Var rændur inni í bankanum.

Á myndum af Landsbankanum er oft sýnt anddyrið. 866439

Myndin á tengdri frétt á mbl.is er einmitt af tveimur mönnum sem telja að þarna fyrir innan  sé þörf á umbótum.

Mikið hefði verið gott að hafa þá þarna í haust, þegar ég staddur inni í þessu anddyri á fjórða tímanum á föstudegi, hafði lagt rafreiðhjólinu "Sörla" við tröppurnar fyrir utan og stóð inni í dyrunum ásamt slangri af fólki.

Öryggisvörður var þar líka.

Ég var með miða í langa biðröð hjá gjaldkera en ákvað að standa þarna til að fylgjast með hjólinu, þótt það væri læst.

Hafði verið með þungan bakpoka en setti hann til hliðar til að hvíla bakið og hafði augun með honum líka.

Þegar kæmi að mér hjá gjaldkera ætlaði ég að biðja öryggisvörðinn að hafa augu með hjólinu og bakpokanum, rétt á meðan ég stykki inn þegar komið væri að mér hjá gjaldkeranum.

Gekk nokkur skref innar til að sjá númerið og kom strax út aftur.

Enn var nokkuð langt í mig, en nokkrum mínútum síðar gekk ég aftur þessi fáu skref inn og síðan strax út aftur.

En þá brá mér í brún. Bakpokinn var horfinn. Rétt á meðan ég hafði augun af honum hafði kona, sem hafði staðið í anddyrinu hrifsað hann og gengið með hann fumlaus og sallaróleg burtu að öllum ásjáandi nema mér.

Aðspurðir sögðu þeir sem ég talaði við, að þeim hefði ekki dottið annað í hug en að þessi kona ætti pokann.

Ég tók niður nöfn vitna, fór beint til lögreglu og tilkynnti þjófnaðinn.

Öryggismyndavél hafði verið í gangi og lögreglan fékk þar skýra andlitsmynd af þjófnum.

En nú hefur hún afgreitt málið sem óupplýstan þjófnað.

Magnað, ég í nokkurra metra fjarlægð, nokkur vitni, öryggisvörður, öryggismyndavél, skýr mynd af þjófnum, en allt kom fyrir ekki.

Tryggingafélagið kvað tryggingu mína ekki gilda nema bakpokinn hefði verið rifinn af mér sjálfum með valdi.

Ekki væri nóg að hafa vitni og myndir af þjófnaðinum.

Í pokanum var óvenju mikið verðmæti, nokkur hundruð þúsund króna virði, einkatölvan með dýrmætum gögnum, myndavélar, lítil flugvélatalstöð og annað það helsta, sem ég þyrfti að hafa meðferðis ef það kæmi Heklugos.

En þarna átti það svo sannarlega við, að verðmætum í bönkunum er rænt innanfrá.


mbl.is Áhlaup á Landsbankann „neytendamál“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert lík. Hvað þá? Allt mögulegt.

Manneskja er horfin. Finnst ekki þrátt fyrir ákafa og yfirgripsmikla leit, hvorki lifandi né dauð.

Niðurstaða: Talin af og það fært í bækur.

En ekki alltaf.

Íslendingur, sem hvarf fyrir aldarfjórðungi í Bandaríkjunum, var talinn af og "afskráður".

Birtist síðan sprelllifandi tólf árum síðar.

Áströlsk kona sem talin var af, kom nýlega í leitirnar hún mætti í sína eigin minningarathöfn.

Tveir menn hurfu fyrir rúmum 40 árum á Íslandi og hefur ekki fundist tangur né tetur af þeim.

Með skipulegu harðræði sem stóð mánuðum saman, og allt upp undir ár, fengust játningar sem sveifluðust og breyttust í allar áttir, en töldust nýtilegar til sakfellingar.

Maður var sem fréttaþulur látinn lesa langa lýsingu í sjónvarpsfréttum á átökum, morði, og líkflutningi í Dráttarbrautinni í Keflavík, sem eftir á reyndist tóm steypa þegar aðrar játningar urðu til og maður lenti líka í því að lesa þær sem jafn heilagan sannleika og hinar fyrri.

Ekkert lík, ekkert morðvopn, engin ástæða, en málið samt talið upplýst að fullu.

 


mbl.is Fékk minnið eftir 30 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svipað var gert í kosningunum 1963, 1967 og 1971.

Í desember 1958 hófst samstarf Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks um stjórn landsins, sem entist í næstum tólf ár.

Minnihlutastjórn Alþýðuflokksins sem sat frá desember 1958 til hausts 1959 var dæmi um þau áhrif sem forseti Íslands getur haft þegar stjórnarkreppa ríkir.

Lausnin var snjöll; Sjálfstæðisflokkur og Alþýðubandalag vörðu stjórnina vantrausti næstu tíu mánuði, Sjálfstæðisflokkurinn fékk harðar efnahagsaðgerðir fyrir sinn snúð og bæði hann og Alþýðubandalag fengu fram langþráða leiðréttingu á misvægi atkvæða með gerbreytingu á kjördæmaskipaninni.

Ásgeir Ásgeirsson forseti var öllum hnútum kunnugur í völundarhúsi stjórnmálanna eftir þriggja áratuga þáttöku í þeim og hafði bæði verið forseti sameinaðs Alþingis, forsætisráðherra, þingmaður og síðar bankastjóri Útvegsbankans.

Ásgeir hafði bæði verið í Framsóknarflokknum, Alþýðuflokknum og utan flokka á ferli sínum.

Viðreisnarstjórnin svonefnda var mynduð haustið 1959 og fór í gegnum þrennar kosningar í laustengdu kosningabandalagi, sem byggði á því að leggja verk kjörtímabilsins í dóm kjósenda og lofa þeim svipuðu áframhaldi.

Það er því ekki beinlínis rétt að aldrei hafi verið slíkt kosningabandalag fyrr, og hugmyndin er ekki alveg ný, samanber Kaffibandalagið svonefnda 2006, bandalag þáverandi minnihlutaflokka, sem aldrei var þó meiri fastmælum bundið en svo, að Samfylkingin hljóp í stjórn með Sjálfstæðisflokknum eftir kosningarnar 2007.  

 


mbl.is Leggur til kosningabandalag stjórnarandstöðunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hekla er sér á parti, - furðuskepna.

Ótal margir útlendingar spurðu mig eftir Eyjafjallajökulsgosið hvar og hvenær myndi gjósa næst.

"Hekla" svaraði ég.Hekla

"Hvenær?" spurðu þeir.

"Það getur gerst eftir 15 mínútur, 15 daga, 15 mánuði, 15 ár eða 105 ár" svaraði ég yfirleitt og fannst spyrjendum þetta furðulegt svar.

En ég reyndi að útskýra sérstöðu Heklu, sem væri furðuskepna og ólíkindatól, og 2010 var afar líklegt eftir gos í Vatnajökli 1996, 1998 og 2004 að ekki væri langt í gos á því svæði,svo að ég lét það fylgja með.

Enda kom í Grímsvötnum 2011 og síðan gerði Bárðarbunga rusk í Holuhrauni 2014.

Hekla gýs á öllum árstímum, í mars 1947, maí 1970, ágúst 1980 með smá framhaldi að vetrarlagi 1981, síðan í skömmu eftir áramót 1991 og um svipað leyti árið 2000.

Þessi pistill er skrifaður skömmu fyrir miðnætti og Hekla gæti verið byrjuð að gjósa áður en pistillinn birtist.

Og allt gæti það gerst að hún sé aftur að taka upp fyrri háttu varðandi langan tíma á milli á milli gosa, svo að maður væri búinn að vera dauður í meira allt að heila öld þegar hún gýs næst.

Í Kröflueldum voru umbrotahrinur sem komu eftir landris á þann hátt, að á undan hverri hrinu reis land heldur hærra en fyrir hrinuna þar á undan.

Nú er landhæð nákvæmlega mæld við Heklu, og ef þetta væri eitthvað svipað þar og við Kröflu, væri hún búin að gjósa.

En nú eru tíu ár liðin síðan land reis hærra en fyrir gosið 2000 og ekkert hefur bólað á henni í þessi tíu ár.

Og hvað á maður þá að segja þegar spurt er hvað sé líklegasta næsta gos?

Hekla.   

 


mbl.is Hæg atburðarás undir Bárðarbungu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. febrúar 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband