Sums staðar eins og engin kórónaveira sé til. Annað segir herforingi í her BNA:

Hægt og bítandi virðist færast hraðar í ógæfuátt varðandi andvara megna kórónaveirusmit heldur en hægt er að réttlæta með því, að fikra varlega leið til eðlilegs athafna- og menningarlífs. 

Stundum virðist eina leiðin til varúðar vera sú að biðja viðkomandi um að færa sig aðeins fjær til þess að hann smitist ekki óvart af þeim sem biður um meiri fjarlægð. 

Ytirmaður í Bandaríkjaher, þeim öflugasta her heims, sagði einfaldlega: "Við skilgreinum COVID-19 sem óvinaher, sem verði að sigra. Það gerist ekki fyrr en síðasta veiran er horfin." 


mbl.is Alvarlegasta smithættan á djamminu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þótt fyrr hefði verið?

Boeing verksmiðjurnar drógu trygga viðskiptavini sína á asnaeyrunum í þrjú ár vegna tafa á afhendingu 787 Dreamliner þotunum. 

Nú hefur aðdragandi þess verið rakinn aftur til ársins 1998 þegar þeirri meginreglu í rekstri verksmiðjanna var breytt að öryggi skyldi ávallt hafa forgang fram yfir allt annað, líka markaðsaðstöðuna, sem búið var með harðfylgi að skapa eftir áratuga feril á leið til forystu í flugvélaframleiðslu. 

Orðalagið á hinni nýju sýn var að vísu haft loðið, en samt var um áherslubreytingu að ræða, sem síðan skaðaði afhendingu 787, að vísu án manntjóns, en loks á endanum Boeing 737 Max, þar sem niðurstaðan var fólgin í tveimur mannskæðum flugslysum og afsögn forstjórans. 

Hið óvænta reiðarslag COVID-19 fyrir allan flugrekstur heimsins er síðan rökrétt fólgið í því að allar þær þúsundir metpantana á Boeing 737 Max, sem gerðar voru, valda gerbreyttum forsendum fyrir tilvist þeirra véla; þær eru orðnar afgangsstærð númer eitt. 

Aðalástæðan fyrir framleiðslu þeirra var hátt eldsneytisverð, en með COVID-19 hefur sú forsenda horfið um ófyrirsjáanlega langan tíma. 

Og ekkert heyrist nú frá Boeing varðandi það, hvenær Max vélarnar geti flogið á ný. Þegar vandræðagangurinn með 787 var mestur, tók hver frestunin við af annarri árum saman.   


mbl.is Vilja losna við 10 MAX-vélar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. júní 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband