26.10.2021 | 23:58
Hvað um fyrri kosningar?
Fljótlega þegar talningarmálið í Borgarnesi kom upp, var greint frá því, að fyrirkomulagið, sem notað hefði verið, væri ekki nýtt, heldur hefði fyrr á tíð tíðkast að innsigla ekki kjörkassana, heldur geyma þá þannig eftir, að þeir væru ekki innsiglaðir.
Það vekur upp spurninguna um það hve trúverðug niðurstaða kosninga í þessu kjördæmi hafi verið undanfarnar kosningar.
Augljóst er, að þarflaust og gagnslaust er að vera eitthvað að fara ofan í saumana á því; þeir sem þá voru úrskurðaðir sem réttilega kosnir þingmenn verða ekki sviptir þingferli sínum eftir á.
Á eitthvað svipaðan hátt ætti að koma til greina nú, ef ekki verður uppkosning. Einhvers konar Salómonsdómur.
![]() |
Ekki hugmynd um hvenær nefndin skilar niðurstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 27.10.2021 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2021 | 18:46
Fróðleg og málefnaleg grein um rafeldsneyti, orkuskipti og sæstreng.
Umræða um rafeldsneyti, orkuskipti og sæstreng er í raun skammt komin hér á landi, og er það miður, því um afar mikilvæga þætti er að ræða í íslenskri orkustefnu og orkubúskap.
Það er í raun helst fyrir þessar kosningar sem íslenskir ráðamenn hafa eitthvað byrjað að ræða um möguleikana á framleiðslu rafeldsneyti hér á landi og er sú umræða afar skammt á veg komin.
Því er fengur að góðri og fróðlegri grein Guðmundar Péturssonar rafmagnsverkfræðings um þessi mál í Morgunblaðinu í dag, ekki hvað síst vegna þess að hann á að baki langan og farsælan feril á vettvangi íslenskra orkumála.
Krefjandi álitamál, eins og til dæmis mjög misjöfn sýn manna á áhrif sæstrengs á orkuverð hér á landi, en gerólíkar niðurstöður þeirra sem deila um það mál æpa á umfangsmikla og djúpa könnun á helstu rökum um þetta mikilvæga atriði.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2021 | 09:41
Taktisk aðlögunarhæfni ræður oft úrslitum.
Einn mikilvægasti þáttur góðs gengis í íþróttum er stundum nefndur aðlögunarhæfni. Hluti af henni felst í því, sem í hnefaleikum er nefnt "ring generalship"; þ. e. að stjórna atburðarásinni og felst oft bæði í því hvar og hvernig viðureignin fer fram.
Í leik Liverpool og Manchester United komu flestar tegundir aðlögunarhæfni Liverpool liðsins í ljós á svo skýran hátt, að öllum máttu vera ljósir vankantar M. U.
Eitt lýsingarorð, sem stundun er notað í því efni er "meistaraheppni" og hluti af henni felst í því hvor aðililinn gerir fleiri mistök með þeim afleiðingum að betri aðilinn "refsar" fyrir þau.
Þetta var áberandi í fyrri hálfleik, þagar United-menn spiluðu full opinn leik sem gáfu Liverpool tækifæri til að spila frábærar sóknir.
Þegar reynt var að laga þetta í seinni hálfleik, var það orðið of seint þegar Salah nýtti sér persónulega yfirburði sína til að vinna snilldarlega úr afar erfiðri sendingu og negla síðasta naglann í líkkistu andstæðinganna.
Eitt frægasta dæmið um afburða aðlögunarhæfni í íþróttum er bardaginn "Rumble in the jungle" 1974 milli George Foreman og Muhammaad Ali.
Ali fann út leið til að kljást við Foreman, sem virkaði í augum Anegelo Dundee þjálfara hans og allra annarra á vettvangi sem hreint sjálfsmorð.
"Farðu úr köðlunum!" hrópaði Dundee án afláts.
En "rope-a-dope" reyndist smátt og smátt afhjúpa sálrænan og líkamlega galla hjá Foreman, se réði loks úrslitum.
Þegar Lennox Lewis byrjaði bardagann við Mike Tyson í vörn og tapaði fyrstu lotunni, leist mörgum ekkert á blikuna. Sóknarmáttur Tysons virtist ógnvænlegur.
En Lewis var þolinmóður og sigraði afgerandi með þessum lokaorððum: "Ég get aðlagað mig að hvaða stíl sem er."
![]() |
Solskjær á síðasta séns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)