Kornungar hetjur með stór hjörtu.

Í heiminum eru margar persónur, sem taldar eru hetjur vegna verka sinna og frægðar. 

En hversdagshetjurnar eru margfalt fleiri, fólk, sem ekki kemst í hóp þeirra frægu. 

En stundum gerast óvæntir atburðir sem verða til þess að skapa alveg nýjar hetjur, sem enginn hefði haft hugmynd um að væru til nema vegna þess hvernig þær hafa stigið fram í sviðljósið við það að sýna af sér mikinn hetjuskap við það að lenda í aðstæðum, sem reyna svo mjög á mannkosti, hugarþrek, æðruleysi og kjark, að vekur athygli víða um lönd. 

Drengirnir, sem eru lokaðir inni í helli í Tailandi eru dæmi um slíkar hetjur, sem sýna aðdáunarverða hugarró og sálarþrek mitt í ólýsanlegum hremmingum. 


mbl.is „Ég elska ykkur öll“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Esjuleiðin" virkilega enn við lýði?

Árið 1976 varð sú framför í rallakstri frá fyrsta rallinu 1975, að nú var ekin ein sérleið þar sem vegarslóðinn var það torfær, að á þeirra tíðar rallbílum var ekki hægt að ná 70 km meðalhraða á henni, og því fengu menn refsistig. 

Þetta var ekki löng leið, svona eins og örlítill hluti af hálendisslóða, en markaði samt tímamót hvað þetta varðaði. 

Ég hafði kynnst henni í kringum 1960 og á einum stað var hægt að fara í smá prívat útilegu. 

Hún var kölluð "Esjuleið" af því hún lá frá Skeggjastöðum vestur með rótum Esju vestur á Vesturlandsveg og var yfirleitt ekin frá austri til vesturs. 

Í mínum huga mætti vel varðveita hana í núverandi mynd á þeim kafla sem hún liggur yfir óbrúaða læki og ár og leggja alveg nýjan veg fyrir ábúandann við leiðina sem býr skjalfest í 116 Reykjavík. 

Einstaka sinnum má hugsa til þess að varðveita þótt ekki væri nema örlitla kafla af fornum leiðum í því ástandi sem þær voru. 


mbl.is „Útvörður borgarinnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Átti aldrei að sniðganga HM að neinu leyti..

Seint ætla menn að læra af reynslunni varðandi samskipti þjóða á sviði íþrótta og menningar. 

Þegar litið er til baka sést hvað sniðganga Vesturveldanna gagnvart ÓL í Moskvu 1980 og Kommúnistaríkjanna gagnvart ÓL í Los Angeles 1984 var fráleit aðgerð, og hefur það verið rakið fyrr hér á síðunni hvernig atburðarásin í Afganista olli því. 

Hvað varðar það að láta Suður-Afríku ekki fá aðgang að leikunum á tíma Apartheid, var um það að ræða, að í vali þátttakenda á leikana var algert misrétti kynþátta í gangi í Suður-Afríku. 

Hitler aflétti mismunun gagnvart Gyðingum á Ólympíuleikunum 1936 og raunar var meira jafnrétti svartra og hvítra á leikunum en í þeirra eigin heimalandi, Bandaríkjunum.  


mbl.is Macron til Rússlands en ekki Bretar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. júlí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband