30.4.2013 | 19:04
Hálfdrættingur á við Ólaf Ragnar.
Forseti Íslands hefur nú eignast þjáningarbróður varðandi það að falla af hestbaki og glíma við afleiðingar byltunnar. Þetta er forseti Túrkmenistan. Hann er þó ennþá aðeins hálfdrættingur á við okkar forseta.
Og forseti Túrkmenistan á enga möguleika á að gera þetta á jafn táknrænan hátt og okkar forseti hvað varðar möguleika á orðalagi.
Í íslensku er nefnilega talað um að valdamen "axli ábyrgð" og það má leika sér með það orðalag. Og í slíkum orðaleik hefur enginn "axlað" ábyrgð í svipuðum mæli og Ólafur Ragnar, nefnilega tvisvar, og meira að segja í bæði skiptin á sömu öxlinni.
Forsetinn féll af hestbaki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þyngra er en tárum taki,
tvisvar Óli datt af baki,
yfir honum englar vaki,
í öllu hjónarúmsins skaki.
Þorsteinn Briem, 30.4.2013 kl. 19:50
Hann var heppinn að drepa sig ekki á þessu karlinn eða lamast t.d. við það að hausinn böglaðist undir. Það að hann magalendir svona getur hafa bjargað því, en trúlega smá tannlæknastúss í kjölfarið. Situr áberandi(fram-) þungt og slyttingslega og hefur því mögulega fipað hestinn svona. Bestu knapar íslenskir eru yfirleitt í fanta formi líkamlega!
Karlinn hefur áreiðanlega fengið í það minnsta, svakalegar harðsperrur! (Er náttúrulega að tala um túrkmenann en ekki Ólaf)
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 30.4.2013 kl. 22:20
Mynd ársins var sú sem Gunnar Valberg tók af tárinu.
Njörður Helgason, 1.5.2013 kl. 11:03
Góður Steini, góður.
Til hamingju með daginn.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 1.5.2013 kl. 15:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.