Benz að undirbúa stórt skref í framleiðslu tengiltvinnbíla.

DSC09683Helsti möguleikinn á því að efla notagildi tengiltvinnbíla er að bjóða þá með stærri rafhlöðum en hingað til svo að oftar sé hægt að láta rafmagnið knýja þá sem mest eingöngu. 

Flestir tengiltvinnbílar um þessar mundir eru aðeins með um 35-55 kílómetra drægniá raforkunni einni og af því leiðir þarf bensínvéin oft að koma til hjálpar, ekki síst á langferðum.  

Á þessu ári munu Mercedes-Benz verksmiðjurnar kalla til sögunnar nýja útgáfu af C-klassa-gerðinni. DSC09682

ar er tengiltvinnbíllinn langáhugaverðastur vegna þess að í honum verður um tvöfalt stærri rafhlaða en er í flestum tengiltvinnbílum, eða 24,5 kílóvattstundir. 

Þetta er svipuð rafhlaða að stærð og rafhlaðan í fyrstu kynslóð Nissan Leaf, sem var hreinn rafbíll og bauð því ekki upp á hjálp frá bensínvél. 

Ef fleiri fylgja í fótspor Benz varðandi rausnarlegt framboð á mjög stækkuðum rafhlöðum, gætu spennandi tímar verið framundan á markaðnum fyrir tengiltvinnbíla. 

Þeir tengiltvinnbílar, sem hafa boðið hingað til upp á stærstar rafhlöður eru Toyota RAV 4 og Suzuki Across, sem eru með um 18 kwst rafhlöður, sem gefa allt að 75 kílómetra drægni. 

Reikna má með allt að 100 kílómetra drægni hjá hinum nýja C-klassa bíl, sem einnig verður heldur rýmri en sá bíll, sem hann leysir af hólmi. 

Fyrir yfirgnæfandi hluta eigenda þessara bíla gæti blasað við að gefa bensínvélinni nær alveg frí, og yrði það stórt framfraspor.  


mbl.is Mikil sala tengiltvinnbíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Bara ein leið: upp, upp, upp !!"?

Þau eru ekki spöruð, stóru orðin þessa dagana. "Bara ein leið: upp...". En fornt máltæki segir: "Kóngur vill sigla en byr verður að ráða."

Sóttvarnarlæknir bendir á að haldi áfram sem horfir, verði Ísland senn komið með eldrauðan lit. 

Andspænis slíku er alveg sama, hve oft er hrópað að það sé aðeins ein leið: upp.  

Og heldur ekki að ekkert megi aðhafast, það jafngildi harkaleigri árás á ferðaþjónustuna.  

Í upphafi skyldi endinn skoða og framundan eru viðkvæmir og varasamir tímar, ekki tímar einhverrar veldishlaðinnar trúar á hinn endalausa vöxt upp. 

Hann gæti nefnilega breyst í hrap niður, ef hinn slæmi rauði litur birtist með sínum afleiðingum, hvað sem líður endurtekningum á hinni frægu setningu Jóns sterka: "Sáuið þið hvernig ég tók hann."


mbl.is Hraður viðsnúningur í ferðaþjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. júlí 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband