25.5.2019 | 18:41
Einu sinni var Prins Póló sagt vera megrunarkex.
Áður en skylt var að setja upplýsingar um innihald og hitaeiningar á matarumbúðir gengu oft hinar furðulegustu sögur um matvæli manna á meðal.
Einni þeirra trúðu margir árum saman, en hún var sú að í "þjóðarréttinum" Prins og Kók væri Kókið margfalt meira fitandi en Prinsið, sem væri í raun hugsað sem megrunarkex.
Auðvitað hefðu flestir átt að geta vitað betur, því að í kexinu var bæði um súkkulaði og sykur að ræða.
Síðan birtust sannindin þegar merkingar komu til sögunnar: Í 100 grömmum af kóki eru 42 hitaeiningar en í 100 grömmum af Prins Póló eru 526 hitaeiningar eða rúmlega tólf sinnum meira!
Í gosdrykkjum eins og appelsíni eru álíka margar hitaeiningar og í kókinu, en í nýmjólk, sem á tímabili var umrædd sem skelfilegur fituskaðvaldur eru 67 hitaeiningar í 100 grömmum, eða átta sinnum minna en í súkkulaðikexi og súkkulaðivörum.
Fitan í 100 grömmum af mjólk er 3,9 grömm, en í súkkulaðikexinu 29 grömm, eða meira en sjö sinnum meira!
Matur sem er ekki eins hollur og þú heldur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2019 | 13:03
"Aldrei áður í sögu fullveldisins." Jæja, hvað um fyrri dóma ME?
Sigríður Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra segir að aldrei fyrr í sögu fullveldis landsins fallið á kné fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu.
Jæja, hvað um dóminn fyrir rúmum aldarfjórðungi í máli Jóns Eiríkssonar á Akureyri?
Þegar það var talið nauðsynlegt að breyta dómskerfinu eins og það var þá í dreifbýlinu á Íslandi?
Segir dóm MDE umboðslaust at | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 26.5.2019 kl. 09:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.5.2019 | 08:18
Hvað um fjölnota kistur?
Fróðlegt er að heyra að einhver hreyfing sé á greftrunarmálum í heiminum. Á hverju ári safnast um 80 milljónir jarðarbúa til feðra sinna og ef krafan er sú að hver þeirra taki með sér kistu í gröfina er um óhemju magn að ræða og sóun á dýrmætum trjáviði, sem sárlega er þörf á til að hamla gegn sóun, mengun og kolefisauðgun lofthjúpsins.
Hér á síðunni hefur áður verið stungið upp á að fara þann milliveg að nota fjölnota kistur, sem væru með þannig útbúin gólf, að eftir að kistan hefur verið látin síga niður í gröfina og hinir nánustu farnir frá gröfinni, myndu þeir sem mokuðu ofan í hana hvort eð er, kippa á spotta, sem festir væru í læsingar á öðrum jaðri kistubotninum, þar sem hinn jaðarinn væri á hjörum, og þannig væri á einfaldan tæknilegan hátt hægt að losa með því botninn, svo að líkið yrði eftir í gröfinni í ákveðnum lífrænum poka þegar kistan yrði tekin upp á yfirborðið áður en mokað yrði yfir.
Þetta gæfi einnig færi á að hafa hverja gröf allt að helmingi minni að umfangi á yfirborðinu en nú er.
Þar með yrði farið eins bókstaflega eftir moldunartextanum og unnt er: "Af moldu ertu kominn. Að moldu skaltu verða. Af moldu skaltu aftur upp rísa." Og jörðinni skilað því sem hún gaf af sér, þessu eina, sem hver maður fær í gjöf frá henni í fæðingu.
Fróðlegt væri að heyra um álit fólks á þessu. Munurinn á þessu og líkbrennslu er sá, að með henni er bæði í raun og á táknrænan hátt verið að sóa orku og menga andrúmsloftið.
Greftrunarhefðir breytast hægt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)