8.5.2012 | 22:41
Ekkert nýtt við kulda á þessum tíma árs.
Þegar Bretar hernámu Ísland 10. maí 1940 fylgir það lýsingunni á því að það voru slydduél loðandi við nágrenni Reykjavíkur, rétt eins og var í kvöld.
En stóra yfirlitskortið í veðurfréttum Sjónvarpsins´sýnir, að kalda tungan, sem teygir sig úr norðri suður yfir Ísland er ekki breið og er að víkja.
Þar með er ekki sagt að við séum laus við það að lenda í slíkri tungu eða kuldapolli í vor.
Enn er í minni Jónsmessuhretið frá því hér um árið og 1959 dundi ískalt norðanveður yfir landið og skemmdi stífluna, sem þá var verið að reisa við suðurenda Þingvallavatns.
Umskipti á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það eru einmitt líkur á talsverðu norðanhreti á sunnudag og mánudag - vonandi því síðasta á þessu vori.
Emil Hannes Valgeirsson, 9.5.2012 kl. 00:07
Ég keyrði frá Reyðarfirði til Reykjavíkur í gær og fékk sýnishorn af ýmsum veðrum á leiðinni. Ég tók skemmtilegt video af hreindýrum í Lóni, sjá hér
Gunnar Th. Gunnarsson, 9.5.2012 kl. 13:03
Þetta er nú ekkert!
Ég var fermdur um miðjan júní í stórhríð í Svarfaðardal.
Halda átti fermingarbarnamót í Hrísey en því var aflýst vegna veðurs.
Bekkjarbróðir minn, Hjöri á Tjörn, aftari helmingurinn á Hundi í óskilum, lét hins vegar ekki ferma sig, enda kommúnisti.
Þorsteinn Briem, 9.5.2012 kl. 13:15
....Hjöri á Tjörn, aftari helmingurinn á Hundi í óskilum......
Snilld!
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 9.5.2012 kl. 15:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.