Reykjavík hefur Hallgrímskirkju; Akureyri hafi Matthíasarkirkju.

Ekki þarf annað en að blaða í sálmabók kirkjunnar íslensku til að sjá, hvílíkt öndvegis sálmaskáld Matthías Jochumsson var.  Þar fara saman bæði innihald og efnistök, sem bera af.

Sami arkitektinn, Guðjón Samúelsson, teiknaði báðar kirkjurnar sem eru helsta kennileiti höfuðstaðanna sunnan og norðan fjalla.  

Ó, Guð vors lands er bæði þjóðsöngur og þjóðarsálmur og hefur sérstaan sess. 

Ef hann er sunginn hægt til að undirstrika dramatík hans, verður hann að vísu ansi langur í flutningi, en hið merkilega er, að vel má stytta þennan flutning úr 1 mín og 45 sek um 40 sekúndur mínútur niður í rúma mínútu, með hraðari og hressilegri flutningi, til dæmis við landsleiki og ýmsar athafnir, og þá er hann ekkert áberandi lengri en þekktustu erlendu þjóðsöngvarnir. 

Af og til koma upp raddir hér á landi að skipta um þjððsöng. Það hefur víðar komið upp, svo sem í Rússlandi eftir fall Sovétríkjanna. 

En þetta gekk ekki upp hjá þeim. Þessi þjóðsöngur Sovétríkjanna var einfaldlega of góður, og lengdin aðeins rúm mínúta, þannig að nú er hann þjóðsöngur Rússlands.   


Bloggfærslur 12. nóvember 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband