19.4.2012 | 01:21
"Á parið var púað....Guðsþakkarvert."
Stóra brjóstsmálið var broslegt fyrir átta árum og enn broslegra er að það skuli vera komið alla leið fyrir hæstarétt sjálfra Bandaríkjanna.
Það upphófst mikill hávaði og mótmæli þegar þetta gerðist, og þegar málið er síðan orðið að enn meira stórmáli nú um síður dúkkar upp í huga mér ferskeytla þegar þetta varð að stórmáli á sinni tíð og ég lét flakka á skemmtunum það árið:
Á parið var púað að vonum
er poppaði´út brjóstið bert.
Að ekkert datt út hjá honum
er þó Guðsþakkarvert.
Brjóst Janet Jackson fyrir hæstarétt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta lýsir bara Kananum, sorglegt hvernig sú þjóð er orðinn að uppvöðsluseggjum en það er annað mál.
Gunnlaugur Hólm Sigurðsson (IP-tala skráð) 19.4.2012 kl. 03:01
Já Ómar
Það er eins gott að kaninn komi ekki í sund til okkar á sumrin :-)
Ég held að ég fari rétt með að það hafi verið gert stórt mál þegar Íslensk kona gaf barni á brjóst á veitingastað þarna fyrir vestan.
Þá gæti orðið smá vandamál þar sem siðferðið hjá kananum er svona svakalega hátt.
En ágætt að þeir kunna að nota peningana á þennan hátt, það verður að hafa eitthvað að gera fyrir dómarana þarna fyrir vestan :-)
Kveðja
Jóhannes
Jóhannes B Pétursson, 19.4.2012 kl. 05:04
Ótrúlegur skortur á vanvirkni hjá þeim sem skrifar fréttina. Ber geirvartan blasti ekki við áhorfendum, hún var kyrfilega hulin með einhvers konar skrauti.
corvus corax, 19.4.2012 kl. 08:33
Talibanar vestursins
DoctorE (IP-tala skráð) 19.4.2012 kl. 10:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.