Skimanir eru grundvallaratriði varðandi ótal sjúkdóma.

Skimanir  og aftur skimanir sýna og sanna gildi sitt á þessu ári COVID-19 faraldusins. 

Ekki bara hvað varðar mat á ástandinu varðandi þann sjúkdóm, heldur einnig varðandi fjölmarga aðra. 

Sem dæmi má nefna þegar fólki, sem kom til skoðana varðandi ýmsar aðrar uppákomur í heilbrigði þess fyrir um tveimur árum, var boðið upp á auka skimanir varðandi ýmislegt annað, fékk þá útkomu að það væri með ýmsa kvilla, sem ekki hafði verið hugmynd um áður, gat þessi nýja vitneskja gert heilmikið gagn varðandi það að fylgjast almennt með heilbrigðisástandinu hjá hverjum og einum. 

Meðal ýmislegs, sem þá kom upp, var að margir fengu í fyrsta sinn vitneskju um mergæxli á forsttigi, en án vitnseskju um slíkt er hætt við, að of seint verði gripið til gagnráðstafana ef meini' sækir í sig veðrið. 

Á forstigi eða vægu stigi er völ á áranggursríkri lyfjameðferð, sem byggir á því að sjúkdómurinn sé enn viðráðanlegur.  

Þetta á við um fleiri krabbameinssjúkdóma og það er því fyllilega rétt að nota orðið "grafalvarleg staða" yfir það þegar skimanir falli niður. 

 


mbl.is Segja stöðuna „grafalvarlega“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ég veit ekki´af hvers konar völdum / sá vegur lagður er..."

Það er ekki langt þangað til saga Krýsuvíkurvegarin og svonefndrar Krýsuvíkurleiðar verður aldargömul. 

Lagning hennar og síðar Þrengslavegarins byggðist á því, sem mönnum sýndist staðreynd á þeim tíma, að útilokað væri að leiðin yfir Hellisheiði yrði heilsársvegur. 

Vegna vaxandi byggðar í Reykjavík kom það sér afar illa á snjóþungum vetrum, ef Hellisheiðin var ófær og skortur á mjólk yrði afleiðing. 

Menn gerðu sér ekki nægilega grein á þessum tíma, hve miklu skipti að vegurinn væri upphækkaður og lægi ekki um langar lautir eins og raunin var. 

Tækjakosturin til malartöku og vegaframkvæmda var af skornum skammti alveg fram yfir stríð. 

Krýsuvíkurleiðin reyndist ekki standa undir vonum og varð oft ófær í illviðrum, rétt eins og Hellisheiðin. Þetta olli óánægju og vakti gagnrýni. 

Þegar Lárus heitinn Ingólfsson leikari söng þekkta gamanvísnasyrpu, var ein ljóðlínan með svipuðu orðalagi og lagið um Lorelei, en í íslenskri þýðingu var upphafslínan "Ich weiss nicht was soll es bedeuten dass Ich so traurig bin" þýdd svona: "Ég veit ekki´af hvers konar völdum / svo viknandi ég er..."

En í textanum sem Lárus fékk í hendur hljóðaði línan svona: "Ég veit ekki´af hvers konar völdum / sá vegur lagður er..."

1955 kom það upp í ljósi aukins vélakosts við að ryðja vegum braut í hraunum að þjóðráð yrði að gera nýjan Suðurlandsveg um Þrengslin og láta hann liggja beint til austurs yfir Forirnar í Ölfusi til Selfoss.  Hann gæti orðið heilsársvegurinn sem var svo þráður. 

Mönnum var enn í minni þegar Hellisheiðin varð kolófær í maí 1949. 

Ekkert varð af lagningunni yfir Forirnar, því að þær eru ekki aðeins dýpsta forarfen Suðurlands, heldur einnig einstæð náttúrusmíð.  

Fyrir nokkrum árum varð Hellisheiðin ófær í nokkrar vikur á útmánuðum, og þá reyndist ódýrara að halda Þrengslunum opnum en að berjast við fannfergið á Hellisheiðinni. 

Vegurinn þar hefur hins vegar verið til friðs að mestu á þessari öld. 

En þegar nú fréttist af lagningu malbiks á hluta Krýsuvíkurvegar sýnir það, hve hægt það hefur gengið og orðið að verkefni á tveimur öldum að fullgera þennan fyrrum umdeilda veg. 

 


mbl.is Krýsuvíkurvegur malbikaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. júní 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband