27.3.2010 | 23:44
Almennar reglur á heimsvísu.
Um flug við gosstöðvarnar gilda svipaðar reglur og gilda í flestum löndum um flug utan flugstjórnarsviðs.
Flugstjórnarsvið er ofan við 3000 feta hæð yfir sjó (915 m) eða í meiri hæð en 1000 fet (305 m) frá jörðu þar sem jörðin er meira en 2000 feta há yfir sjó (610m)
Í fyrsta flugi mínu yfir svæðið stakk ég upp á því að við, sem þar værum á flugi, hefðum samband okkar á milli á bylgjunni 123,45. Þegar ég kom til Reykjavíkur stakk ég upp á því við flugstjórn að valin yrði sérstök bylgja fyrir þetta flug og varð bylgjan 118,1 fyrir valinu.
Flugmenn sem fljúga yfir og við gosstaðinn hafa stillt inn á þessa bylgu og láta aðra vita af sér og hafa samskipti eftir þörfum.
Allir flugmenn, sem annt er um öryggi sitt, nýta sér þetta í samvinnu við aðra, sem fljúga á svæðinu.
![]() |
Mikil flugumferð við gosið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.3.2010 | 23:32
Ná í upplýsingar um vindinn.
Um létt gosefni, sem stíga upp frá eldstöðvum gildir það að þau berast með vindi. Hægt er að fá upplýsingar um vindstefnu áður en lagt er af stað í áttina að eldfjalli.
1. Hringja í veðursímann 90200600. Bíða í 2 sekúndur eftir að þulur hefur talað. Velja 2. Velja 3 og hlusta á veðurspá fyrir Suðurland.
2. Hringja í veðursímann 90200600. Bíða í 2 sekúndur eftir að þulur hefur talað. Velja 5. Hlusta á hver vindurinn sé í 5000 feta (1524 metra hæð). Þetta miðast að vísu við suðvesturhorn landsins, en með því að bera þetta saman við vindupplýsingarnar í lið 1. er hægt að draga ályktanir.
3. Fara inn á vedur.is og fá spár og veðurathuganir, sem hægt er að byggja á. Vindstefna á Fimmvörðuhálsi getur verið dálítið önnur en upplýsingarnar hér að ofan gefa til kynna vegna landslags, og þá hest í vindáttum sem standa af jöklunum tveimur. Þetta er þó yfirleitt ekki mikið frávik.
4. Athuga vindinn þegar komið er í nánd við eldstöðina og sjá hvernig askan berst.
Ef mál eru könnuð vel fyrirfram á enginn að þurfa að lenda í öskufalli.
![]() |
Fá hraun og ösku á móti sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)