Prófað var fyrir 30 árum að læsa fréttum Stöðvar 2. Stóð stutt.

Ef rétt er munað er sagan á bak við það að læsa fréttum Stöðvar 2 þrjátíu ára gömul, því að prófað var að gera það með svipuðum rökum og nú. 

Það gafst hins vegar svo illa, að hætt var við þetta skömmu síðar.  

Nú eru að vísu liðin 30 ár og margt hefur breyst, ekki bara á sjónvarpsstöðvamarkaðnum, heldur líka með tilkomu allra netmiðlanna og erlendra sjónvarpsstöðva. 

Sennilega erfitt að rannsaka þetta. Sem betur fór komst Stöð 2 í gegnum þetta á sínum tíma og vonandi gerist það aftur. 


mbl.is Skynsamlegast að taka RÚV af auglýsingamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hampurinn fékk engan hljómgrunn fyrir um 15 árum. Hvers vegna?

Nú er er orðið svo langt síðan áhugamaður um stórfellda ræktun hamps hér á landi reyndi að vekja athygli fjölmiðlal á því máli, að síðuhafi man ekki lengur hvað þessi ágæti maður hét. 

Hann nefndi margar ástæður til þess að í ljósi góðrar reynslu af hampinum erlendis væru prýðilegar aðstæður einnig hér á landi. 

En hann virtist reka sig á alls kyns mögulegar hindranir og dyr og málið hjaðnaði jafn skjótt og það hafði komist á dagskrá.  

Ef málið fær meiri byr nú en þá, væri fróðlegt að rifja upp hvað það var sem stöðvaði það hér um árið.  

Getur verið að það hafi verið vegna þess að það hreyfði við hagsmunum of margra, sem sátu á fleti fyrir af ýmsum ástæðum? 

 


mbl.is Fjallað um mögulega byltingu á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. janúar 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband