"Hláturinn lengir lífið / og lyftir geði tregu..."

Í tilefni dagsins set ég hér að ofan á blað fyrstu hendinguna í texta sem ég gerði fyrir margt löngu og margir hafa farið rangt með, - það er að segja síðustu þrjú orðin, -  "...lyftir geði tregu."

Textinn er að sjálfsögðu miklu lengri en boðskapur hans kemst þó allur fyrir í þessari einu línu. 

Húmor og hlátur flokkast undir geðheilbrigðismál og eru okkur jafn nauðsynleg og að anda og nærast. 

Lífið er nógu erfitt og snúið þótt það sé ekki gert í því að gera það erfiðara með leiðindum.

Það er of stutt til þess að eyða því í það að velta sér upp stanslaust upp úr því neikvæða.

Þótt sjálfsagt sé að forðast sóun og bruðl daginn út og daginn inn er samt nauðsynlegt að geta gert sér dagamun. p1011348_987028.jpg

Það er gert um þessa helgi í Kauptúni í Hafnarfirði þar sem er stórskemmtileg mótorsportsýning. 

Til þess að efla fjölbreytnina er fyrir því séð að sýna allt frá því dýrasta og stærsta niður í það ódýrasta og smæsta. p1011349.jpg

Þannig má sjá þarna "geðveikasta" vélhjól í heimi, Boss-Hoss, 500 kílóa hjól með stórri V-8 vél. 

Í vélhjólabókum má sjá að hægt er að kaupa slíkt hjól sem er með 508 hestafla vél og vegna þess að eitt hestafl knýr hvert kíló hjólsins þarf aðeins tveggja þrepa sjálfskiptingu. 

Í lægra þrepinu kemst hjólið upp undir 200 kílómetra hraða ef allt er í botni og langt upp undir 300 á hærra þrepinu!  

Þetta hjól er eitthvað svo mikið 2007, - myndi kosta 12 milljónir núna! p1011343.jpg

En var á útsölu í boði stjórnvalda sem héldu uppi óraunhæfu gengi íslensku krónunnar á sínum tíma þegar í gangi var stórkostlegur hvati til þess að íslensku heimilin og fyrirtækin fjórfölduðu skuldir sínar. 

Þarna má líka sjá þriggja farþega Vespu-hjól, þ. e. Vespu með hliðarvagni. 

Nóg er af öflugum kvartmílubílum og einn Ferrari, en forsvarsmenn sýningarinnar höfðu líka humor fyrir því að bjóða mér að sýna þrjá af naumhyggjubílum mínum, minnsta Mini í heimi, minnsta brúðarbíl landsins og NSU-Prinz 1958, en slíkur bíll í minni eigu var minnsti, sparneytnasti, ódýrasti og umhverfisvænasti bíll landsins á árunum 1959-62. p1011333.jpg

Auðvelt var að flytja tvo bíla saman á vagni suðureftir, sem hannaður er fyrir einn bíl ! 

Sá stutti hefur verið og verður sýningargripur á bilasalan.is


mbl.is Hlegið í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djúpar rætur mótmæla.

Á yfirborðinu virðist ekki rökrétt hjá Grikkjum að mótmæla niðurskurði í ríkisrekstrinum í landinu.

Því að hinn valkosturinn er sá að ríkið verði gjaldþrota og varla getur það verið betra. 

Það verður hins vegar að skyggnast aðeins dýpra í málið til að sjá að í raun er verið að mótmæla svipuð og hefur verið uppi á teningnum hér á landi, hinni skaðvænlegu og eitruðu blöndu sem viðskipti og stjórnmál skapa. 

Fólkið verður að finna farveg fyrir andmæli sín. Reiðin og óánægjan eru slík að það er gripið sem hendi er næst. Hið "órökrétta" andóf Grikkja er hliðstæða þess að Besti flokkur Jóns Gnarr hefur jafn mikið fylgi  fyrir borgarstjórnarkosningarnar nú og "stóru" flokkarnir höfðu áður.

Bæði grískir og íslenskir stjórnmálamenn verða að láta sér skiljast hvílíkt vantraust felst í því sem þjóðir þeirra eru að gera, hvor á sinn hátt.  


mbl.is Grísk stjórnvöld samþykkja áætlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gat það líka 1947 og 1970.

Í Heklugosinu 1947 féll aska frá gosinu í Skotlandi. Það kom ekki að sök af tvennum ástæðum. p1011398_987059.jpg

1. Flug var aðeins brot af því sem það er nú.

2. Bulluhreyflar, knúnir bensíni, knúðu flugvélar þess tíma. Skrúfuþotuhreyflar og þotuhreyflar eru miklu viðkvæmari fyrir ösku.

Í Heklugosinu 1970 féll talsverð aska frá fjallinu til norðvesturs og gerði hlíðar Víðidalsfjalls í Húnavatnssýslu svart og olli þar búsifjum. 

Vegna vindáttarinnar varð þá engin röskun á flugi. 

Ég flaug yfir Eyjafjallajökul í gærkvöldi og vissulega er mökkurinn svartur. 

Í gildi eru takmarkanir á flugi á ákveðnu svæði fyrir flugvélar og þyrlur knúnar skrúfþotuhreyflum. 

Engar takmarkanir eru fyrir sjónflug á bulluhreyflavélum en flugmenn bera að sjálfsögðu ábyrgð á því að forðast það að fljúga inn í það mikla ösku að hún geti skemmt framrúður og þá fleti vélarinnar sem askan bylur á við flug. 

Að sjálfsögðu flýgur enginn inn í slíkt heldur gætir þess að vera áveðurs. Í fluginu nú sem endranær reyni ég að nýta mér 22ja gosa reynslu við slíkt flug. 

Það var aðeins í Eyjagosinu 1973 sem vélin mín skemmdist á jörðu niðri vegna þess að hún stóð á flugvellinum í Eyjum fyrstu nóttina, -  ekki var hægt að fljúga í burtu, og gjósandi gígarnir í nokkur hundruð metra fjarlægð.

Flugvélin var flughæf eftir þetta en ég varð að skipta um framrúðu og sprauta hana.

Síðan eru liðin 37 ár og 20 gos án skemmda.   p1011398_987048.jpg


mbl.is Askan getur enn truflað flug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. maí 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband