5.6.2016 | 10:36
Tignarlegt "átakasvæði".
Fyrir þremur dögum var tignarlegt að líta yfir Bárðarbungu og svæðið umhverfis hana þegar flogið var yfir hana á leið til Sauðárflugvallar.
Þegar komið er í átt að henni úr suðvestri, er skriðjökullinn Köldkvíslarjökull nær okkur á þessari mynd.
lítið þarf út af að bregða um staðsetningu goss undir Bárðarbungu til þess hamfaraflóð fari niður undir Köldukvíslarjökul um Köldukvísl, Hágöngulón og þaðan yfir stíflurnar við það og áfram niður í virkjanakerfið í Tungnaá og Þjórsá.
Auk þess gæti hluti hlaupsins færi til vesturs niður í Þjórsá og hafa sumir áhyggjur af Þjórsárverum í því sambandi.
Þegar flogið er nær Bárðarbungu sést hún sjálf auðvitað betur og útsýni birtist til austurs, þar sem Dyngjujökull, Kverkfjöll og fjærst Snæfell mynda bakgrunn fyrir það svæði, þar sem upphaf hamfarahlaups til norðurs um Jökulsá á Fjöllum, allt til sjávar gæti orðið.
Ef hlaup kæmi niður Rjúpnabrekkujökul, sem er næst okkur á þessari mynd, fer hamfarahlaup niður Skjálfandafljót til sjávar.
Á neðstu myndinni, sem ég ætla að setja hér inn, er skimað til norðurs yfir eina af þeirri leiðum, sem hamfarahlaup úr Bárðarbungu getur farið ef það kemur undan Dyngjujökli og æðir alla leið norður í Öxarfjörð.
Myndin er tekin á flugi yfir Kverkfjöllum, en það glyttir í sporð Dyngjujökuls vinstra megin á myndinni.
Það gefur hugmynd um stærð þess svæðis sem hamfarahlaup vegna goss í Bárðarbungu geta farið, að ef flogið er beint frá Þjórsárósum um Bárðarbungu og hlaupleiðina til norðurs um Jökulsá á Fjöllum, er flugleiðin jafnlöng og ef flogið er frá Reykjavík til Egilsstaða.
![]() |
Enn skelfur við Bárðarbungu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2016 | 19:02
Gilda orðin "klofin eftir kyni?" um Trump og Clinton? Jú, auðvitað.
"Klofin eftir kyni" er fyrirsögn á helstu upplýsingum nýrrar skoðanakönnunar um Donald Trump og Hillary Clinton. Um það gæti gilt þessi staka:
Nýjast er að frétta frá þeim,
frú og herra´og og skýrist brátt,
að "klofin eftir kyni" hjá þeim
kunni að vera á tvennan hátt.
![]() |
Klofin eftir kyni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.6.2016 | 11:05
Einn af hundrað mestu snillingum síðustu aldar?
Muhammad Ali var eini íþróttamaðurinn, sem sérfræðingar tímaritsins Time töldu hafa verið einn af 100 mestu snillingum (genius) síðustu aldar.
Það var ekki endilega vegna þess, að aldrei, fyrr né síðar, hefur verið uppi 95-100 kílóa þungur hnefaleikamaður, 1,91 metri á hæð, sem gat "flögrað eins og fiðrildi og stungið eins og býfluga), dansað og slegið á ofurhraða léttvigtarboxara í 15 lotur með fegurðarhreyfingum ballettdansarans, eða að hann hefði haft betur í bardögum við fjóra heimsmeistara í þungavigt og tvo í léttþungavigt, heldur ekki síður vegna þeirra gríðarlegu áhrifa, sem hann hafði á íþróttir, þjóðmál og stjórnmál síns tíma.
Hann átti það sameiginlegt með öðrum helstu snillingum að sköpunargáfa hans og afköst eða framlegð, var einstök.
Hugrekkið var aðdáunarvert bæði utan og innan hrings. Hann var í fremstu röð í andófshreyfingu gegn Víetnamstríðinu og kynþáttamisrétti í Bandaríkjunum og mátti þola það að vera sviptur réttindum til að verja heimsmeistaratitil sinn í þrjú og hálft ár vegna málaferla af því að hann neitaði að gegna herþjónustu af trúarástæðum.
Hæstiréttur sneri niðurstöðu undirréttar við í tímamótadómi, og það byggðist á því að Ali gat vitnað í meginatriði múslimastrúar sinnar varðandi frið og að drepa ekki menn, á sama hátt og Mormóni hafði verið sýknaður áður af svipaðri ástæðu varðandi sína trú.
Ótal ummæli Ali urðu fleyg eins og t.d. "Ég á ekkert sökótt við Viet Kong. Enginn þeirra hefur kallað mig "nigger". "Hvers vegna skyldi ég, svartur maður, fara að drepa gulan mann á vegum hvíts manns, sem rændi landi af rauðum manni?"
Hluti af sálfræðihernaði Ali gagnvart andstæðingunum var fólgið í fádæma yfirlæti og stundum hroka sem fór yfir strikið:
"Ég er svo fljótur, að ég get slökkt á ljósarofanum í herbergi mínu og verið kominn upp í rúm áður en ljósið slokknar." "Ég get verið svo illskeyttur, að ég get gert meðöl veik."
"Foreman notar aldrei spegil,- þorir það ekki, af því að það myndi líða yfir hann ef hann sæi hvað hann er ljótur". "Heimsmeistarar eiga að vera fallegir eins og ég."
Ali var eitt sinn spurður álits á því þegar menn segðu að hann væri árásargjarnan og illskeyttan (truculent)og svaraði samstundis:
"Ég veit ekki hvað truculent þýðir, en ef það á við mig hlýtur það að vera gott."
Ali hefur haft áhrif á milljónir aðdáenda sinna um víða veröld vegna baráttu sinnar á heimsvísu fyrir frelsi, jafnrétti og mannréttindum.
Ef hann hefði hætt keppni eftir að hann endurheimti titil sinn á móti Foreman 1974, eða ekki síðar en eftir bardagann mikla við Frazier 1975, hefði hann kannski sloppið við að fá Parkinsonveikina, þótt þetta verði aldrei sannað til fulls.
En hann gat ekki hætt fyrr en 1981 og var þá búinn að þola yfirgengilegar barsmíðar, einkum í bardaga við Earnie Shavers, sem Ali sagði hafa verið lang höggþyngsta andstæðing sinn.
Og hann sagðist viljugur berjast stærsta bardaga sinn, við sjálfan Parkinson, og láta til sín taka svo um munaði.
Einn af snillingum og mikilmennum síðustu aldar, sem ætíð reis upp í þau þrjú skipti sem hann laut í strigann, er nú hniginn að foldu.
![]() |
Muhammad Ali látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
4.6.2016 | 09:17
Áratuga vanræksla hefnir sín.
Þegar mjög stórt kerfi eins og heilbrigðiskerfið á Íslandi er svelt árum saman, jafnvel samfellt í 15 eða jafnvel 25 ár, eins og gert hefur verið hér á landi, verður ástand þess smám saman þannig, að ef ekki er brugðist við á mjög róttækan hátt, getur það tekið önnur 15-25 ár að vinna þetta tap upp.
Af sérstökum ástæðum hef ég átt þess kost að fylgjast með rekstri og aðstæðum á einni af deildum Landsspítalans samfellt síðastliðið hálft ár, af því að eftir margra áratuga slysalaust tímabil, komu tvö slys með fjögurra mánaða millibili, og við það hefur þetta ástand birst æ greinilegar. Þar áður kynntist ég ástandinu á tveimur biðlistum spítalans.
Á bráðadeildinni er þetta ekki eitthvað, sem gerist bara á álagstímum hálkuslysa, svo að það sé afgreitt á meðan á því stendur, sem óvenjulega erfitt ástand, heldur er það viðvarandi.
Þegar gengið er í gipsi og haltrað um um þessar mundir, gefa miklu fleiri sig á tal við mann en ella, og segja frá sinni reynslu.
Síðast í gær sagði kona mér frá því að hún hefði beinbrotnað í Austurríki. Hún fór þar á bráðadeild og var samstundis tekin í svo gagngerar myndatökur af ýmsu tagi af öllum líkamshlutum, jafnvel sneiðmyndatöku, að öll meðferðin tók aðeins innan við klukkustund.
Á deildinni var engin biðröð, og myndatakan miðaði að því að komast strax að því í eitt skipti fyrir öll og endanlega hvaða líffæri og bein væru heil og hver ekki.
Það blasir við á bráðadeildinni í Fossvogi, að hún hefur verið svelt svo mikið og svo lengi, að biðraðir eru þar óhjákvæmilega viðvarandi ástand.
Á starfsfólkið er lögð mikil pressa, bæði á álagstímum, sem verða vegna hálkuslysa á veturna, og einnig á "eðilegum tímum."
Starfsfólkið sýnir mikla og einstaka alúð, elskulegheit og æðruleysi til þess að komast yfir sín miklu daglegu verkefni, en það blasir við þeim, sem kemur þarna oft inn og fylgist með verkefnum þess, að þessi vinnuaðstaða er óviðunandi og eykur hættu á mistökum.
Í mínu tilfelli fólst slysið í því, að bíl var ekið af afli á hlið reiðhjóls, er slíkur árekstur í raun tveir árekstrar: Annars vegar öðru megin á líkamann, í þessu tilfelli vinstra megin, þar sem ákoman er allt frá ökkla upp á höfuðið, og höfuðið brýtur framrúðu bílsins efst við þakbrúnina, af því að bíllinn lyftir hjólreiðamanninum upp, og síðan verður mun harðari árekstur hjólreiðamannins við malbikið, sem hann lendir á eftir flug ofan af þaki bílsins fram fyrir hann.
Sú ákoma er mjög hörð á alla hægri hliðina, allt frá hægri ökkla, hné, mjöðm, handlegg, öxl, háls og upp í höfuð.
Myndatökurnar beinast því að öllum líkamshlutum, en vegna tímaskorts liggur samt í leyni hætta á að einhver ein mynd hafi ekki verið tekin, og kannski eina myndin af þeim öllum, sem hefði sýnt brot.
Þegar hætta er á því að margir hlutar líkamans hafi brotnað öðru megin í svona árekstri, verður erfitt að leggja sjúklinginn þannig til við myndatökuna að öll sjónarhorn sé hægt að nota.
Í þessu tilfelli kom í ljós að þrátt fyrir blæðingar og mar á sex stöðum innvortis og jafn mörgum stöðum útvortis, hefði ekkert bein brotnað, sem verður að telja einstaklega mikla heppni.
Eftirmeðferðin miðaðist við þessa megin útkomu, ekkert beinbrot, en eftir sex vikur kom endanlega í ljós, að hægri ökklinn hafði dregist óeðlilega mikið aftur úr öðrum meiðslasvæðum, svo að teknar voru myndir af honum að nýju.
Og þá kom í ljós að þrátt fyrir eins ítarlegar myndatökur og unnt var að beita, miðað við aðstæður í tíma og rúmi, var ökklinn brotinn, og að það hafði ekki sést í upphafi, af því að það vantaði þessa einu mynd af öllum hinum fjölmörgu myndum, sem teknar voru, og þurfti að taka. Æ,æ, óheppni.
Til þess að taka þessa einu mynd, sem vantaði, hefði þurft að velta sjúklingnum yfir á lemstraða öxl, sem mjög tæpt var á að væri brotin, eða ella að fara út í tafsamar tilfæringar fyrir þessa einu mynd.
Eftir sex vikur hafði öxlin hins vegar jafnað sig nógu mikið til þess að hægt væri að velta sjúklingnum á hana við myndatöku.
Ég er búinn að hitta nógu marga síðan í vetur og heyra sögur þeirra til þess að vita, að þegar svona óheppni er á ferð, getur það tekið margar vikur og mánuði að fá beinbrot til að gróa, sem ekki hefur verið sett strax í gips heldur hökt á brotinu, svo að ástand brotsins hefur orðið verra fyrir bragðið.
Í sumum tilfellum, eins og í þessu, er um skábrot að ræða sem kannski nær ekki alveg alla leið í gegn um beinið, en verður síðan á endanum að brjóta upp og hreinsa til þess að byrja fyrir aftan byrjunarreit.
Niðurstaða:
Um allan Lansdsspítalann með sínum biðlistum og skorti á nægjanlegu húsnæði, tækjum og aðstöðu, blasir við að tjónið vegna vanhugsaðs sparnaðar verður miklu meira fyrir þjóðfélagið í formi vinnutaps, þjáninga og auka meðferðar en svokallaður "aðhalds"- sparnaður. Bæði fyrir menn eins og Kára Stefánsson, sem ættu að vita hvað þeir eru að segja, og leikmenn sem kynnast einstökum atriðum, er ekki hægt að una þegjandi við þetta.
Og makalaust var að sjá og heyra það sagt í sjónvarpsviðtali í vetur að ástandið og álagið á bráðadeildinni væri "sviðsett leikrit."
Maður verður eiginlega orðlaus við að heyra slíkar fullyrðingar eftir að hafa kynnst aðstæðum á hlutum þjóðarsjúkrahússins í rúmt ár.
![]() |
Öryggi sjúklinga ógnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.6.2016 | 21:55
Löng barátta Reynis. Náttúran njóti vafans?
Ég man eftir því þegar Reynir Bergsveinsson reyndi að andæfa þeirri hákvörðun að gera leið yfir Mjóafjörð um Hrútey.
Á þeim tíma kom til greina að grafa göng undir Eyrarfjall (Hestakleif) með talsvert meiri styttingu.
Það varð ofan á að fara yfir Hrútey og þjóna með því hagsmunum fárra á kostnað hinna fjölmörgu sem fara þessa þjóðleið.
Ekki man ég lengur hvort göngin hefðu orðið dýrari og nú verður engu um breytt.
Hins vegar er ljóst að skilyrði Ríósáttmálans um að náttúran eigi að njóta vafans hefur ekki verið í heiðri höfð með því að útbúa áningarstað og koma á umgangi og ónæði í Hrútey.
Er það svo sem ekki í fyrsta skiptið sem svona er að málum staðið.
Nú er búið að gera áningarstaðinn engu að síður, og þá er bara næsta skref, að sjá, hvaða áhrif hann hefur á hið magnaða fuglalíf í eyjunni.
Ef þau eru umtalsverð og neikvæði er komið tilefni til að segja: Nú er nóg komið og færið þið áningarstaðinn.
![]() |
Vill fá áningarstaðinn burt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2016 | 17:41
Öryggishlutverk Reykjavíkurflugvallar.
Ísland er eina landið í Evrópu, þar sem eru 1300 kílómetrar eða meira til alþjóðlegs flugvallar í öðru landi. Í öllum löndum á meginlandinu er hægt að velja úr tugum alþjóðlegra flugvalla sem varaflugvalla samtals í heimalandinu og næstu löndum.
Stundum er eins og sumum yfirsjáist þessi augljósu sannindum.
Öryggishlutverk Reykjavíkurflugvallar mótast mjög af þessu, því að ef hinir örfáu alþjóðaflugvellir landsins lokast allir á sama tíma, getur hlotist af því stórslys.
Auk öryggishlutverksins er afar mikið hagræði af því að hægt sé að nýta þann alþjóðaflugvöll, sem næstur er Keflavíkurflugvelli, og má mæla það hagræði jafnvel í milljörðum.
![]() |
Ekki lent í Keflavík vegna þoku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
3.6.2016 | 09:00
Algeng lýsing vandræða: "Ekki samstaða meðal landeigenda."
Ýmis af helstu náttúruundrum Íslands hefðu betur verið friðlýst fyrir alllöngu. Eftir að fólk flutti burtu eða landeigendur féllu frá, urðu landeigendurnir svonefndu miklu fleiri en áður þegar niðjar hinna látnu tóku við eignaréttinum.
Nú má sjá afleiðingarnar víða um land og má nefna Reykjahlíð í Mývatnssveit, Jökulsárlón og nú síðast Látrabjarg sem dæmi.
Því fleiri sem landeigendurnir eru, því meiri hætta er á að þeir séu ekki sammála um það hvernig vernda eigi náttúruvættin eða nýta þau.
Þeir búa flestir hverjir ekki á staðnum, hafa þess vegna afar misjafnra hagsmuna að gæta og líta misjöfnum augum á silfrið.
Í drögum stjórnarskrárnefndar um stjórnarskrárgreinar um náttúru og auðlindir er búið að bæta inn ákvæði um sérstakan rétt landeigenda á Íslandi, svona rétt eins og að orðin "eignarétturinn er friðhelgur" nægi ekki.
Ekki er vitað til að svo komnu máli að slíkt sérákvæði um landeigendur sé að finna í stjórnarskrám annarra landa og má þetta furðu gegna.
Og þó ekki. Á ýmsum breytingum á nefndum greinum má glögglega sjá hvernig sterk valda- og hagsunaöfl hafa breytt þeim það mikið að umbótahugsun þeirra í þágu náttúru og almannahagsmuna er í raun rústað.
![]() |
Ósamstaða um friðlýsingu Látrabjargs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2016 | 22:50
Ásóknin í auðlind þjóðarinnar.
Það gat nú verið að enn einu sinni sé hafinn upp söngurinn um að láta sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar í hendur einkaaðila, sem í okkar litla kunningjaþjóðfélagi eru oftast frekar réttnefndir einkavinir.
Til að gylla boðið um söluna, er rætt um að söluandvirðið renni í sérstakan auðlindasjóð.
En hvað um tekjurnar af sölunni?
Eða þá um þau náttúruverðmæti sem fórna þarf. Myndin hér á síðunni var tekin í dag úr lofti yfir austurenda hugsanlega fegursta fjallavatns lansins, Langasjávar.
Vatnið er ísi lagt, hægra megin við svonefnd Fögrufjöll, en neðst til vinstri glyttir í Skaftá.
Það er ekki langt síðan einbeittur vilji var látinn í ljós varðandi það að veita hinni aurugu Skaftá inn í þetta vatn, sem er svo heiðblátt á sumrin.
Og ekki bara að gera það drullubrúnt heldur líka að fylla það af aurnum og eyða því.
Er með aðra mynd á facebook nokkru vestar, þar sem svonefnd Bjallavirkjun hefur verið eins og miltisbrandur í áratugi til að umturna hinum fögru Kýlingum, sem svo eru nefndir.
Og helst að einkavinavæða nýtinguna en ekki hafa það eins og Norðmenn með sitt stóra ríkisrekna orkufyrirtæki.
Hið nöturlega við þetta mál er, að sömu valda- og hagsmunaklíkurnar koma við sögu, hvort sem um er að ræða einkarekstur eða opinberan.
Þannig hefði Kárahnjúkavirkjun verið óhugsandi nema með þeirri sovésku aðferð, sem beitt var, og byggðist á því að setja ríkissjóð Íslands í veð fyrir gríðarlegri áhættu, sem tekin var.
Orðrétt hjá lögfræðingi Landsvirkjunar, þegar hann var að koma landeigendum í skilning um það, skömmu eftir að framkvæmdir hófust, að þeir fengju aðeins brot af verðmæti landsins, sem tekið var af þeim:
"...Kárahnjúkavirkjun er erfið og áhættusöm jaðarframkvæmd í landfræðilegu-, tæknilegu, umhverfislegu og markaðslegu tilliti, í raun eyland í raforkukerfinu, - ekki hægt að útiloka að stofnkostnaður fari fram úr áætlunum vegna tæknilegra örðugleika á byggingartíma, - rekstrarkostnaður Hálslóns geti orðið umtalsverður..."
![]() |
Uppskipt Landsvirkjun slæm hugmynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 3.6.2016 kl. 00:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.6.2016 | 18:03
Wow!, hvílíkt ævintýri!
Uppgangur flugvélagsins WOW air er ævintýri líkastur og af svipuðum meiði og svo margt annað sem stórfjölgun ferðamana hefur haft í för með sér og hefur líka komið fram í uppgangi annarra flugfélaga og ferðaþjónustufyrirtækja.
En WOW ævintýrið varð einfaldlega til upp úr engu og það gefur því sérstakan blæ.
Á bak við Airbus breiðþoturnar og raunar aðrar vélar fyrirtækisins, allt niður í ATR-42, er sá bakgrunnur frá þeim tíma sem skrokkar þeirra voru hannaðir, að þeir byðu upp á meiri sætisbreidd en aðrar þotur þess tíma, sem voru hannaðar fyrir meira en 60 árum þegar farþegar voru minni en nú er.
Þetta skilar sér einkum á löngum flugleiðum í betri líðan farþega.
![]() |
Fjólubláa málningin þyngir ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2016 | 05:42
Furðu langvinnt og stöðugt óvenjulegt ástand.
Í hverjum mánuði eftir annan hafa margir búist við að fylgi flokkanna, einkum Pírata, færi að breytast.
Annað er uppi á teningnum. Sáralitlar breytingar mánuð eftir mánuð og hið mikla fylgi Pírata hefur nú varað í á annað ár.
Þetta hleypir ákveðinni spennu í stjórnmálin, því að fylgishlutföllin eru svo stórkostlega ólík því sem þau hafa verið margra áratuga skeiðs fjórflokksins.
Þó hafa komið lægðir fyrr hjá krötum, og má sem dæmi nefna 10,5% fylgi í kosningunum 1971 og allt niður í rúmlega 1% í Reykjavík nokkrum mánuðum fyrir kosningarnar 1995, þegar flokkurin fékk á endanum ekki nema rúmlega 11,4 prósenta fylgi upp úr kjörkössunum.
![]() |
Sjálfstæðisflokkur og Píratar stærstir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)