6.5.2012 | 19:44
Langvinnt rugl um samninganna.
Í dag er þriðji dagurinn sem fjölmiðlar flytja misvísandi fréttir af samningum um leigu Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum.
Fyrst var sagt að öll jörðin yrði leigð honum til 40 ára en síðan var því breytt þannig að fjárfestingarsamningurinn væri til 40 ára en leigusamningurinn til 99 ára.
Nú, í lok þriðja dags, er það síðan komið upp að aðeins leigan á lóðunum undir mannvirki hans verði til 99 ára en á jörðinni hins vegar til 40 ára og fjárfestingarsamningurinn einungis til 10 ára.
Þar með liggur fyrir að mikil umræða á öllum fjölmiðlum og meðal almennings hefur verið að miklu leyti byggð á skökkum og síbreytilegum forsendum alla þessa þrjá daga, þar á meðal tveir bloggpistlar mínir.
Skýtur það skökku við á öld, sem okkur er tamt að kalla öld upplýsinganna.
Til þess að tala og fjalla um hluti verður maður að vita um hvað maður er að tala, ekki satt?
![]() |
10 ára samningur Huangs við ríkið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Ómar!
Mikið vatn er til sjávar runnið frá
því að Trippa-Siggu var neitað um
gistingu á Grímsstöðum á Fjöllum.
Húsari. (IP-tala skráð) 6.5.2012 kl. 20:03
Er þetta eitthvað sem þarf að koma á óvart. Þetta er allt í anda og vinnubragða þessarar ríkisstjórnar sem er með allt uppi á borðum og gegnsætt.
Sigurdur Kristjan Hjaltested (IP-tala skráð) 7.5.2012 kl. 06:20
Þetta eru bara vesalingar sem stjórna þessu landi.
Jóhanna (IP-tala skráð) 7.5.2012 kl. 11:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.