12.5.2016 | 22:04
Klíkuskapur þjóða?
Meintur klíkuskapur þjóða hefur lengi loðað við Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og athygli vekur að aðeins eitt land í vesturhluta Evrópu komst áfram í kvöld.
Ef Tékkland er talið í þeim hópi, þótt það hafi verið austan Járntjaldsins í Kalda stríðinu, komust aðeins fjögur lönd úr vestanverðri álfunni áfram í hóp þeirra tuttugu landa sem standa á sviðinu í úrslitakeppninni.
Þegar hallar á vesturhliðina og engin Norðurlandaþjóð kemst áfram, Svíar bjargast vegna þess að vera gestgjafar, finnst ýmsum að Austur-Evrópulöndin hygli hvert ööru, en þá er þess að gæta, að í gegnum árin hafa íslensku þulirnir talað tæpitungulaust um það hve eðlilegt það sé að "vinir okkar" á Norðurlöndunum gefi okkur stig og að Norðurlandaþjóðirnar gefi hverjar öðrum stig.
Í fyrrakvöld var skortur á liðsinni frændþjóða okkar fyrirfram talið há íslenska laginu.
Lyktin af meintum klíkuskap nágranna- og frændþjóða má sjá og hefur lengi mátt sjá um alla álfuna, en að hluta til er skýringin líka sú, að smekkurinn fer oft eftir land- og menningarsvæðum.
Á þeim síðustu árum, sem þátttökuþjóðum hefur fjölgað mikið í austanverðri álfunni, hafa góð lög frá vestur- og norðurhlutanum stundum komist alla leið, lög Svía, Dana og Norðmanna.
Til dæmis hefur ekkert fyrr eða síðar fengið slíka yfirburðakosningu og lag Norðmannsins Alexanders Rybaks fyrir nokkrum árum.
Vonandi verður það svo, að afburða góð lög fái verðskuldaðan framgang í keppninni.
![]() |
Löndin sem komust áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.5.2016 | 18:31
Róbótablaðamennska og kranablaðamennska.
Jónas Kristjánsson kom á sínum tíma fram með nýyrðið kranablaðamennska, sem táknar þau vinnubrögð fjölmiðla að taka við fréttatilkynningum eða áróðurstexta almannatengsla og birta hann að mestu óbreyttan án þess að hrófla neitt við textanum.
Oftast gerist þetta vegna tímaskorts fréttamanna eða mannfæðar fjölmiðla, og slyngir áróðursmeistarar kunna að nýta sér þetta.
Mannfæð og skortur á fróðum, afkastamiklum og vandvirkum fjölmiðlamönnum veldur því að þeir eru oft ragir við að spyrja krefjandi spurninga, vegna hættu á að viðmælendurnir svari á þann veg að það komi upp um vanþekkingu frétta- eða blaðamanns.
Síðustu 15 ár hefur orðið mikill atgervisflótti frá fjölmiðlum. Öflug fyrirtæki og fjársterk valdaöfl gera þeim fjölmiðlamönnum, sem þeim sýnist vera bestir, tilboð, sem þeir geta ekki hafnað.
Þetta versnaði stórum í Hruninu og voru tilraunir fjölmiðla til að spara með hressilegum niðurskurði oft vanhugsaðar, þegar ómetanlegir reynsluboltar og viskubrunnar voru slegnir af, en ráðnir sem ódýrastir starfskraftar staðinn, þar sem sem jafnvel tveir eða þrír afköstuðu minna og lakara verki en þessi eini sem þeir leystu af hólmi.
Kranablaðamennska og vanmáttur fjölmiðla er ein helsta ógnin við umbætur í stjórnmálum og efnahagsmálum.
Róbótablaðamennska getur reynst gott verkfæri fyrir öfluga blaðamenn, en ekkert kemur í staðinn fyrir hæfni þeirra sem nýta sér hana.
![]() |
Róbótablaðamennska sífellt útbreiddari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.5.2016 | 06:48
Líkamsform Gylfa Þórs verður mikilvægt á EM.
Líkamsform bestu íþróttamanna gengur oft í bylgjum og nútíma þjálfunaraðferðir taka mið af því.
Afar mikilvægt er að viðkomandi íþróttamaður "toppi á réttum tíma" eins og stundum er sagt, þ. e. að líkamsform hans sé í hámarki þegar mest þarf á því að halda.
Það verður mjög mikilvægt fyrir íslenska liðið á EM að lykilmenn eins og Gylfi Þór Sigurðsson séu þá í hámarks formi.
Gylfi Þór virðist þegar vera með þetta í huga. Hann dró sig í hlé vegna meiðsla fyrir um viku að því er tilkynnt var, en það fylgdi einnig sögu að meiðslin væru ekki alvarlega og að þau ættu að vera að baki þegar stóru stundirnar fara að renna upp eftir mánuð.
Varkárni af þessu tagi kann að vera liður í því að sem minnst truflun verði á þjálfunarrytma Gylfa, sem byggist á því að einblína ekki á núverandi form hans, heldur hvernig það getur orðið sem best á EM, þar sem hann þarf "að toppa á réttum tíma."
![]() |
Gylfi Þór rakaði inn verðlaunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.5.2016 | 23:28
Þegar horft er vítt yfir sviðið.
Bæring Ólafsson er einn þeirra Íslendinga sem horft hefur á íslensk málefni erlendis frá.
Alveg eins og sagt hefur verið að glöggt sé gestsaugað getur slíkt átt við Íslending sem ekki býr eingöngu við útsýni af sínum bæjarhóli heima heldur horfir líka yfir sviðið utanfrá með víðsýni í tíma og rúmi.
Bæring Ólafsson er í hópi slíkra og sér, að Andri Snær Magnason er ótvíræður fulltrúi nýs tíma, nýrrar sýnar og nýrra, stórbrotinna verkefna 21. aldarinnar í komandi forsetakosningum.
Rétt eins og vefþjóðviljamenn fóru offari gegn Guðna Th. Jóhannessyni með því að reyna að kasta rýrð á þekkingu hans á forsetaembættinu og íslenskum stjórnmálum, eru ný og glæsileg verðlaun, sem Andri var að fá í Frakklandi ekki í samræmi við samfellda herferð sem hefur verið í gangi á hendur honum fyrir að vera óverðugur þeirra viðurkenninga, sem hann hefur hlotið á glæstum ferli sínum hér á landi og erlendis.
Andri er til dæmis eini íslenski rithöfundurinn sem hefur fengið Íslensku bókmenntaverðlaunin í öllum þremur verðlaunaflokkunum.
Í báðum tilfellum var réðust hælbítar á garðinn þar sem hann var hæstur hjá þessum tveimur frambjóðendum.
![]() |
Áfram hættur en styður Andra Snæ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.5.2016 | 12:23
"Það er nefnilega vitlaust gefið."
"Það er nefnilega vitlaust gefið" orti Steinn Steinarr. Það á við um þá ferð án fyrirheits sem hefur verið í gangi í beislun jarðvarma til raforkuframleiðslu hér á landi.
Orka Hellisheiðarvirkjunar er þegar á niðurleið eftir aðeins einn áratug vinnslu enda er orkuframleiðslan víðsfjarri því að standast alþjóðlegar kröfur um sjálfbæra þróun.
Þótt farið verði um víðan völl á svæðinu frá Nesjavöllum suðvestur um Þrengsli, mun orka alls þessa svæðis samt verða uppurin í tíð barnabarna núlifandi Íslendinga.
Í upphafi er aðeins miðað við 50 ára nýtingartíma jarðvarmaorkuvirkjana hér á landi, sem er meira að segja langt fyrir neðan endingartíma margra kolavinnslusvæða.
Ekkert hefur verið gert í því að búa til áætlun fyrir nýtingu jarðvarmans þar sem horft er yfir allt sviðið hér á landi og á möguleikana á því að hún að hún standist kröfuna um sjálfbæra þróun. En hér ríkir andstætt sjónarmið, sjónarmið rányrkju.
![]() |
Áfram borað á Hellisheiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.5.2016 | 07:47
Ástæðan fyrir falli Sigmundar Davíðs var tvíþætt.
Nú eru tveir mánuðir síðan Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þrætti fyrir það þegar tekið var sjónvarpsviðtal við hann, að Wintris væri til.
Síðar fór hann á bak við eigin þingflokk og þingflokk samstarfsflokksins í fræga sneypuför til Bessastaða, "aleinn", eins og forseti Íslands hefur orðað það, til þess að fá forsetann til að rjúfa þing með sér.
Karl Garðarsson alþingismaður var gráti nær í sjónvarpsviðtali og gat ekki leynt tilfinningum sínum eftir að forsetinn greindi fjölmiðlamönnum frá þessu á Bessastöðum.
Þetta tvennt og fjölmennustu mótmæli síðustu ára á Austurvelli daginn áður ollu því að forsætisráðherrann var rúinn öllu trausti, jafnt í innsta hring sem meðal annarra þennan dag.
Svo einfalt er það.
![]() |
Hátt í 400 milljónir í skatta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.5.2016 | 00:33
Afar vel gert en komst ekki yfir.
Mér rann í brjóst í kvöld eftir að Greta Salóme flutti lag sitt í Eurovison. Mig dreymdi að ég væri að syngja lagið "Til hamingju, Ísland" fyrir Sigrúnu Stefánsdóttur.
Svo vaknaði ég og áttaði mig á að það lag hafði ekki komist áfram 2006 af því að Evrópa náði ekki boðskap lagsins og misskildi það, - fattaði ekki nógu vel að Sylvía Nótt var uppskálduð persóna sem Ágústa Eva lék sennilega bara of vel.
Þetta lag hafði unni yfirburðasigur hér heima en náði ekki í gegn ytra og mig hafði einfaldlega dreymt fyrir daglátum.
Dökkt yfirbragð útfærslunnar á lagi og texta lags Gretu Salóme virðist ékki hafa fallið Evrópu nógu vel í geð, sem þarf á uppörvun og birtu að halda, þótt öll framsetning og flutningur lagsins væri afar vel af hendi leyst og ekkert út á það að setja.
![]() |
Ísland komst ekki áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.5.2016 | 14:10
Panamaskjölin aðeins örlítill hluti af dæminu?
Lekinn í Panamaskjölunum er aðeins frá einni skrifstofu. Hvað um allar hinar?
Þegar starfsmenn 60 minutes könnuðu umfang peningaþvættis í Washingtonborg einni var leitað með tálbeitu til 16 lögmannsskrifstofa ef ég man rétt.
Aðeins ein vildi ekki hjálpa til við að þvo illa fengið fé frá uppdiktuðum einræðisherra í Afríku, sem vildi kaupa snekkju, húseignir og þotu án þess að hægt yrði að rekja straum fjárins til Afríku.
Allar hinar skrifstofurnar voru til í tuskið, ef nógu vel yrði greitt fyrir greiðann.
Ágiskunartölurnar, 1000 milljarða tap þjóðarbús Íslands, og 900 þúsund milljarða tap alls á heimsvísu, eru stjarnfræðilega háar.
Ef til vill langt frá því að vera allur pakkinn og Ísland hlutfallslega í fremstu röð!
![]() |
400 leitir á sekúndu í gærkvöldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.5.2016 | 09:13
Jafnvel margra alda gamlar óuppgerðar sakir.
Í kvöld hefst Evróvision-söngvakeppnin. Hún er dæmi um viðleitni til þess að þjóðir álfunnar geti átt sér sameiginlegan grundvöll og þátttaka Ástralíu og Ísraels er dæmi um, að hugsunin um áhrif Evrópu nær út fyrir álfuna.
Full þörf er á fyrirbæri sem þessu, en það leiðir líka hugann að því hve erfitt það er að viðhalda friði og jafnvægi.
Í ófriði á Balkanskaga í upphafi og aftur við lok síðustu aldar kom í ljós, að það, sem kalla má "óuppgerðar sakir" frá því fyrir mörgum öldum, er oft sem fleinn í sambúð þjóða og þjóðabrota.
Stríðsglæpir í Kosovo og annars staðar á Balkanskaga í lok aldarinnar byggðust á eftirmálum atburða fyrir sjö öldum.
Stofnun Ísraelsríkis var afleiðing af brottrekstri Gyðinga frá Palestínu fyrir næstum tveimur árþúsundum.
Hefndarhugur er eitthver skæðasta og illvígasta fyrirbærið í hug manna og þjóða og endurnýjun átaka milli múslima og kristinna manna sem hófust upphaflega fyrir meira en tólf hundruð árum er dæmi um það hve skammt hefur miðað í baráttu fyrir sönnum friði í aldanna rás.
![]() |
Ekki hægt að treysta á frið í Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
10.5.2016 | 00:15
Minnir á umræðuna um jarðvegseyðinguna.
Í áratugi hefur verið þrætt um það hvort mesta jarðvegs- og gróðureyðing sem þekkist í nokkru landi hafi verið af mannavöldum eða að náttúrulegum völdum.
Færð hafa verið þau rök að jarðvegseyðingin hafi verið vegna eldgosa og kalds tíðafars en ekki vegna ofbeitar.
Það er út af fyrir sig rétt að eldgos og kuldar hafi haft slæm árhrif, en einmitt þess vegna, var enn nauðsynlegra en ella að minnka beitarálag á landið.
Svipað er að heyra varðandi Mývatn. Ekki sé sannað að dauði lífs í vatninu sé af mannavöldum í sveitinni sjálfri, heldur af völdum hlýnandi veðurfars og náttúrulegra þátta.
En einmitt þess vegna er meiri nauðsyn en ella að ráðast gegn mengun vatnsins af völdum margfalds ferðamannastraums og umsvifa og drepa málinu ekki á dreif með því að skella skuldinni á annað.
Raunar hefur hvorki verið sannað né afsannað að aðförin að lífríki vatnsins heima fyrir, allt frá byggingu Kísiliðjunnar, sé orsakavaldur, og þess vegna á einfaldlega að fara að ákvæðum Ríó-sáttmálans og Ramsar-samningsins og grípa til harðra ráðstafana nú þegar.
![]() |
Stjórnvöld liðsinni við Mývatn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)