Minni gat munurinn ekki verið.

"Dómarinn er hluti af vellinum." "Völlurinn er hluti af leiknum." Hve oft hafa þessi spekiorð ekki fallið. "Hvort liðið átti frekar skilið að sigra?" 

"Hvorugt, það eru mörkin sem telja." 

Í fornsögum var sagt: "Spyrja skal að leikslokum en ekki vopnraviðskiptum."

Í landsleiknum við Ísraelsmenn í kvöld hefði mátt bæta við setningunni: "VAR er hluti af leiknum."

kaldhæðnislegt er að atriði, sem tók frá okkur sigurinn, skyldi á vissan hátt líta út sem sárabót vegna þess hve litlu munaði að við sigruðum.

En einhverjir líta kannski þannig á málið að það hafi verið merki u lánleysi liðsins.  

En svona er fótboltinn og slík atriði geta líka verið hluti af leiknum. 

 


mbl.is Held að það sé ómögulegt fyrir VAR að dæma þetta mark
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórir pólitískir vandræðabiðleikir, Framsóknarelítupeningar og Þjórsárfossar.

Hvílíkur vandræða flumbrugangur, sem verið er að stilla upp sem "lausn" nýrrar rammaáætlunar. 

Framsóknarelítan á "skagfirska efnahagssvæðinu" hefur verið í óðaönn undanfarin ár að kaupa upp allar fáanlegar vatnsréttindajarðir á virkjanasvæði jökulsánna þar og notar tækifærið til að opna sér leið. 

Kjalölduveita er í raun virkjun þriggja stórfossa í efri hluta Þjórsár með innrás í Þjórsárver, en ekki virkjun eða veita þeirrar malaröldu, sem Kjalalda er. 

Til þess að láta þetta líta út sem málammiðlun eru nokkrir virkjanakostir færðir í biðflokk og til að kóróna allt ekki boðið upp á neitt nema það að vegna tímahraks verði menn að hlaupa til og samþykkja þessa hraðsoðnu samsuðu.  


mbl.is Enginn möguleiki á umræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. júní 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband