Evel Knievel hlaut alls 433 beinbrot.

110 beinbrot í einu slysi án þess að bíða samstundis bana hlýtur að vera heimsmet. 

Að vísu er Alexa Terrazas ekki úr lífshættu eftir fall af sjöttu hæð, en lifir þetta vonandi af og nær fullri heilsu. Evel Knievel 19 bíla stökk

Sennilega á bandaríski ofurhuginn Evel Knievel heimsmet í samanlögðum beinbrotum á ferli sínum, en þau voru meira en fjögur hundruð.  

Ofurhugi er vægt til orða tekið, því að margt af því sem hann gerði flokkaðist frekar undir fífldirfsku, sem ótrúlegt var að hann slapp frá,  þannig að nýyrði á borð við dirfskufífl hefði kannski verið meira viðeigandi. 

Knievel dó úr lungnasjúkdómi 69 ára gamall og bjargaði sennilega mörgum mannslífum með því að berjast fyrir því að hjólreiðamenn og vélhjólamenn notuðu hlífðarhjálma. 

 


mbl.is Féll fram af svölum og braut 110 bein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljósastýringarnar hafa dregist í áratugi.

Það eru búnir að vera margir mismunandi borgarmeirihlutar við völd í Reykjavík síðan fyrst var rætt um það innan borgarkerfisins að koma á ljósastýringum, sem tryggðu flæði um umferðarljósagatnamót borgarinnar. 

Í kringum 1970 var þegar komin mjög góð ljósastýring á aðalæðum Gautaborgar, þar sem ökumenn gátu séð á ljósaskiltum á hvaða hraða þeir þyrftu að vera til þess að fá grænt ljós á næstu gatnamótum. 

Á mörgum gatnamótum í Reykjavík myndi umferðin ganga mun skár, til dæmis vinstra beygjuljósið af Miklubraut inn á Háaleitisbraut og vinstra beygjuljósið af Kringlumýrarbraut inn á Háaleitisbraut og Skipholt, en á báðum stöðunum skapa hálfsofandi ökumenn miklar óþarfa tafir allan ársins hring. 

Sæbrautin er gott dæmi um afleitt ástand, sem allir þeir, sem oft fara um hana bölva.  


mbl.is „Níu milljónum klukkustunda sóað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. september 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband