23.8.2008 | 18:19
Frændfólk og líka smáþjóð.
Mikið er gaman að því að frændþjóð okkar skuli fagna gulli í flokkaíþrótt eins og við vonumst til að geta gert. Miðað við flestar þjóðir heims eru Norðmenn smáþjóð og við Íslendingar þá örþjóð. Mér finnst allt í lagi að nota það orð því að við verðum þá enn stærri hlutfallslega þegar við sláum stórþjóðunum við.
Ættarböndin milli Norðmanna og Íslendinga eru sterk. Mér er enn í fersku minni þegar ég hlustaði á íþróttafréttamenn norska sjónvarpsins lýsa handboltaleik milli Íslendinga og Norðmanna þar sem Íslendingar slógu Norðmenn út á stórmóti.
Mestallan tímann héldu þulirnir alveg hlægilega mikið með sínum mönnum og hölluðu í öllu á íslenska liðið með fádæma hlutdrægni, - kölluðu Duranona til dæmis aldrei Íslending heldur kúbverja. "Kúbverjinn skorar", "Kúbverjinn nær frákastinu", o. s. frv. Ókunnugur hefði á tímabili haldið að Norðmenn væri að leika við Kúbverja en ekki Íslendinga.
Við könnumst svo sem við þetta hjá okkur sjálfum og kannski er þetta dæmi um það að margt sé líkt með skyldum. Þetta orðalag og fleira sem valt upp úr norsku þulunum var auðvitað liður í hlutdrægni þeirra og viðleitni til að gera sem minnst úr íslenska liðinu.
En þegar nokkrar mínútur voru eftir af leiknum snarbreyttist hljóðið í norsku þulunum þegar ljóst var að Íslendingar væri komnir með of mikið forskot til að Norðmenn ættu möguleika á sigri eða jafntefli.
Allt í einu hættu þeir að tala um Kúbverjann og nú voru það "litlu frændur okkar og vinir úti í Atlantshafinu" sem héldu uppi merki frændþjóðanna tveggja! Þeir hældu Íslendingum óspart í stað þess að hafa þá á hornum sér og hallmæla þeim og gerðu hlut Íslendinga sem mestan á alla lund.
Úr því að ekki þýddi lengur að halda með Norðmönnum snerust þeir á sveif með "litla bróður" á ekki síður broslegan hátt en þegar allt var gert sem hægt var til að minna á það að "Kúbverjinn" væri allt í öllu og ekkert að marka þegar Íslendingar héldu því fram að lið þeirra væri norrænt.
Þetta minnir á orðtakið "Þau eru súr sagði refurinn," nema að hin íslensku handboltaber voru sæt en ekki súr.
![]() |
Norðmenn ólympíumeistarar í handbolta kvenna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.8.2008 | 18:01
Engin frétt er betri en aðrar fréttir leyfa.
Það er haft að orðtaki að í keppni sé enginn betri en mótherjinn leyfi. Þetta á við um fréttir. Dæmi um það er þegar einn virtasti erlendi fjömiðill heims var búinn að ákveða að hafa gosið í Heimaey sem aðalfrétt en hætti við það á síðustu stundu af því að Lyndon B. Johnson fyrrverandi Bandaríkjaforseti dó einmitt þá.
Eitt sinn á ágústdegi 1980 þegar ekkert var í fréttum var ég að taka viðtal fyrir fyrstu frétt dagsins um stóran danskan sirkus sem var kominn í Laugardalinn. Þá kom Maríanna Friðjónsdóttir hlaupandi og sagði að byrjað væri að gjósa í Heklu. Fréttin um sirkusinn var aldrei birt.
Loksins virðist vera hefnt fyrir gengisfall fréttarinnar um Heimaeyjargosið og frábær frammistaða íslenska landsliðsins skilar sér verðskuldað á forsíðu stórblaðs. Nú er gaman að vera Íslendingur!
![]() |
Íslenskur handbolti á forsíðu New York Times |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)