23.3.2011 | 00:02
Efasemdir Guðmundar jaka.
Ég vitna oft í Guðmund J. Guðmundsson þegar vöxtur skrifræðis er annars vegar. Hann sagði eitt sinn við mig þegar niðurstöður úr einni rannsókn vísindamanna leiddi í ljós að matarneysla fólks væri mest í hádeginu og um sjöleytið á kvöldin.
Hann tók í nefið, og nuddaði nefið á eftir um leið og hann sagði: "Ég efast stórlega um að eyða þurfi gríðarlegum fjármunum í það að mennta tugþúsundir fólks í langskólagöngu árum saman til þess að stunda rannsóknir, sem leiða til niðurstöðu sem allir vissu fyrirfram."
Þetta kemur í hugann þegar greint er frá því að í rannsókn í háskólanum í St. Andrews það sem liggur í augum uppi, að að sjálfsögðu eru aðlaðandi og fagrar konur ófúsari til útgjalda fyrir stefnumót en hinar.
Þessar konur, sem hafa svona mikinn séns eru auðvitað öruggari með sig og vita að þær komast upp með miklu meira en hinar. Allt í lagi að reyna á þanþol karlsins, því ef hann fælist, þá er nóga aðra steggi að hafa.
Að eyða hafi þurft orku, tíma og fjármunum háskólafólks til að finna þetta út með viðamikilli vísindalegri rannsókn staðfestir orð Jakans.
Auðvitað var þetta djarflega mælt hjá honum, því enginn efast um gildi góðrar menntunar og vandaðra og nauðsynlegra rannsókna á grundvelli hennar. En það var nú samt svolítið sannleiks(tóbaks)korn í þessu hjá honum.
Fagrar konur hunsa frekar reikninginn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sagði hann ekki líka að önnur rannsókn hefði leitt í ljós að kvef væri algengt hjá börnum, sérstaklega þegar kalt væri í veðri?
Sigurður Hlynur Snæbjörnsson, 23.3.2011 kl. 01:10
Skemmtilegt innlegt hjá þér. Það var gaman af Guðmundi Jaka.
Magnús Jón Hilmarsson (IP-tala skráð) 23.3.2011 kl. 11:17
Málið er ekki svona einfalt. Það má benda á að rannsóknir hafa ítrekað sýnt að konur vanmeta útlit sitt, gera lítið úr sjálfum sér og hafa ekki það sjálfsöryggi fallegra kvenna sem oft er talað um (af vanþekkingu). Hér er um að ræða lýðheilsulegan faraldur, þ.e. að konur spilla heilsu sinni til að ná í ákveðið útlit og falla þar með í þægilega einsleitnina - en hafa að engu mikilvægi þess að byggja upp fegurð sem kemur innan frá. Hvernig verður hún til? Jú, með góðum samskiptum, gefa af sér, hrósa öðrum og hlusta.
Steini. (IP-tala skráð) 23.3.2011 kl. 13:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.