Nöfn barna eru mannréttindamál.

Í allri umræðunni um mannanöfn á Íslandi heyrist sjaldan eða aldrei minnst á það, hve það getur verið erfitt fyrir barn að heita skrýtnu og asnalegu nafni. 

Hættan á slíku réttlætir að það séu takmörk fyrir því hvaða nöfnum má klína á ómálga börn. 

Í barnæsku var ég viðkvæmur fyrir nafni mínu, af því svo fáir hétu því þá. Síðar hef ég verið afar þakklátur fyrir að hafa verið skírður þessu óvenjulega nafni á þeim tíma, í stað þess að fá nafnið Ólafur í höfuðið á Ólöfu ömmu minni, en vegna hins afkáralega eldrauða hárlitar hefði ég áreiðanlega verið kallaður Óli rauði, til dæmis í Stórholtinu þar sem ég ólst upp, því að strákur í næsta húsi var kallaður Óli stóri. 

Nafnið Fimmsunntrína var stundum nefnt sem dæmi um fáránlega nafngift konu, sem fædd var á fimmta sunnudegi eftir trinitatis.

Í slíkum tilfellum er það mannréttindamál að tekið sé í taumana.  

 


mbl.is Stúlkan sagðist heita „hálfviti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mín tegund af maraþonhlaupi.

Fyrir ellefu árum bannaði læknir mér að hlaupa, af því að ég hefði gert of mikið af því um ævina og hnén að nálgast bein í bein. Í staðinn hef ég læðst hratt í hlaupum upp stiga. 

En einhvern veginn er þetta árstíminn þegar það er ástæða til að takast á við einhverja áskorun, sem er í svipuðum dúr og erfitt langhlaup. 

Og það ætla ég að reyna eins og í fyrra. Sörli, Bakkasels-brekka

Í fyrra fór ég af stað 18. ágúst á rafhjólinu Sörla á leið frá Akureyri til Reykjavíkur til að sýna fram á yfirburði rafaflsins hvað snerti orkukostnað, sem var aðeins 115 krónur.

Á myndinni er Sörli að blása mæðinni í Bakkaselsbrekkunni. 

 

Nú er ætlunin að fara í fyrramálið frá Ráðhúsi Reykjavíkur til Ráðhústorgsins á Akureyri á minna en sex klukkustundum á létta bifhjólinu ( "vespuhjól") Létti, sem er með einkanúmerinu EDRÚ. Léttir, á ská aftan

( Léttir Jóns Ásgeirssonar á Þingeyrum var annar tveggja frægustu gæðinga Íslandssögunnar og afburða skeiðhestur ) til að sýna fram á yfirburði þessara vespuhjóla, sem geta haldið þjóðvegahraða en eru með minnst þrisvar sinnum minni orkukostnað og heildarrekstrarkostnað en ódýrustu bílar.

Geysivinsæl í Evrópu, þarf ekki mótorhjólapróf, 15 ára aldur nægir, og fleiri fríðindi.

Takmarkið er að eyða ekki meira en 10 lítrum samtals á leiðinni, þrátt fyrir þjóðvegahraða, ( 2,5 á hundraðið) og að orkukostnaðurinn verði minni en 1900 krónur á þessari leið.

Ef vel gengur kannski haldið áfram austur hringveginn og gert fleira í sama dúr. Þetta verkefni er í þágu umhverfismála en í ár hef ég verið með annað stórt verkefni, sem er í þágu íslenskrar náttúru og ber heitið "Hróður lands og þjóðar"

Ég er nú að leggja lokahönd á síðustu lögin af 16 nýjum lögum af 52 lögum um náttúru Íslands, land og þjóðlíf, sem stefnt er að að gefa út í hljómdiskaalbúmi til að vekja athygli á hugmyndinni um stóran þjóðgarð á hálendi Íslands undir ofangreindu heiti.

Þetta verkefni kostar tíma, vinnu og fé og róðurinn er þungur. Hægt verður að fylgjast með vespuhjólinu Létti á morgun með því að fara inn á slóðina   life. @ at.is   

Ef einhverjir vilja heita á verkefnið "Hróður lands og þjóðar" eru þetta upplýsingarnar: 

0130 26 160940  kt. 160940 4929 

Ómar Ragnarsson, Fróðengi 7, 112 Reykjavík. 


mbl.is Dagarnir fyrir hlaup skipta miklu máli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétta hugarfarið: "Það er ekki annað í boði."

Einu sinni varð mér á að segja á óheppilegu augnabliki í beinni útsendingu: "Það gengur betur næst" og margir misskildu þau orð og hvað ég meinti með þeim undir þeim kringumstæðum, sem þau voru sögð. 

Ég ákvað að gera þessi orð að einum af kjörorðum mínum, því að í þeim felst viðurkenning og greining á mistökum en jafnframt vilji og ásetningur til að nota reynsluna til þess að gera betur.

Viðbrögð Ásdísar Hjálmsdóttur eru bæði eftirtektarverð og til eftirbreytni.

Því sendi ég henni kveðju og bestu óskir með laginu "Það er ekki annað í boði", sem er að finna á Youtube.

Þar eru meðal annars þessi erindi:

 

"....Ef misgjörðir fortíðar mæða þinn hug.

Þótt mistökin öll við þig loði

bættu þitt ráð, sýndu djörfung og dug, -

það er ekki annað í boði..."

 

"Og hvernig sem vera þín veltur og fer

í veraldar basli og moði

engu um flest að því færðu hér breytt, -

það er ekki annað í boði..." 


mbl.is Var of fljót fyrir atrennuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. ágúst 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband