10.12.2013 | 17:47
Ólöglegt að klappa einhverjum á kinnina ?
Er ólögleg sú "aðferð" að klappa einhverjum á kinnina. Nei, það er ekki ólöglegt ef það er gert þannig að það sé tákn um vináttu eða blíðuhót.
En það er ekki sama hvernig það er gert eða við hvaða aðstæður. Ef klappað er fast eða slegið með lófanum er það árás.
Sú "aðferð", sem byggist í þeirri hreyfingu handar að færa flatan lófann að kinn annarrar manneskju og taka hann frá aftur, er ekki og verður ekki ólögleg svo framarlega sem þetta er gert laust en ekki fast.
![]() |
Vilja handtökumálið fyrir Hæstarétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.12.2013 | 13:42
Fyndnastir eru "jeppar" með aðeins framhjóladrif.
Eitthvert best heppnaða markaðsátak síðustu áratuga er "jeppabylgjan" sem segja má að hafi byrjað af alvöru með tilkomu Toyota RAV 4 fyrir tæpum 20 árum.
Hann var að vísu af svipaðri stærð og gerð og hinn fjórhjóladrifni Lada Niva ("sport" á Íslandi) hafði verið 15 árum fyrr og Suzuki Vitara og Daihatsu Terios fimm árum fyrr, en RAV 4 var sá fyrsti sem var með sjálfstæðri gormafjöðrun á öllum hjólum og grindarlaus, byggingarlag, sem síðar fékk heitið "crossover" eða umskiptingar.
Brátt fylgdu í kjölfarið jepplingar eins og Honda CRV, Mitsubishi Outlander og Landrover Freelander og segja má að þarna hafi bílaframleiðendur fundið það sama og Framsóknarflokkurinn hér heima, þ. e. hina rómuðu millistétt, sem til dæmis Barack Obama telur undirstöðu grósku í hagkerfinu ef hún sé nærð sem best.
Markaðsátakið varðandi jeppa og jepplinga á enn mikið inni og nú er enginn maður með mönnum nema hann sé á "jeppa".
Hið fyndna er að hjá meira en 95% kaupendanna það er aðeins útlitið sem skiptir í raun máli, ekki eiginleikarnir því að í 95% tilfella erlendis fer bíllinn aldrei út af malbiki.
Sumir "jepplingarnir" eru aðeins með aðeins um 17 sentimetra hæð frá jörðu og síga niður í 12 sentimetra við hleðslu, en í því ástandi komast þeir engar torfærur og það er lægra undir þá en óhlaðna venjulega fólksbíla.
Og hin síðari ár seljast framhjóladrifnir "jepplingar" miklu betur en fjórhjóladrifnir og sumir þeir nýjustu eru ekki einu sinni framleiddir með fjórhjóladrifi eins og Opel Mokka og Chevrolet Trax !
Aðeins lítill hluti Nissan Juke er seldur með fjórhjóladrifi því að það að vera á "jeppa" er stöðutákn.
Og framendarnir á flestum "jeppunum" skaga langt og lágt fram og eru þannig, að þeir hafa þessa fínu eiginleika sem jarðýtutannir eða snjómoksturstannir
![]() |
Jeppinn tekur við af fjölnotabílnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.12.2013 | 21:09
Sannur skólameistari.
Ég hef átt þess kost að fylgjast með barnamenningarstarfinu, sem unnið hefur verið í Rimaskóla um langt árabil vegna þess að þar hafa fjögur barnabörn mín verið nemendur og dóttir mín kennari.
Það hefur verið gefandi að fylgjst með því hvernig stjórnendur skólans og kennarar hafa lagt sig fram í starfinu og náð áþreifanlegum árangri og raunar einstöku hvað varðar iðkun skáklistarinnar í skólanum.
Á sínum tíma kynntist ég vel hinu merka uppeldisstarfi Árna Helgasonar í Stykkishólmi, föður Helga Árnasonar og sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.
Til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu, Helgi Árnason, og til hamingju Rimaskóli, bæði kennarar og nemendur !
![]() |
Skólastjóri Rimaskóla fær Barnamenningarverðlaun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2013 | 21:00
Vekur minningar um dauða James Dean.
Dauða Paul Walkers í bílslysi ber þannig að, að upp vakna minningar um dauða leikarans James Dean fyrir 56 árum, vegna þess hve margt er líkt með þessum slysum.
Í báðum tilfellum voru leikararnir í hraðskreiðum og snörpum Porsche sportbílum og bara sú staðreynd ein vekur grun um hraðakstur.
Engar beinar sannanir eru raunar fyrir því að James Dean hafi verið á einhverjum ofsahraða, en hann var á gráleitum afar lágum bíl, og bílstjóri, sem ók þvert í veg fyrir hann á gatnamótum, sá hann ekki fyrr en allt of seint.
Þeir Roger Rodas og Paul Walker voru hins vegar á gríðarlegum hraða, - talað um 160 km/klst.
Víst er Porsche Carrera GT tæknilegt snilldarverk hvað það snertir, að þetta er eini fjöldaframleiddi fólksbíllinn í heiminum sem er með stóra vél fyrir aftan afturhjólin, en samt hefur tæknimönnum Porsche tekist að ná undraverðum árangri við að minnka áhrif þessarar slæmu þungadreifingar alveg ótrúlega mikið þannig að yfirleitt verða ökumenn bílanna hennar ekki varir.
Það stóð til að hætta framleiðslu 911 bílsins fyrir meira en 30 árum vegna þess að þessi tilhögun var talin úrelt, en kaupendur Porsche bíla voru á öðru máli.
Þyngst vegur varðandi lúmska hættu við akstur þessara bíla, að þyngdarpunktur hinnar stóru vélar er vel fyrir aftan afturhjólin og við ákveðnar aðstæður verður sú staðreynd ekki umflúin.
Útilokað að koma í veg fyrir, að þegar miðflóttaafl hins þunga afturenda nær sér snögglega á strik í hliðarsveiflu afturendans, þarf hnífskörp og æfð viðbrögð, nánast kappakstursmannaviðbragðshraða, til þess að halda stjórn á bílnum.
Í heimsmeistarakeppninn í vetrarrallinu í Svíþjóð 1981 sigraði Hannu Mikkola á fjórhjóladrifnum Audi Quattro en hins vegar voru það Finninn Ari Vatanen og Svíinn Per Eklund sem vöktu mesta hrifningu mína því að hvorugur var á fjórhjóladrifnum bíl.
Eklund ók Porsche 911 af tærri snilld, ekki bara í þessu ralli, heldur mörgum öðrum, og var langbesti ökumaður heims á Porsche 911 á þeim tíma.
![]() |
Paul Walker: Myndir af slysstað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2013 | 16:03
Nauðsynlegar tímaskekkjur ?
Þótt hægt sé að rökstyðja það sem öryggislega nauðsyn að María hafi hjálm í leikriti byggðu á jólaguðspjallinu þar sem hún situr á asna, er í þessu fólgin mótsögn sem æpir orðið "tímaskekkja."
Tímaskekkjurnar eru fleiri þessar vikurnar fyrir jól. Í jólalagi um hin fyrstu jól segir í lok ljóðsins um einn hjarðmanninn, sem kemur til Jesúbarnsins: "Svo gerir hann krossmark, krýpur fram / og kyssir barnið vangann."
Þetta gerir hann sem sé, þótt minnst 30 ár séu þangað til Jesús verður krossfestur, meira en öld þar til krossinn verður smám saman að tákni kristninnar og enn lengra þar til það að gera krossmark verður að blessun eða helgun..
Ljóst er að enginn gerði krossmark á þessum tíma, einfaldlega vegna þess að sá tími var ekki kominn sem það var gert, enda var krossinn þá hryllilegt aftökutæki og ekkert annað.
En það má leita að skýringu byggða á því að hjarðmaðurinn hafi verið skyggn og forspár og séð fyrir að krossinn og krossmarkið yrðu löngu síðar að merki um blessun og helgi.
Sem reyndar rímar ekki við það að það hefði frekar átt að vera einn af vitringunum sem hefði slíka spádómsgáfu.
Þrátt fyrir fegurð þessara síðustu ljóðlína hefur mér alltaf fundist þessi setning örlítið truflandi í þessum annars afar fallega og hugljúfa jólasálmi, jafnvel þótt höfundinum hafi fundist þessi tímaskekkja vera nauðsynleg.
![]() |
María mey þarf að vera með hjálm |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.12.2013 | 09:31
Sá, sem gerir færri mistök, vinnur.
Í íþróttum er það eitt hinna algildu lögmála, að sá keppenda sem gerir færri mistök, vinnur, einkum þegar viðkomandi sigurvegari er það góður, að ef andstæðingur hans gerir mistök, er honum refsað miskunnarlaust.
Í fyrri leik Íslendinga og Króata á dögunum gerði íslenska liðið engin afgerandi mistök á þeim tíma sem leikmenn Íslands voru einum færri en leikmenn Króata, - að minnsta kosti ekki nógu stór mistök til þess að Króatar gætu nýtt sér það.
Króötum mistókst einnig að nýta sér hin örfáu skotfæri sín, sem voru þar að auki ekki góð.
Þegar góðum íþróttamanni mistekst að refsa andstæðingnum fyrir mistök hans, hefnir það sín.
Joe Louis er af flestum talinn einn af 2-3 bestu þungavigtarboxurum sögunnar og þegar hann var á hátindi getu sinnar refsaði hann andstæðingum sínum miskunnarlaust, ef þeir gáfu færi á sér, þótt ekki væri nema eitt augnablik.
Í síðasta bardaga sínum átti Louis í höggi við rísandi stjörnu, Rocky Marciano, sem þá hafði ekki skólast fullkomlega þótt gríðar öflugur væri.
Marciano sló Louis út úr hringnum í tvöföldum skilningi í 8. lotu og Louis lýsti því yfir að nú myndi hann leggja hanskana endanlega á hilluna.
Þegar hann var spurður, hvað hefði valdið úrslitunum svaraði hann: "Aldurinn. Ég boxaði að mörgu leyti alveg jafn vel og ég gerði þegar ég var yngri, en hraði og viðbragðsflýtir minn hafa dalað, þótt þar sé aðeins um að ræða hundruðustu hluta úr sekúndu.
Hvað eftir annað sá ég "opnanir" hjá Rocky, sem ég hefði getað nýtt mér þegar ég var yngri, en var of seinn að gera það nú. Því fór sem fór."
![]() |
Fimm sjálfsmörk engin tilviljun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.12.2013 | 23:09
Ósætti í vinstri stjórn um NATO er 57 ára gamalt fyrirbæri.
Það er orðin afar löng hefð, raunar 57 ára gömul hefð, fyrir ósætti um utanríkismál í þeim ríkisstjórnum hér á landi, þar sem Sósíalistaflokkurinn, Alþýðubandalagið og loks Vinstri grænir hafa átt ráðherra.
1956 sprakk þáverandi ríkisstjórn Sjalla og Framsóknar á því að Framsókn stóð að þingsályktun á útmánuðum þess efnis að senda skyldi varnarliðið úr landi vegna þíðu, sem væri komin í samskiptum risaveldanna.
Mynduð var vinstri stjórn eftir kosningar um sumarið 1956 þar sem krati (Guðmundur Í. Guðmundsson) varð utanríkisráðherra, sem var að miklu leyti sambærilegt við það að Össur varð utanríkisráðherra í síðustu vinstri stjórn.
Lúðvík Jósepsson var hins vegar sjávarútvegsráðherra og þar með var kominn núningsflötur í stjórninni varðandi utanríkismál, einkum vegna útfærslu landhelginnar 1. sept 1958, sem var á borði Lúðvíks.
Kratar og Framsókn drógu hins vegar lappirnar varðandi brottför hersins strax eftir átökin í Ungverjalandi og Súezdeiluna haustið 1956 og notuðu aukna spennu í heimsmálum sem ástæðu fyrir því að herinn yrði kyrr.
Í vinstri stjórninni 1971-74 var aftur á stefnuskrá stjórnarinnar að reka herinn í áföngum, en Framsókn með utanríkisráðherrann Einar Ágústsson og Allaballar með Lúðvík sem sjávarútvegsráðherra endurtóku leikinn frá því 1956-58, landhelgin var færð út en herinn varð kyrr.
Í vinstri stjórninni 1978-79 datt málið upp fyrir þótt bullandi ágreiningur væri sem fyrr á milli ráðherra Allaballa og ráðherra hinna flokkanna.
Enn var vinstri stjórn 1988-91 og nú var ekki minnst á herinn, enda Jón Baldvin utanríkisráðherra og Ólafur Ragnar var heldur ekkert á því herinn færi, - lagði meira að segja til fyrir réttum 20 árum að Íslendingar tækju þátt í þeim aðgerðum á vegum NATO, sem NATO væri falið á vegum Sameinuðu þjóðanna til að stilla til friðar eða skakka leik þar sem alþjóðlegt hervald þyrfti til.
Harðir hernámsandstæðingar í flokknum voru þá, eins og nú, í andstöðu við NATO aðild en fengu engu um ráðið.
Svona breytast stjórnmálin stundum lítið, jafnvel á löngum tíma.
![]() |
Tillagan flutt af pólitískri skemmdarfýsn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.12.2013 | 19:14
Enginn ræður alveg við óheppnina.
Þekkt er Murphys lögmálið um það að ef eitthvað geti farið úrskeiði, muni það gerast fyrr eða síðar og jafnvel fyrr en nokkurn óri fyrir.
Röð af tilviljunum þarf oft til þess að svo fari og það virðist hafa gerst þegar tíu ára stúlka féll af eldhúsborði ofan í opna uppþvottavél þar sem hnífsblað vísaði upp í stað þess að vísa niður.
Sem bendir til þess að ævinlega sé óráðlegt að eggvopn eins og hnífur standi nokkurn tíma þannig að hver sá sem nálgast það sé berskjaldaður gagnvart því.
Stundum er sagt að fólk sé feigt, þegar óheppnin er yfirgengileg.
Banaslysstaður uppi á fjalli við Hamarsfjörð fyrir um 15 árum er mér ofarlega í huga. Þar hafði þyrluflugmaður lent lítkilli þyrlu á slettum bletti en ætlaði að færa hana lágt til um nokkra tugi metra.
Hann lét þyrluna lyftast um eitt til tvö fet frá jörðu og ætlaði að færa hana lágt yfir yfirborðinu, en sást yfir lágan klapparstall, sem annað skíðið á þyrlunni rakst í.
Við það hallaðist þyrlan það mikið að lyftiskrúfublað hennar rakst í jörðina, brotnaði af og flaug eins og spjót í gegnum þyrluflugmanninn miðjan.
Af mörgum tugum banaslysstaða, sem ég kom á á löngum fréttamannsferli, var þetta einhver hinn ömurlegasti vegna þeirrar eindæma óheppni, sem birtist eins og lýst hefur verið með orðunum að hinn látni hefði verið bráðfeigur.
![]() |
Stúlka féll á eldhúshníf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.12.2013 | 01:03
Eðli málsins blasir við öllum.
Auðséð er á myndbandskeiðinu af handtökunni frægu á Laugavegi, að ofurölvi kona, sem stendur varla á löppunum á að vera auðvelt viðfangsefni fyrir æfðan, fílefldan lögreglumann, að ég nú ekki tali um þegar fleiri bætast í hópinn.
Hann gat vel nýtt líkamlega yfirburði sína til að snúa henni með lagni frá sér svo hún hrækti ekki aftur, handjárnað hana auðveldlega og komið henni með hjálp félaga sinna inn í bílinn á lágmarkstíma án þess að beita yfirburði krafta sinna á þann fantalega hátt sem skín út úr myndbandinu af handtökunni.
Engu var líkara en að hann teldi sig eiga í höggi við æfðan bardagaíþróttamann.
Aðfarirnar gengu fram af öllu venjulegu fólki, sem horfði á þetta myndskeið.
Með því að halda því fram að þarna verið farið fram af yfirvegun í samræmi við eðli máls og gætt meðalhófs stríðir gegn því sem fólk upplifir við það að horfa á myndskeiðið. Það er bara þannig.
Vel væri hægt að fyrirgefa lögreglumanninum það að hann missti stjórn á skapsmunum sínum ef hann bæðist afsökunar. Slíkt getur komið fyrir flesta. En engin afsökunarbeiðni liggur fyrir og hafa verður í huga að skapstilling og yfirvegum eru nauðsynlegir eiginleikar góðs lögreglumanns.
Fráleitt er að álykta sem svo, að með sanngjörnum dómi í málinu sé búið að ógilda viðurkennda handtökuaðferð.
Dómurinn fjallar ekkert um aðferðina sjálfa tæknilega, heldur það hvernig kröftum og offorsi var beitt langt umfram það sem þörf var á við hina viðurkenndu handtökuaðferð.
Það eru himinn og haf á milli ofurölvi máttlítillar konu og Gunnas Nelsons í sínu besta bardagaformi.
![]() |
Viðurkenndar handtökuaðferðir ógiltar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
7.12.2013 | 18:43
Rétt hönnuð skemmtihús aðeins á Snæfellsnesi.
Rauða Myllan í París og fleiri slíkir staðir eru af þeirri gerð skemmtanahúsa sem hægt er að nota sem veitingastaði og leikhús í senn.
Í Reykjavík voru margir slíkir staðir, nefndir nokkurn veginn í tíma- og stærðarröð, Iðnó, Hótel Ísland (gamla), Hótel Borg, Sjálfstæðishúsið, Framsóknarhúsið/Glaumbær, Skátaheimilið, Lídó, Hótel Saga, Hótel Loftleiðir og Fóstbræðraheimilið.
Upp úr 1970 kom Ólafur Laufdal til skjalanna með Hollywood og síðar Broadway í Mjóddinni, en hápunkti náði svona skemmtanahald með tilkomu Broadway á Hótel Íslandi, sem hefur síðan verið stærsti skemmtistaður af þessu tagi á Íslandi og Ólafur Laufdal var eins og kóngur í ríki sínu á þessu sviði skemmtanalífsins aldarfjórðung, vakinn og sofinn í þeirri hugsjón að halda hér uppi reisn og glæsileik eftir því sem unnt var.
Annar magnaður veitingamaður er Lúðvík Halldórsson, sem rekið hefur Gullhamra, fyrst við Hallveigarstíg og síðan í Grafarholtshverfi.
Á stærstu veitingastöðunum af þessu tagi hefur verið stór galli í Reykjavík, en það er afstaða skemmtikrafta til áhorfenda. Í Súlnasal er aðeins helmingur áhorfenda fyrir framan sviðið, en helmingurinn er sitt hvorum megin til hliðar. Þetta hamlar mjög þeim tengslum milli skemmtikrafta og áhorfenda, sem þurfa að vera.
Á báðum Broadway stöðunum var þetta líka svona og þótt þetta sé skárra í Gullhömrum, er samt heldur stór hluti áhorfenda til hliðanna og fjær en vera þurfti.
Lúðvík leitaði álits hjá mér þegar hann fór í þennan sal með starfsemi sína, og gerði það sem hægt var til að vinna úr því af miklum metnaði, að salurinn var ekki með alveg réttu hlutföllin. Ég ráðlagði honum að hafa barina ekki inni í sjálfum salnum eins og lenska var og var honum þakklátur fyrir að fara að þeim ráðum.
Á þeim skemmtistöðum þar sem eru vínbarir inni í sjálfum skemmtisölunum vill stundum myndast skvaldur sem breiðist út, þegar gestir gerast ölvaðir.
Út um allt land risu skemmtihús, svonefnd félagsheimili upp úr miðri síðustu öld og eru salir þeirra misjafnlega vel heppnaðir.
Tvö bera af að mínum dómi, félagsheimilin á Ólafsvík og í Stykkishólmi. Þar eru salirnir eins og blævængir sem breiðast út frá sviðinu þannig að "augnatenging" (eye contact) eins og það má kalla á fagmálinu, er milli þeirra sem eru á svæðinu og í salnum.
Gestirnir eru á lágum pöllum, sem fara hækkandi í átt frá sviðinu sem þjóna þessum tilgangi.
Ég hef í 55 ár átt þann draum að rétt hannað skemmtihús rísi í höfuðborg landsins og hef stundum sagt að rétt væri að taka annað hvort húsanna á Snæfellsnesi í krana og flytja í heilu lagi til borgarinnar.
Ekki hyllir undir það að ég muni lifa það.
![]() |
Langflottasta staðnum lokað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)