Þarf líka að huga að fiskneyslu unga fólksins hér.

Fyrir rumum fimmtíu árum vissu tiltölulega fáir á Íslandi, hvað pizza var, en fiskur var borðaður meirihluta vikunnar. 

Nú er þessu þveröfugt farið, og stór hluti ungs fólks ekki einasta bragðar fisk sjaldan, heldur borðar margt ungt fólk hann aldrei. og er afar matvant.   

Það er óþarfi að ætlast til þess að aftur verði horfið til gamla tímans, en þó er það svar síðuhafa, þegar hann er spurður, af hverju hann búi á Íslandi:  

Ástæðurnar eru sex: 

1. Fæddur hér og uppalinn. 

2. Minna um skordýr. 

Ástæður númer 3, 4, 5 og 6: ´

Ýsa, smjör, kartöflur og gellur í bland. 

 


mbl.is Egill Ólafsson er „Father Fishmas“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er enginn "Siggi Palestína"?

Það er ekki neitt nýtt að fjörmiklir unglingar valdi vandræðum á léttum bifhjólum.  

Í kringum 1960 voru flutt inn mörk 50cc létthjól, flestar af gerðunum NSU Quickly, Lambretta og Kreidler, sem strákar um fermingu og eldri sóttust eftir að láta gamminn geysa á. 

Svo vel vildi til, að einn öflugasti umferðarlögregluþjónn landsins og í bifhjóladeild lögreglunnar, sem hét Sigurður Ágústson, en var af einhverjum ástæðum alltaf kallaður Siggi Palestína áttaði sig á því, að leita yrði annarra leiða en refsinga til þess að koma skikki á þessi mál. 

Hann gekkst fyrir því að stofnaður var sérstakur vélhjólaklúbbur, "Elding", sem strákarnir gátu gengið í, og var nokkurs konar bifhjólaíþróttafélag og raunar langfyrsta akstursíþróttafélag landsins. 

Í klúbbnum voru stundaðar æfingar í sandgryfjum, þar sem strákarnir fengu útrás fyrir fjör sitt og félagsskap.   

Hann var þekktur fyrir að vera strangur, fastur fyrir og röggsamur, en hugsunin var kannski svipuð og hjá þekktasta hnefaleikadómara síðari ára, Joe Cortes, sem ávarpaði keppendur með því að segja: "I´m firm, but I´m fair";  "ég er strangur en ég er sanngjarn." 

Siggi Palestína var áberandi í bæjarlífinu á sínum tíma og væri verðugt verkefni fyrir einhvern háskólamann að afla upplýsinga um hann hjá þeim, sem enn eru á lifi og muna eftir stórmerku starfi þessa framtakssama lögreglumanns og brautryðjanda.   

 


mbl.is Haldlögðu vespu og höfðu samband við foreldra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kína í GAGA; Gagnkvæm Altryggð Gereyðing ALLRA!

Tilvist lögmáls Murphys varðandi það, að ef eitthvað geti farið úrskeiðis, muni það gerast fyrr eða síðar þýðir einfaldlega, að lúmskasta ógnin við tilvist mannkynsins er í raun sú langhættulegasta.  

Það er svokallað ógnarjafnvægi risaveldanna tveggja, sem enn er við lýði í fáránlegum birgðum Rússlands og Bandaríkjanna af kjarnavopnum, og var eina fundarefni Reagans og Gorbatjovs í Reykjavík 1986. 

Í kjölfarið fylgdu afvopnunarsamningar, sem minnkuðu ógnina aðeins, en voru fjarri því að fjarlægja hana. 

Eitt af fyrstu verkum Donalds Trumps þegar hann komst til valda var að byrja á því að segja þessum samningum upp "to make America great again."  

En það er aðeins smáatriði miðað við það ef Kína ætlar sér að verða þriðja kjarnorkurisaveldið og gera ógnarjafnvægið, sem gengið hefur undir heitinu MAD, skammstöfun fyrir Mutual Assured Destruction; - á íslensku GAGA, Gagnkvæm Altryggð Gereyðing allra enn geðveikislegra en nokkru sinni fyrr, og var þó vart á það bætandi.  

Með því að Kína gangi nú í það með oddi og egg að taka þátt í þessu brjálæðislega kapphlaupi verður óhætt að skrifa síðasta orðið í GAGA með stórum stöfum: "...Gereyðing ALLRA."

Eins og oft á við um tryllingsleg fyrirbæri, eru rökin fyrir tilvist GAGA svo mótsagnakennd, að engu tali tekur, og ekki batnar það þegar aðilar þess verða fleiri en tveir. 

1. Hver aðili um sig verður "til öryggis" að eiga svo miklar birgðir, að það nægi til að drepa hinar þjóðirnar mörgum sinnum. 

2. Hótunin um gereyðingu er í orði kveðnu sögð nauðsynleg til að tryggja jafnvægi, sem stuðli að þjóðaröryggi hvers þess aðila, sem er kominn í ofurklúbbinn.  Hótunin valdi þvi að enginn muni þora að beita kjarnorkuvopnum. 

3. En til þess að hótunin virki, verða málsaðilar samt að sýna það, að þeir muni óhikað beita vopnunum ef þeir telji öryggi sínu ógnað. Þeim verði að vera treystandi til þess að drepa allt líf á jörðinni ef stríð brýst út.   

Háðfuglinn Tom Lehler söng dásamlegt lag um það þegar stefnt var að því á sjötta áratug síðustu aldar að stofna sameiginlegan kjarnorkuherafla NATO, MLF, Multi Lateral Force, sem sæi um það að taka í gikkinn sem hleypti öllu af stað. Hér eru nokkrar tilvitnanir í ljóðið, sem Lehrer nefndi MLF Lullaby: 

 

 

"...One of the fingers on the button will be German..." 

 

"Once all the Germans were warlike and mean, 

but that will not happen again. 

We tought them a lesson in nineteen eighteen, 

and they´ve hardly bothered us since then.

 

So sleep well my darling, the Sandman can linger, 

we know our buddies won´t give us the finger. 

Heil! eh hail the Wermact! eh, I mean the Bundeswear! 

Heil to our loyal ally!

 

M L F will scare Breznef, 

I hope that he is half as scared as I." 

 

 


mbl.is Stefna á að tvöfalda kjarnaoddaforðann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. september 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband