeirra sem braut ég á móti er svona:

Þótt sakbitinn muni ég síðustu rimmuna heyja

að sáttur við Guð og menn ég fái að deyja.

 

 

 

 


mbl.is Heyrði þetta fyrst í fréttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lágt olíuverð er notadrjúgt.

Styrking krónunnar, sterk staða sjávarútvegs og uppgangur í ferðaþjónustu eiga drjúgan þátt í því að gera mögulegt að hafa hemil á verðbólgu með minni hættu á verðhækkunum á innflutningsvörum.

Það skilar einnig auknum kaupmætti.

En undirliggjandi er stórlækkun á olíuverði, sem er snar þáttur í efnahagslífi þjóðarinnar, gefur ákveðið svigrúm og auðveldar alla efnahagsstjórnun.

Það sést vel þegar þetta er borið er saman við afleiðingar stórfelldra verðhækkana í olíukreppuni, sem skall á 1979.

Þá misstu íslenskir stjórnmálamenn tökin á verðbólgunni, sem komst yfir 100 prósent vorið 1983.  


mbl.is Krónan styrktist um 7,9 prósent
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gos á Íslandi - stærri stórfrétt erlendis.

Þegar gos hófst í Heimaey 23. janúar 1973, fór tímaritið Time þegar af stað og gerði ráðstafanir til þess að gosið yrði að aðalgrein og forsíðugrein blaðsins.

En Lyndon B. Johnsons fyrrverandi Bandaríkjaforseti tók upp á því að deyja daginn áður og Eyjagosið varð að víkja fyrir Johnson sem forsíðugrein.

Hann var 64 ára gamall en hafði reykt þrjá pakka á sígarettum á dag fram til ársins 1955 þegar hann fékk hjartaáfall, - hefur sennilega ekki þolað reykingarnar.

Náði sér eftir áfallið og hætti að reykja að mestu, en byrjaði aftur á fullu 1969 þegar hann lét af embætti.  

Svipað gerðist 1991 þegar Hekla byrjaði að gjósa. Enn og aftur varð íslenskt janúargos að þoka fyrir stærri frétt erlendis, upphafi Flóabardaga, og hið ótrúlega gerðist, að andlát Ólafs Noregskonungs þennan sama dag varð að þriðju frétt.

Ég minnist þess enn hvað Stöð 2 sem ég vann þá hjá, var óheppin varðandi Heklugosið.

Fljúga varð blindflug að kvöldlagi og Sjónvarpið fékk fyrir hreina tilviljun úthlutað flughæð, sem hægt var að sjá gosið úr, á sama tíma og okkar fólk sá ekki neitt.

En við gáfumst ekki upp, heldur ákváðum að ná forystunni með því að fljúga á tveimur loftförum, ég á TF-GIN og Sigurveig Jónsdóttir með þyrlu, og náðum þá langbestu myndunum, sem teknar voru af gosinu og lifðu lengi vel á eftir, þegar takmarkaðri myndir Sjónvarpsins voru gleymdar.


mbl.is Viðburðaríkur dagur fyrir 25 árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband