Mestu sveiflur í sögu tónlistarflutnings hér á landi.

Síðustu fimm ár hafa orðið mestu sveiflur í kjörum og aðstæðum tónlistarfólks sem um getur hér á landi.  

Er saga tónlistarflutnings þó sú, að tækniframfarir hafa litað hann allt frá upphafi. 

Eftir stríð urðu nokkuð stöðugar tæknilegar framfarir, bæði í upptökum og plötuútgáfu. 

Þótt 78 snúninga vinylplötur væru mikil framför frá vaxplötunum og gerðu plötusölu mögulega og þá einkum í formi tveggja laga platna eða "single"; hugtak, sem enn er lýði;   fylgu í kjölfarið 45 snúninga plötur sem skópu möguleika á fjögurra laga plötum. 

Síðasta skrefið á vinylnum voru svo 33ja snúinga plötur, sem skópu möguleika á breiðskífum á sjöunda áratugnum.  

Á síðustu tveimur áratugum aldarinnar breyttu geisladiskarnir myndinni algerlega, og skópu hér á landi möguleika á útgáfum einstkra platna, sem selst gátu í þúsunda og jafnvel tugþúsunda tali. 

En geisladiskurinn átti eftir að verða skammlífari en vinyllinn, því að á síðustu fimm árum hefur sala hans hrunið gersamlega. 

Með því urðu tónlistarmenn af einni helstu tekju- og útbreiðslulind sinni, og mest voru viðbrigðin fyrir þá, sem áður höfðu selt mest. 

Samtímis hrundi mynddiskamarkaðurinn.  

Í ofanálag kom til skjalanna stórkostlegt niðurhal, upphaflega að langmestu leyti ólöglegt, sem bitnaði harkalega á þeim, sem höfðu haft tekjur af flutningi tónlistar og kvikmynda. 

Fundinn var að vísu farvegur á borð við Spotify, sem að vísu byggir á gildi höfundarréttar, en fyrirbrigðið er alþjóðlegt og miðast við milljarða manna markað, þar sem sala ein og sér á Íslandi er aðeins lítið brot. 

Tónlistarfólk á Íslandi reyndist búið mikilli hugkvæmni og aðlögunarhæfni þegar það fann sér nýja og gjöfula leið til að rækja köllun sína með því að standa fyrir margföldun á beinum flutningi á tónleikum og viðburðum, sem hefur ekki aðeins tryggt stöðu þessarar listgreinar, heldur einnig skapað nokkurs konar iðnað, sem gefur af sér mikla peningalega framlegð og útflutningstekjur, bæði beinar og óbeinar.  

COVID-áfallið núna er hins vegar þvílíkt högg, að samanlagt með hruni diskanna hefur riðið yfir tónlistarheiminn mesta áfall í sögu hans.  

Nú eru því góð ráð dýr og úr vöndu að ráða. 

 

 


mbl.is „Enga burði til að bíða þetta af sér“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. ágúst 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband